Eldhúsbókin - 10.01.1958, Síða 6
TíZK USIÐAN
KJÓLAR (Sídd) :
1 kjólatízkunni í ár vekja stuttu
pilsin mesta athygli. 1 raun og veru
byggist vor- og sumartízkan 1958
aðallega á sídd pilsanna. Um hana
er engin algild regla, heldur ræður
mestu lögun og lengd fótleggjanna.
Má segja að í því efni ríði mest á
smekk hverrar konu, er hún þreifar
sig áfram fyrir framan spegilinn,
hversu stutt pils fótleggirnir þola.
Hins vegar viljum vér benda yður
á, að almennt mega kjólarnir ná 5
cm. niður fyrir hnén en kápur aftur
á móti 7 cm.
Ekki má svo gleyma því, að sokk-
arnir eiga nú aftur að vera með saum,
því að saumurinn dregur fram fal-
legar línur og grennir einnig.
(Vídd):
I tízkunni er oft skammt öfganna
á milli. t vor og sumar ber hæst ann-
ars vegar hina þröngu ,,Chemis“ eða
sek'kkjóla og hins vegar hin víðu
lampapils. Höfuðkosturinn við þetta
er, að við getum sjálfar valið, eftir því
hvort hentar betur, því að hvort
tveggja er jafn rétthátt í tízkunni.
KÁPUR:
Það nýjasta í
káputísk-
unni er hin
svokallaða
pilskápa, sem
virðist henta
sérstaklega
vel hinum
pilsvíðu sum-
arkjólum.
Hin mikla til
hneiging til
að draga fram
þverlínur
kemur í
káputízkunni
greinilega fram í beltunum eða eins
og hér sézt með því að stanga þver-
línur fyrir neðan mitti.
Annars vegar hinn síði jakki, er nær
rétt niður fvrir mjaðmir. Hins vegar
er svo hinn stutti jakki.
Þessi mismunandi jakkatízka hefir
það þó sameiginlegt, að báðum fylgja
stutt, þröng pils og ekki full erraa-
iengd.
LITIR:
1 vor- og sumartízkunni er ríkj-
andi sú skemmtilega litasamsetning,
að kápurnar og dragtirnar eru í
sterkum lit en kjólar og blússur með
veikari blæ af sama lit. — Með öðr-
um orðum tvennskonar blær af sama
lit.
Helztu sterkari litirnir eru: dökk-
blátt, birkigrænt, skærgult, fagurrautt,
dökkgrátt og við þessa liti koma svo
ljósari blæbrigði.
TÖSKUR:
Kjólarnir hafa stytzt en töskurnar
að sama skapi lengzt. Nýjasta nýtt
eru hinar löngu, þunnu umslaga-
löguðu töskur, sem ýmist eru með
eða án hanka (og eru bornar undir
handleggnum).
Þessar töskur eru ávallt úr mjúku
leðri. Lokan er orðin breiðari og t.
d. tvöfaldar reimar leysa hankann af
hólmi.
Taskan „beuty-box“ hefir fengið
keppinaut, sem er hin háa koffort-
lagaða útitaska.
SKÓR :
Skórnir í ár eru támjóir og gjarn-
an prýddir með einhverju því, sem
dregur athyglina að skónum sjálfum.
Margar vilja hafa þá klædda með taui
að ofan en leðri á hæl.