Morgunblaðið - 17.03.2022, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022
Eyravegi 29 • Selfossi • Sími 482 1800
dömufatnaður
Glæsilegur
Tökum á móti
hópum í heimsókn.
Erum farnar að
bóka fyrir sumarið.
tiskuverslun.is
Vefverslun
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Æ
tla má að um 1.000
manns mæti á hverjum
virkum degi í Selfoss-
höllina, fjölnota íþrótta-
hús sem tekið var í notkun í október á
síðasta ári. Höllin er alls um 6.500 fer-
metrar að flatarmáli og skiptist í æf-
ingaaðstöðu fyrir fjálsar íþróttir og
knattspyrnuvöll sem er 64 metrar á
breidd og 54 metrar á lengd. Með
skilrúmum má svo stúka völlinn í
tvennt. Oft er einmitt þörf á slíku því
hver stund í húsinu til æfinga er um-
setin og mikilvægt að sem flestir fái
tækifæri.
Bygging sem bætti
úr brýnni þörf
„Hér er iðandi mannlíf frá því fyrir
klukkan átta á morgnana og fram á
kvöld og hingað kemur fólk á öllum
aldri,“ segir Sveinbjörn Másson
framkvæmdastjóri knattspyrnudeild-
ar Ungmennafélags Selfoss. Deildin
hefur fyrir hönd Sveitarfélagsins Ár-
borgar umsjón með aðstöðunni á Sel-
fossvelli, útivöllum og nú síðast
íþróttahúsinu nýja sem var langþráð.
Bygging þess bætti úr brýnni þörf
eftir betri aðstöðu fyrir til dæmis iðk-
endur í yngri flokkum í knattspyrn-
ustarfinu, sem lengi hefur verið mjög
öflugt á Selfossi. Sama má segja um
frjálsu íþróttirnar. Umhverfis fót-
boltavöllinn er göngu- eða hlaupa-
braut, um 200 metra löng, sem er öll-
um opin.
Yngstu og elstu bæjarbúarnir
„Árborg er heilsueflandi sveitarfé-
lag og margt í bæjarlífinu tekur mið
af því. Þannig getur fólk komið hing-
að og gengið eftir brautunum og tekið
þannig út sína daglegu þjálfun. Slíkt
hefur verið mörgum mjög kærkomið í
því kulda- og vetrarríki verið hefur að
undanförnu. Einnig er hér á þriðju-
dögum og fimmtudögum heilsuefling
fyrir eldri borgara, sem hefur slegið
alveg í gegn, segir Sveinbjörn og
heldur áfram:
„Á morgnana eru hér líka opnir
tímar fyrir leikskólana og dagmömm-
ur sem þá koma hingað með krakk-
ana sem hér fá frábært tækifæri til að
ærslast og leika sér. Þannig er Sel-
fosshöllin, eins og húsið er kallað,
samkomustaður elstu og yngstu bæj-
arbúanna og allra þar á milli, sem
gerir þetta að einstökum stað. Upp-
bygging íþróttaaðstöðu skilar sér
alltaf margfalt til sveitarfélagsins
eins og komið hefur á daginn.“
Sveinbjörn hefur starfað fyrir fót-
boltann á Selfossi og sem vallarstjóri
frá 2008. Hann segir að auðvitað hafi
gangur mála í fótboltanum verið upp
og ofan á þessum fjórtán árum. Þann-
ig sé lífið í sínum fjölbreytileika.
„Annað vegur þó þyngra. Ævintýr-
ið eru samskiptin við fólkið, til dæmis
krakka sem hafa náð langt í sínum
íþróttagreinum og nefni ég þar til
dæmis fótboltamennina Viðar Örn
Kjartansson, Jón Daða Böðvarsson
og Guðmund Þórarinsson. Raunar
koma alveg ótrúlega margir hingað á
Selfossvöll til æfinga eða sem áhorf-
endur; eru blanda sér í leikinn hver
með sínu móti og lifa og hrærast í því
samfélagi. Það gefur mér mikið,“ seg-
ir Sveinbjörn Másson.
Samskipti við fólk ævintýrið í starfinu
Íþróttir í Selfosshöll. Uppbygging aðstöðu skilar sér
margfalt. Um 1.000 iðkendur mæta í húsið dag-
lega. Sveinbjörn í starfi fyrir knattspyrnuna í 14 ár.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Æfing í Selfosshöllinni eftir skóla hjá 6. flokki hjá knattspyrnudeild Ungmennafélags Selfoss. Tilþrif og takta kennir Danijel Majkic sem er þjálfari, auk þess að leika með meistaraflokki.
Sveinbjörn Másson stýrir daglegri starfsemi í Selfosshöllinni sem er orðin sterkt kennimark í bæjarmyndinni.