Eldhúsbókin - 10.09.1959, Síða 4
132
ÉLDHÚSBÓKIN
STiGAR INNANHÚSS
Nokkur aíriði í sarabandi við stiga innanhúss.
MJÖG algengt er nú í innréttingu
nýtízku húsa að stiginn milli hæða
liggi upp úr stofunni, og setur hann
þá eðlilega svip á heildarútlit íbúðar-
innar. Stigagrindur og handrið má
nú gera úr ýmiskonar efnum á
skemmtilegan og listrænan hátt, eins
og meðfylgjandi myndir sýna:
1. Járngrindur fyrir efri stigapalli
málaður í sama lit og stofuvegg-
urinn til þess að forðast of sterkar
andstæður í heildarsvip stofunnar.
2. Litlar trégrindur, málaðar í sama
lit og veggurinn. Vafningsjurtir
njóta sín sérlega vel á slíkri stiga-
grind.
3. Hér er munstrið í járngrindinni
skeifulagað, og myndar það ásamt
járnluktinni í loftinu skemmtilega
skreytingu.
4. Stórir fletir með láréttum línum
verka líkt og rimlagluggatjöld.
5. Einfalt slétt handrið til stuðnings
hendinni. Net fléttað úr mjóum
kaðli til öryggis og prýði.
6. Þegar stiginn liggur upp milli
tveggja veggja, er mjög fallegt að
láta þungan kaðal mynda handrið,
eins og á myndinni sýnir.
7. Sjá má að stofujurtin gegnir hér
sýnu hlutverki. En ekki er þetta
hagkvæmt fyrirkomulag þar sem
ungbörn eru á heimilinu.