Fréttablaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 77
Ég mæli eindregið með Happier GUTS frá Eylíf það hefur reynst mér mjög vel. Ég
hef alltaf verið með lata þarmastarfsemi og hef verið að prófa ýmislegt í gegnum
tíðina til að laga meltinguna en var bara hætt að hugsa um þetta því ekkert virtist
koma að gagni og ég hugsaði bara „ég er bara svona og lítið við því að gera“.
Ég var svo heppin að kynnast Happier GUTS nýlega eftir ábendingu um að þetta
virkaði vel, en ég var búin að vera í langri hvíld frá öðrum bætiefnum. Ég ákvað ég
að prófa Happier GUTS sem ég sé ekki eftir, því eftir ca 2ja mánaða notkun fann ég
gríðalegan mun á mér, allt annað líf en áður. Ég mæli eindregið með Happier GUTS
því það hefur hjálpað mér mjög mikið.
Nýjasta varan frá Eylíf er Stronger LIVER
sem inniheldur fjögur íslensk hráefni:
• Kítósan er unnið úr rækjuskel, sem eru náttúrulegar
trefjar og hefur staðfesta virkni
• Kalkþörungar sem eru mjög kalkríkir og innihalda
74 stein- og snefilefni frá náttúrunni, margar
rannsóknir staðfesta virkni þess.
• Íslenski kísillinn frá GeoSilica sem hefur reynst vel
og rannsóknir staðfesta virkni þess.
• Íslensk hvönn sem eru vel þekkt fyrir sína góðu áhrif
á meltinguna í gegnum tíðina
• Við styrkjum blönduna með öflugri blöndu af
kólín, mjólkurþistli og C vítamíni.
Kólín stuðlar að viðhaldi eðlilegarar starfsemi lifrar
og að eðlilegum fituefnaskiptum.
Athugið að ekki má taka D vítamín eða önnur fituleysanleg vítamín
á sama tíma. Látið líða ca 2 klst á milli.
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger
LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er
á Grenivík. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi
vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom
til vegna þess að hana langaði að setja saman
þau frábæru hráefni sem eru framleidd á á Íslandi á
sjálfbæran hátt frá náttúrulegum auðlindum á Íslandi
og auka þannig aðgengi fólks að þessum gæða-
hráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun
varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís.
„Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur
fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir
sýna fram á staðfesta virkni þeirra“ segir Ólöf Rún. „Við
vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó
og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð,
hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum
íslenskum framleiðendum. Öll framleiðsla Eylífar fer
fram á Grenivík.
„Við vitum öll að heilsan er dýrmætust því er svo
mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis
heilsuvandamál. Heilbrigð melting er grunnurinn að
góðri heilsu, þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða
upp á hágæðavöru fyrir meltinguna, Happier GUTS
og Stronger LIVER“ segir Ólöf Rún.
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ
• GeoSilica frá Hellisheiði
• Kollagen frá Sauðárkróki
• Kítósan frá Siglufirði
• Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki
í Hafnarfirði
Hreint óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað
börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en
ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Ragnar Þór Alfreðsson
Trésmiður
Ragnhildur Sigurðardóttir
PGA golfkennari
Vörulínan frá Eylíf
Þórdís S. Hannesdóttir
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó
ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira
Líður betur og er ánægður með Stronger
LIVER frá Eylíf
Mér var bent á að prófa Stronger LIVER frá Eylíf og
ákvað ég að slá til. Ég hef verið í eftirliti hjá lækninum
mínum vegna heilsufarsins og fer reglulega í tékk og
blóðprufur.
Eftir að hafa notað Stronger LIVER í nokkra mánuði
þá kom í ljós að blóðprufan kom óvenjulega vel út,
öll gildin fyrir lifrina voru mun betri en áður. Þetta
kom mér skemmtilega á óvart og hef ég verið mjög
ánægður með vöruna því að mér líður vel af því að
nota hana.
Því get ég sagt með sanni að ég mæli með Stronger
LIVER frá Eylíf og ætla að halda áfram að nota vöruna.
Ragnar Þór Alfreðsson,
trésmiður
Ég er ánægð með árangurinn af Smoother
SKIN & HAIR frá Eylíf
Ég hef notað Smoother SKIN & HAIR frá því í vor
eftir að ég frétti af góðum árangri frá vinkonu minni
af vörunni.
Ég var aðallega spennt að prófa vöruna vegna þess að
hárið á mér hafði verið í svo lélegu ástandi fyrr á árinu
eftir að hafa verið á Ketó mataræði. Velji maður Ketó
mataræðið þarf að gæta þess að fá nóg af vítamínum
því áhersla er lögð á það að halda sig frá ávöxtum
vegna ávaxtasykursins. Ég gætti ekki nógu vel að
vítamínbúskapnum mínum og fljótlega fann ég að
hárið var að breytast. Hárið varð matt, stíft og tölu-
vert meira hárlos en venjulega.
Vinkona mín hafði kynnst Smoother SKIN & HAIR
frá Eylíf og var ég spennt að prófa vöruna. Eftir að
hafa tekið inn ráðlagðan dagskammt í nokkrar vikur
fór ég að sjá og finna verulegan mun á hárinu mínu.
Hárið er orðið mjúkt og meðfærilegt og ný hár að
stinga upp kollinum hér og þar um kollinn minn.
Ég get því sannarlega mælt með vörunni, Smoother
SKIN & HAIR frá Eylíf
Ragnhildur Sigurðardóttir,
PGA golfkennari