Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Síða 11

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Síða 11
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið20 21 Hertervigsbakaríið Um tíma voru bakaríin á Siglufirði þrjú talsins, og eitt af þeim var Hertervigsbakaríið sem var númer 10 við Vetrar- braut. Óli Hertervig flyst frá Akureyri til Siglufjarðar 1927 og kaupir bakaríið af Axel Schiöth bakarameistara, en hann var faðir Aage Schiöth lyfsala. Húsið var þá aðeins á einni hæð og með lágt ris, en nokkrum árum síðar byggir hann ofan á það, reksturinn vex og starfsfólki fjölgar. - Anna Lára Hertervig minntist áranna á Vetrar brautinni þegar ég ræddi eitt sinn við hana. „Pabbi flutti inn smjör, smjörlíki, egg og aðrar bökunarvörur, aðallega frá Englandi og Danmörku. Tunnurnar sem eggin komu í, voru síðan notaðar til að brugga í þeim. Ég fékk meira en nóg af ölgerð og það var bruggað bæði maltöl og venjulegt öl. Oftast „misstu“ strákarnir aðeins meira af sykri út í lögunina en uppskriftin sagði til um, en það var ekkert verið að fárast yfir slíkum smámunum nema síður væri. En mér fannst alltaf svo vond lyktin af ölinu og þá sérstaklega meðan það var að gerjast, að ég hef aldrei getað hugsað mér að drekka bjór. Fyrir utan brauðsöluna, var líka seld mjólk þarna og svo var ölstofa inn af búðinni. Við bjuggum í einu herbergi inn af búðinni fyrst eftir að við komum frá Akureyri, mamma, pabbi og við þrír krakkarnir. Uppi í risinu sváfu tvær stúlkur sem unnu í búðinni. Palli í Skarðdal vann líka í bakaríinu og þurfti að ganga um langan veg að heiman og heim. Hann fékk því oft að gista uppi sjá stúlkunum og gekk það vandræðalaust fyrir sig þó að herbergið á loftinu væri bara eitt.“ Leó R. Ólason. Á meðfylgjandi mynd stillir starfsfólk Hertervigsbakarís sér upp fyrir myndatöku árið 1937. Við myndina var skrifað: Halldór Blöndal sendill, Sigurður Hóseasson, fjórar búðarstúlkur, Riehart Nielsen danskur bakari, Steindór Hannesson nemi, Sigurður Jensson, Óli Hertervig og Lína Hertervig með yngstu dótturina. Aðrar þrjár dætur þeirra eru fyrir framan röðina Eins og sést á auglýsingunni er Hertervigsbakarí með þrjú símanúmer sem hlýtur að hafa verið nokkuð vel í lagt um miðja síðustu öld. Á þessum tíma voru númerin líka í styttra lagi, 18. 133 og 134. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við söluráðgjafa í síma 580 3900 Fastus ehf |Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Helstu kostir þeirra eru: • Einungis þarf eitt teygjulak • Engin laus lök sem færast til eða krumpast undir viðkomandi • Má þvo á 85°C • Eru í samningi við SÍ Snúningslök geta aukið gæði svefns þegar fólk á erfitt með að snúa sér eða hreyfa sig í rúmi. Quick On snúningsteygjulökin fást í flestum dýnustærðum og auðvelt er að setja þau á dýnuna. VAKNAR ÞÚ UPP VIÐ AÐ SNÚA ÞÉR Í RÚMINU? Klárlega eitt besta bakarí landsins með metnaðarfullt bakkelsi og mat í hádeginu. Vatnagarðar 14 104 Reykjavík Sími: 563 6000 litrof@litrof.is

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.