Eldhúsbókin - 10.01.1958, Page 5
hCskAð
FEGRUN, SNYRTING o. f.
KÖKUR — MATUR
Ef kartöflurnar brenna við:
Einfaldasta ráðið er að setja lok-
ið á pottinn, láta hann síðan í fat
með köldu vatni. Innan nokkurra
mínútna munu kartöflurnar leysast
frá botninum, og bruna-
bragðið hverfur.
Matarlykt:
Slæm matarlykt í eldhús-
inu getur breiðst út um
íbúðina svo að óþolandi
verði. Með því að setja
dálítið af ediksýru í pott, og hita hana
þar til hún gufar upp, eyðist öll lvkt
mjög fljótlega.
Hreinsun á silkislæðum:
Silkislæðurnar eru brotnar marg-
faldar saman, þvegnar vandlega úr
benzíni, og breiddar á strokborð þar
til þær eru orðnar þurrar. Jaðrana
má strjúka með strokjárni.
Iíaup á nylonsokkum:
Ráðlegt er að kaupa 30 denier sokka
með hæstri lykkjutölu (gauge) til
hversdagsnotkunar, sumar vor og
haust, kaupið þykkari sokka til vetr-
arnotkunar. 15 deniers sokkar eru
raunverulega aðeins til spari.
Vökvun blóma:
Minnist þess, að langflestar jurtir
þurfa meira vatn vor og sumar, en
á vetrum. Þegar blóm eru vökvuð,
skai það gert svo ræki-
lega að jurtin blotni í
gegn. — Vatni, sem
safnast á undirskálina
eftir vökvunina, á að
fleygja burtu, því að
fæstar jurtir þola að
standa í vatni. Á sumr-
in er bezt að vökva blómin að kvöld-
inu (tvisvar á dag ef sólskin erbjart).
Á vetrum er aftur á móti heppilegast
að vökva á morgnana, sumar jurtir
þó ekki á hverjum morgni. — Ávallt
skal nota ilvolgt vatn, stundum bland-
að með volgu tei. — Vilji maður kom-
ast að raun um hvort jurt þarfnist
vatns, er einfalt ráð að slá lauslega
í pottinn. Ef hljóðið í pottinum er
hvellt, er blómið þurrt, sé hljóðið
■dimmt er moldin blaut.
Rommpönnukökur:
Ca. 300 gr. hveiti, sem síast tvisvar
sinnum, 10 eggjarauður sem blandað
er með sykri og salti eru látnar sam-
an við hveitið. Hálfur lítir af rjóma
hellist í smátt og smátt. — Síðan
setjið þér stórt portvínsglas af rommi
í, ef til vill hakkaðar möndlur eftir
vild, og hin stífþeytta eggjahvíta
l)landist varlega í. — Pönnukökurnar
eiga að vera mjúkar í köntunum.
Hrukkur undir augum:
Til þess að eyða smáhrukkum, sem
oft vilja myndast
kringum augun, er
gott að smyrja þær
með rjómalaginu sem
iðulega sezt efst í stút-
inn á mjólkurflöskum.
Einnig er gott að bera
það á varirnar til þess
að hindra, að þær
þorni eða springi.
Norskar vöfflur:
3 egg, 125 gr sykur, 150 gr. smjör-
líki, 150 gr. kartöflumjöl. Eggin eru
þeytt vel með sykrinum og bráðið
smjörlíki er hrært saman við og deig-
ið látið standa svo-
litla stund. Loks er
kartöflumjölið hrært
saman við og þá er
deigið tilbúið
Irskar vöfflur:
2 bollar hveiti, 4
egg, 2 tesk. lyftiduft,
1 tesk. sódi, 100 gr.
brætt smjörlíki, ca. 2
bollar mjólk. — Smjörlíkið er brætt
og kælt, hvíturnar eru þeyttar, síðan
er öllu hrært saman nema hvíturnar
eru látnar síðast og reynið að hræra
eins lítið og hægt er í deiginu eftir
það. Gott er að bragðbæta þessar
vöfflur með annaðhvort vanillu eða
kardimommum.
Haf rain jölskökur:
2 dl. haframjöl, 1% dl. hveiti og
1 dl. strásykur blandað saman við
2 tesk. gerduft, 1
j u tesk. kanel og 1
tesk. engifer.
Á meðan er brætt
125 gr. smjörlíki
^ sem kæla á við
opinn glugga. Þeg-
ar smjörlíkið er
kælt hrærist það
saman við deigið ásamt tveim matsk.
rjóma.
Þá eru gerðar litlar kúlur (laus-
lega hnoðaðar), sem eru látnar strjált
á plötuna, og bakast í 10 mín. Ef
yður sýnist svo má stinga % möndlu
ofan á hverja köku.
LANÖSBDKASAFN
222577
ÍSLANDS
Hárlos:
Þvoið hárið þriðja hvert kvöld úr
tjörusápu eða seyði af kínaberki. Eft-
ir þvottinn skal vaselíni nuddað inn
í hárssvörðinn. — Annað ráð við hár-
losi: Einu sinni í viku er hárið vætt
úr sápuvinanda, sem þynntur er til
helminga með vatni. Eftir nokkrar
mínútur er hárið skolað og þerrað
vandlega.
Þurrt hár og gljáalaust:
Hárið verður gljá-
andi og fallegt ef
það er burstað upp
úr 15 gr. sápuvín-
anda, 15 gr. benzoe-
dropum, 15 gr. lax-
erolíu og 150 gr.
vínanda sem bland-
að hefur verið saman, og nokkrum
dropum af möndluolíu bætt í.
Gelgjubólur:
Þevtið sápu í heitu vatni og núið
froðunni vandlega inn í hörundið
með grófurn klút nokkrum sinnum á
dag, berið síðan á það andlitsvökva
sem þurrkar hörundið (Dryinglotion).
Þessi síendurtekni þvottur mýkir
fílapensana, eyðir ónauð-
synlegri húðfitu og fjar-
lægir dauðar húðþekju-
frumur, þannig að losnar
um stíflurnar í holunum.
Næsta skref er að stand-
ast þá freistingu, sem
flestum reynist erfitt, að
kreista fílapensana eða gröftinn úr
bólunum.
Slíkt getur orðið til þess að skadda
ennfrekar hin viðkvæinu hárslíður.
Ctg. og ábyrgðarm.: Jón Alexandersson
fírettisg. 3 - fíei/kjavík - Simi 103R0.