Sókn - 15.10.1931, Blaðsíða 8
4
S Ó K N
umsetningu, hvorki á vínum
né öðru.
Þvert á móli er það opin-
bert leyndarmál, að vínveit-
ingaleyfið á Hótel Borg hefir
iðulega verið misnotað, þvi
hefir verið lýst opinberlega í
blöðum og stendur ómótmælt,
og því furðulegra er það, að
hótelið skuli fá nýtt leyfi, sem
hlýtur að leiða til meiri mis-
notkunar. — Það er nýmóðins
réttarfar, sem maður hefði eigi
búizt við af núverandi dóms-
málaráðherra, að verðlauna
sökudólginn með auknum rétt-
indum. Enda mun það reyn-
ast skammgóður vermir.
Það er þegar uppi almenn
krafa um það, að vínveitinga-
leyfið verði tekið alveg af Hót-
el Borg, þeirri kröfu mun verða
framfylgt með festu og alvöru
og fyr en varir mun það sýna
sig, að það er hið eina rétta.
Mótmæli.
Út af kvöld-vínveitingaleyfi
því, er getið er um á öðrum
stað í blaðinu, hafa verið sam-
þykkt mjög ákveðin mótmæli,
svo og áskoranir um hinar
ítrustu takmarkanir á vínsölu,
af bæjarstjórn Beykjavíkur og
auk þess af eftirtöldum félög-
um og borgarafundum:
Almennur fundur Góð-
templara.
Miðstjórn alþýðuflokksins.
2 borgarafundir í Beykjavik.
Bandalag kvenna.
Yerkakvennafél. Framsókn.
Verkalýðsfélag Hellisands.
Auk þess hafa öll blöð í
Rvík, er á málið hafa minnst,
fordæmt þessa ráðstöfun, að
»Tímanum« einum undantekn-
um, sem þó hefir ekki treyzt
sér að verja hana. Og það er
vert að taka eftir því, að Tím-
anum fannst sú tillaga, sem
lengst gekk af þeim, er fram
komu á borgarafundinum, bezt,
og að því er virðist sjálfsögð-
ust. Það var tillaga um að af-
nema Spánarundanþáguna nú
þegar.
Þetta virðist benda á, að
stjórnarblaðinu sé ekki kunn-
ugt um, að neitt sé því til fyr-
stöðu.
Fréttir.
Ungmennafélagið Velvak-
andi hélt skemmtisamkomu,
sem byrjaði með borðhaldi, að
kveldi 2. þ. m., til minningar
um að þá voru liðin 25 ár frá
því að U. M. F. Reykjavíkur
var stofnað. Hafði fagnaður
þessi farið vel fram og verið
hinn skemmtilegasti, og verið
mjög i anda U. M. F. Iðunnar
og U. M. F. R., en þau félög
störfuðu af eldmóði og áhuga
fyrir menningu og manndóm
að velferðarmálum æskulýðs-
ins, þar á meðal bindindis- og
bannmálinu, og mega þau
þakkir hljóta fyrir það. Og
er Velvakanda og öllum ung-
mennafélögum, er nú starfa,
þess óskað, að þau megi lengi
starfa, og vel sé þeim, taki
þau áðurnefnd félög til fyrir-
myndar í starfi sínu.
Óleyfileg vínsala. Nýlega
hafa 4 menn og 4 konur verið
sektuð fyrir óleyfilega vínsölu
og vínbrugg hér í bænum. —
Sektirnar voru kr. 600,00 til
1000,00 hjá hverju.
Frú Marta Pétursdóttir,
kona Indriða Einarssonar skrif-
stofustjóra, andaðist að heimili
sínu, Tjarnargötu 3 hér í bæn-
um, aðfaranótt 4. þ. m., rúm-
lega 80 ára að aldri. Þessar-
ar sæmdarkonu verður nánar
minnst síðar.
Vigfús Guðbrandsson
klæðskeri.
Sími 470. — Símn. VIGFÚS.
Austurstræti 10 (uppi).
Fjölbreytt fataefni!
1. flokks saumastofa.
Geir Konráösson
Laugaveg 12.
SÍMI 2264.
Innrömmunar-
vinnustofa 09
Rammaverzlun.
Fataefni,
Frakkaefni
og ágætir
Rykfrakkar.
Lágt verö!
G. BjarDason í Fjeldsted.
Sænska.
Kenni tungumál — sér-
grein sænska — eftir ný-
tízku- og tímasparandi
adferðum.
Estrid Falberg-Brekkan.
Gróðrarstöðin.
Ábyrgðarm.: Felix Guðmundsson
Laufásveg 16. Sími 639. Box 351.
Rikisprentsm. Gutenberg.