Friðarboðinn og vinarkveðjur - 15.01.1946, Blaðsíða 5
son, og einnig stóð og studdi að forsetakjöri mínu
óskiptur hinn fjölmenni „Friðarfrelsisflokkur“. Einn-
ig má og geta þess hvaða álits ég nýt, og hvaða virð-
ingarmerki mér hafa verið sýnd út um heim og það
af mestu menningar- og lýðræðisþjóðum heimsins,
þjóðhöfðingjum og stjórnednum, og er þetta svo sem
ekki sambærilegt við Svein Björnsson. Ég skýri ekki
frá þessu hér til þess að mikla sjálfan mig, en gef
Guði dýrðna í þessu sem öðru góðu mér tillagt. Þar
sem nú, eins og sýnt hefur verið í framanskráðu, að
forsetatigninni hefur á algerlega ólöglegan hátt verið
stungið að Sveini Björnssyni, eða hún honum veitt, þá
er það krafa mín til hins háa Alþingis, að það láti
löglegt forsetakjör fara fram um mig og Svein
Björnsson næstkomandi sumar, á þeim tíma sem for-
setakjörslögin mæla fyrir. Við fyrrnefnda ráðstöfun
ynnist það, að bætt væri fyrir það, að lýðræðisreglum
var traðkað, og einnig þjóðin firrt skömm og álits-
hnekki út á við.
Við þessari málaleitun minni krefst ég að fá svar
innan 15. janúar 1946, og er þessi krafa mín gerð
einnig fyrir hönd meðmælenda minna og í nafni
mikils hluta íslenzku þjóðarinnar sem og annars lýð-
ræðis og réttlætisreglna.
Friðsamlegast, virðingarfyllst og vinsamlegast,
Jóhannes Kr. Jóhannesson,
Sólvallagötu 20.
5