Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Blaðsíða 14

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2021, Blaðsíða 14
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið26 27 Besta kvikmynd? Besta kvikmynd úff þær eru svo margar en Brokeback Mountain hafði mikil áhrif á mig og Aviator. Besti leikari? Íslenskur, Ólafur Darri eigum við ekki mikið í honum líka! Hlakka til að sjá Ófærð 3. Erlendur, Leonardo Di Caprio finnst hann mjög fjölhæfur og flottur leikari. Annars er svo mikið til af stór góðum leikurum. Besta leikkkona? Meryl Streep án efa, hún getur leikið nánast allt.  Verst í fari annarra? Yfirgengileg stjórnsemi og hroki. Þegar fólk telur sig langt yfir aðra hafin, við erum öll jafn mikilvægur hlekkur í lífskeðjunni að mínu mati. Best í fari annarra? Góðmennska og umburðarlyndi. Uppáhalds íþróttafélag? Ekkert ákveðið nema... má segja Liverpool?!! Fallegasti maður fyrir utan maka? Ohhh Chris Hemsworth. Eitthvað mikið við hann, karlmannlegur ljúf- lingur. Uppáhaldssjónvarpsefni? Krimi seríur hef voða gaman af að vera aðstoðarkona rannsóknarlögg- unnar 😉 Hvað veitir mesta afslöppun? Hmm... Kertaljós og ljúfir tónar í sófanum heima og liggja í mosa/grasi einhversstaðar í náttúrunni við læk og hlusta á lækjarniðinn og finna ilminn af náttúrunni og horfa upp í bláan himininn. Hvað ætlarðu að gera í sumar- fríinu? Ferðast um fallega landið okkar, kíkja á Sigló og njóta allra litlu hlutanna í lífinu. Hvaða áherslu leggur þú á í þjóðmálum? Jöfnuð, bætt menntakerfi og nýsköp- un.  Kærasta æskuminning? Kærasta æskuminningin er án efa þegar mamma fékk að koma aftur heim eftir brunann mikla úr margra mánaða endurhæfingu og við 6 syst- kini splittuð út um allan bæ á sitt hvorum heimilum, sameinuð á ný. Fengum nýtt heimili í „Jarðýtuhúsinu“ eins og sumir kölluðu það, því það var á sömu lóð og Bæjarskemman í Norðurgötu með öllum vinnuvélum bæjarins. Neyðarlegasta atvikið? Almáttugur minn þau eru nú nokkur en uppúr stendur, þegar ég var að sækja mat í mötuneytið í vinnunni fyrir nokkru og það voru franskar og eitthvað. Mig var búið að langa svo í franskar og þegar ég var að labba til baka með bakkann (Allt skammtað í bakka á tímum Covid) þá sá ég eina girnilega franska gægjast út úr bakkanum og í græðginni greip ég hana og laumaði henni að munninum en STOPP!! Helv...gríman var fyrir hahaha og það var löng röð af fólki að bíða eftir mat og allir sáu þetta og það var skellt uppúr og brosað i lange baner. Það var walk of shame út að lyftu hahaha. Við hvað ertu hrædd? Minn mesti ótti hefur alltaf verið að eitthvað hræðilegt komi fyrir drengina mína. Er það ekki yfirleitt mesti ótti allra foreldra? 9 . (Einherji 29. maí 1942) (Mjölnir 14. janúar 1942 og 8. ágúst 1942) Hjónaefni Ungfrú Margrét Björnsdóttir símamær og Óli Blöndal verzl- unarmaður. Ungfrú Ragnheiður Jónsdóttir, starfsstúlka á sjúkrahúsinu og Sigurbjörn Frímannsson, bif- reiðastjóri. Ungfrú Guðbjörg Pálsdóttir og Erlendur Stefánsson. Siglfirðingur er nú ofurlítið öðruvísi til fara en endranær, og er sú orsök til þess, að Sigluarðarprentsmiðja hefur fengið setjaravél af allra nýjustu amerískri gerð. Er þetta mikil framför og ber vott um stórhug og dugnað prentsmiðju- eigandans. Úr bæjarblöðunum Ólafur Þ. Þorsteinsson. (Siglfirðingur 14. júní 1942) Ingvar Guðjónsson Ragnar Jóhannesson

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.