Eyjablaðið - 23.05.1939, Side 2
ÞRIÐJUDAGURINN 23..MAÍ 1939.
EYJABLAÐIÐ
EYJABLAÐIÐ
Útgef.:
Sósialiátafélag Vestm.eyja
Abyrg ritnefnd:
Haraldur Bjarnason.
Arni Guðmundsson.
Afgreiðola blaðsins er á
Sólheimum (niðri),
Prentstofa JHG
Aflraunir
óstjórnarinnar.
Hin nýbakaða ríkisstjórn, ' seni
tekið liefur sér nafnið Þjóðstjórn
(til að skarta með) í fullkomnu
heimildar|eysi, hefur nú setið í önd-
vegi . þjóðarbaðsíofunnar nokkurt
skeið.
Og þó braut hennar sé enn ekki
löng ber húu þó ljóst vitni um
hvert stefnt er. Það mun því liggja
mjög beint við, að hin vinnandi al-
þýða fari að.gera það upp við sig,
hvað segja skuli, og hvað gera
skuli við því ástandí, sem hin skart-
búna afturganga auðvaldsins, Þjóð-
stjórnin, vinnur að, að skapa.
Þau fyrstu kvnni, sem alþýða
manna hafði af þessari nýju óstjóru
var krónulækkunin, sem lagðist yf-
ir borg og bæ eins og beljandi
jóðstuna afturhaldsins rétt fyrir hina
erfiðu fæðingu þessa óskabarns
síns.
Að ;vísu létu ýmsir úr þjóðstjórnar
fjölskyldunni það boð út ganga,
að þetta væri hið eina bjargráð,
sem tiltækilegt væri til ,gð frelsa
þjóðina.
Og sjá! Frelsi Jrjóðarinnar rnun
þá á þeirra máli heita það, að
loía hinni stritandi alþýðu að
greiða stórum hækkað verð fyrir
nauðsynjar sínar, sem án efa lilýt-
ur að þýða aukinn skort á sóma-
samlegu I.fsviðurværi, bæði í inat-
aræði, klæðnaði og húsnæði. Nú
cru sjúkrahús þjóðaiinnar fullskipuð
fyrir, svo vart mun því öreigum
ætlaður annar dvalarstaður með
auknum sjúkdómum en mold sinn-
ar fósturjarðar.
En afturhaldið lét ekki sitja við
þetta eitt saman. Enn heyrist hljóð
úr horni.
Fæðingarhríðin er um garð geng-
in og hinn geðslegi ungi er tekinn
að hjala. Mál hans er að vísu tæpi-
tunga ennþá, en hann skilst þó.
Næst á dagskrá er að „fulltrúi al-
þýðusamtakanna'' í óstjórninni Stef-
án Jóh. Stefánsson skifti nú alþýðu-
sambandinu svo nefnda á milli sín
og Ólafs Thors, til að reyna að
grípa fyrir kverkar hins óháða fag-
sambands, sem verkamenn eru nú
í þann veginn að skapa.
Öllum sjóðum verklýðssamtak-
anna, sem óstjórnarfjölskyldan hef-
Verðlaunakvæði Magnúsar
S 0
Stefánssonar.g(Orn Arnar).
íslands Hrafnistumenn
lifðu tímamót tvenn,
þó að töf yrði á framsóknarleið
eftir súðbyrðings för
kom hinn seglprúði knör,
éftir seglskipið vélknúin skeið.
En þótt tækjurn sé breytt,
þá er eðlið samt eitt,
eins og ætlunarverkið, er sjómanns-
ins beið.
ur náð fil, hefur þegar verið rænt
svo nú er aðeins eftir að draga svo
máttinn úr stéttinni sjálfri að hún
verði þess ekki megnug að bæta scr
þetta tjón í náinni framtfð. Eftir
er aðeins að vita hvort slík níðings-
verk verða þoluð af hinni sterku
og vinnustæltu alþýðu. —
Það verður af því, sem að fram-
an er sagt ekki misskilið, að stefna
óstjórnarinnar er sú, að pína al-
þýðuna, sem verðmæ.in skapar enn
frekar en orðið er — allt fram á
grafarbarminn — til að trjð « í hina
miklu hít hins þríhöfða afturhalds-
þurs.
I fæsturn orðum: Auðvaldsþrenn-
ingin, íhald, framsókn og afturhalds
kratar, standa nú í aflraunum. Afl-
raunin er sú að herða sem fastast
hungurólina að hinu mjóa ..mitti ís-
lenskrar alþýðu. En það mega allir
vi.ta að slíktir leikur verður ekki
lengi liðinn, og hin vinnuhrjúfa
hönd alþýðunnar getur, þegar henni
er þannig misboðið, snúist tii varn-
ar og greitt böðlum sínurn það,
sem böðla er, og um leið tekið það,
sem alþýðunni ber. Og það eitt er
víst, «að þeir sem ræna alþýðtina
frelsi og lífsviðurværi mun aldrei
lengi þrífast á þessu landi.
Hvort sem fleytan er smá
eða seglprúð að sjá
og hvort súðin er tré eða stál,
hvort sem knýr hana ár
eða reiði og rár
eða rammaukin vél yfir ál, —'
hvert eitt fljótagdi skip
ber þó farmannsins svip,
hann er ferjunnar andi og hafskips-
ins sál.
Hvort sem heimalands strönd
eða langt út í lönd
á hann leið yfir ólgandi flóð,
gegn ittm vöku og draum
f'léttar trygðin þann taum,
sent hann tengir við iand sitt og
þjóð.
Þegar hæít reynist för,
þegar kröpp reynast kjör,
verpttr karlmenskan ísUnska bjarma
á hans slóð.
íslands Hrafnistumenn
eru hafsæknir enn,
ganga hiklaust á orustuvcll
út í stormvirðin höst,
móti straumþungri röst,
yfir stórsjó og holskefluföll,
flytja þjóðinni auð
sækja barninu brauð,
færa björgin í grunn undir fra.m-
tíðarhöll.
Frá síðasta bæjarstjórn-
arfundi.
Á síðasta bæjarstjórnaríundi sam-
þykkti meirihlutirm (þar með tal-
inn Sveinn Guðmundsson), að svifta
sorp- og salernahreinsaranna, þá,
sem unnið hafa að þeim verkum
undanfarin ár, starfi sínu. Mæl-
ist þessi ráðstöfun mjög illa fyrir
hjá almenningi, sem óbilgjörn í
garð þessara starfsmanna bæjarins
«auk' þess, sem engir, nema ef til
vill meirihlutamennirnir í bæjar-
stjórninni, sjá fram á að hún muni
hafa sparnað í för með sér íyrir
bæjarsjóð.
Á þessum sama fundi hélt meiri-
hlutinn áfram ofsóknum sínum í
garð Guðlaugs Hanssonar, og neit-
aði honum um 5—600 króna eftir-
laun.
Þá lá fyrir fundinum málaleitan
frá verklýðsfélögunum, að bæjar-
stjórnin gerði einhverjar ráðstafan-
ir gegn atvinnuleysi hér í sumar,
þar eð vitanlegt er, að margir heint-
ilisfeður komast ekki héðan í at-
vinnuleit. — Ekki vildi meirihlutinn
sinna þessari máláleitan. Tiilaga
sósíalista um að bæjarstjórn kysi
nefnd, er athugaði málið og legði
tillögur sínar fyrir bæjarstjórn innan
viku var feld. Ekki mátti svo mikið
sem athuga málið — það var að
gera verkalýðnum of 'hátt undir
höfði. —
TILKYNNING
Lifrarinnleggjendur eru áminntir um
að koma með lifrarseðla sína á skrif-
stofu samlagsins til samanburðar.
Lifrarsamlag Vestmannaeyja
Sunnudaginn 21. maí hélt Franco hátíðlega innreið í Madtid, höfuðborg Spánar. I fylkingu
„þjóðernissinna" bar mest á ítölskum sveitum og Máraherliði. Myndin sýnir fyrstu fasistaher-
sveitirnar er fóru inn í Madrid, er borgin hafði verið svikin í hendur Francos.