Friðarboðinn og vinarkveðjur - 15.01.1946, Page 9
Þeir félagar, sem vilja eignast skriflegt félagsskír-
teini með númeri sínu í félaginu og mynd af forseta
félagsins, Jóhannesi Kr. Jóhannessyni, í heimsfor-
ingjabúningi með kórónu á höfðinu, geta eignazt það
gegn 10 króna gjaldi. Verður þá viðkomandi flokks-
félaga sent félagskírteinið í ábyrgðarpósti. H. Trú-
mann Bandaríkjaforseti og frú Elinora Roosevelt,
Ameríku, eru kosnir heiðursfélagar og verndarar
Friðarfrelsisflokksins, eins og F. D. Roosevelt var
meðan hann lifði, frá 1942 að telja. Brátt munu fleiri
þjóðhöfðingjar verða gerðir að heiðursfélaga og
vemdara Friðarfrelsisflokksins
Friðsamlegast og vinsamlegast.
Rvík, 5/1 1946.
Jóhannes Kr. Jóhannesson,
heiðursforseti Bandaríkjanna, forseti Friðarfrelsis-
flokksins og m. fl. Ættleiddur, arfleiddur af Th. D.
Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og konu
hans, Elinoru Roosevelt, og kjörsonur þeirra.
Hér flytur Jóhannes Kr. Jóhannesson heiðursfor-
seti Bandaríkjanna, friðarvinur og réttkjörinn forseti
íslands
ÁVARP
til íslenzku þjóðarinnar.
íslenzka þjóð og ég! — sem hefur verið rangindum
9