Fréttablaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 40
Samúelssafnið í Selárdal er
umvafið einstakri náttúru-
fegurð. Safnið inniheldur
líkön, styttur og málverk.
Listahátíð Samúels verður
haldin þar í lok ágúst.
Það er sannarlega eftirminnileg
upplifun að heimsækja Samúels
safnið í Selárdal í Arnarfirði. Safnið
heitir í höfuðið á Samúel Jónssyni,
sem var stundum kallaður „lista
maðurinn með barnshjartað“ en
hann byggði bæði listasafn og
kirkju í dalnum einn síns liðs þar
sem hann var búsettur frá árinu
1947 til dauðadags árið 1969.
Safnið inniheldur meðal annars
líkön af ýmsum þekktum merkis
byggingum í útlöndum, málverk
og ýmsar skemmtilegar styttur af
ljónum, selum, sæhesti, önd með
unga sína á bakinu og Leifi heppna,
svo dæmi séu tekin, segir Kári G.
Schram, einn af stofnendum Félags
um Listasafn Samúels og formaður
þess.
„Öll verk Samúels bera honum
fagurt vitni og var hann víða
þekktur fyrir hæfileika sína sem
hann átti í ríkum mæli. Þó er hans
hvergi getið í ritum um íslenska
listasögu, sem er miður. Við erum
því að reyna að lagfæra þá stöðu,
meðal annars með útgáfu bókar
um líf og list Samúels sem Ólafur
Óvenjulegt
safn umkringt
náttúruperlum
Hér má sjá ljónagosbrunn Samúels.
Listahátíð Samúels verður haldin 12.-13. ágúst. Þar verður boðið upp á ýmsar
uppákomur eins og tónlist, brennu og góðan mat. aðsend/þobergur ólafs
J. Engilbertsson, einn stofnenda
félagsins er að taka saman og með
endurútgáfu á heimildarkvik
mynd um Samúel sem við gerðum
á sínum tíma. Þrátt fyrir það hafa
margir Íslendingar og erlendir
ferðalangar gert sér leið út í Selár
dalinn til að líta eigin augum verk
hans.“
Listavel gerð líkön
Samúel málaði fjölmörg olíumál
verk og landslagsmyndir sem hann
rammaði inn sjálfur í sína útskornu
ramma.
„Hann setti upp höggmynda
garð, skar út í tré og gerði einnig
líkön, m.a. af Péturskirkjunni í
Róm og af indversku musteri en
þar studdist hann við myndir úr
bókum og póstkort, enda fór hann
aldrei til útlanda. Þessi líkön voru
listavel gerð úr hundruðum ef ekki
þúsundum smáhluta og duldist
engum að bak við þessi líkön voru
margar vinnustundir, þolinmæði
og djúpstæð sköpunargleði.“
Listahátíð haldin í sumar
Kári segir safnið ávallt opið fyrir
gesti á meðan færð leyfir en mót
takan og kaffihúsið opni í byrjun
júní og séu opin fram í lok ágúst.
„Við höldum einnig Listahá
tíð Samúels annað hvert ár og í
ár verður hún haldin með pompi
og prakt með góðri dagskrá. Þar
verður boðið upp á ýmsar lista
uppákomur, tónlist, leik, göngur,
brennu og extra góðan mat, sem
er útbúinn af einum helsta kokki
landsins.“
Þekktur víða um heim
Kári segir Samúel hafa verið frjóan
og skapandi listamann, þótt hann
hafi ekki verið viðurkenndur lista
maður í lifanda lífi af elítunni fyrir
sunnan. „Þrátt fyrir það voru verk
hans vinsæl og það var oft gest
kvæmt hjá honum. Verk hans eru
sum hver áberandi tákn í kynn
ingarefni á Vestfjörðum og í ferða
Samúel Jónsson
við ljónagos-
brunninn.
Kári G. Schram, er einn af stofnendum Félags um Lista-
safn Samúels og formaður þess.
Brautarholt, safn Samúels, og kirkjan, eru umvafin náttúrufegurð.
handbókum, tímaritum og bókum.
Vegna aukins ferðamannastraums
undanfarin ár hafa ljósmyndir af
verkum hans dreifst um allan heim
enda vinsælt hjá gestum safnsins
að taka þar myndir.“
Einstök náttúra
Kaffihúsið og minjagripabúðin
við safnið voru opnuð árið 2020.
„Í kirkjunni hafa auk þess verið
haldnir tónleikar, leiksýningar og
gamanmál. Safnbygging Samúels
fékk sitt upphaflega hlutverk sem
listasafn aftur þegar opnuð var þar
fyrsta sýningin sumarið 2020.
Í sumar opnum við sýningu um
sögu steypuverka Samúels sem
Gerhard Koning tók saman. Auk
þess býður staðurinn upp á ein
staka náttúru, fallegt útsýni, hvítar
strendur og djúpblátt haf. Og það
er mjög sérstök upplifun að dvelja
þar,“ segir Kári að lokum. n
Nánari upplýsingar má finna á
nýjum vef sem verður opnaður í
vor, samuelssafn.is, og á Facebook
(@Listasafn Samúels).
4 kynningarblað 30. apríl 2022 LAUGARDAGURFerðumst um ísland