Fréttablaðið - 01.06.2022, Page 3

Fréttablaðið - 01.06.2022, Page 3
Fjöldi rúta var seldur úr landi í faraldrinum. 1 0 6 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 1 . J Ú N Í 2 0 2 2 Mismunandi kerfi Ingunnar Tonn af ís í bakpoka Menning ➤ 18 Lífið ➤ 20 Kórónafaraldurinn leiddi til þess að fyrirtæki í ferða- þjónustu þurftu að selja frá sér rútur. Heljarstökk úr engu í brjálaða eftirspurn þýðir að stóra bíla vantar til að flytja ferðamenn. bth@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Skortur á rútum mun að óbreyttu koma í veg fyrir að allir þeir erlendu ferðalangar sem vilja bóka ferðir innanlands fái vilja sínum framgengt í sumar. Töluverð brögð voru að því á Covid-tímanum þegar allt lá niðri að fyrirtæki seldu stóra bíla úr landi til að halda velli, ekki síst rútur. Nú þegar ferðaþjónustan tekur hraðar við sér en nokkur sá fyrir horfir í skort á rútubílum. Guðmundur Jónasson ehf. er eitt rótgrónasta rútufyrirtæki landsins. Stefán Gunnarsson forstjóri segir brjálað að gera. Ekki bara í f lutn- ingum heldur sé uppselt á hótelum víða um land út sumarið. „Við gengum í gegnum Covid, svo urðu launahækkanir og nú kemur mikil hækkun á aðföngum, ekki síst eldsneyti. Þetta hafa verið brekkur en sem betur fer er ferðaþjónustan að taka ótrúlega vel við sér,“ segir Stefán. Reyndar svo vel að óvíst er hvort hægt verður að inna af hendi umbeðna þjónustu af hálfu erlendra viðskiptavina. „Margar ferðaskrifstofur sem sinna skemmtiferðaskipum eru með hjartað í brókunum yfir að fá ekki nógu marga rútubíla,“ segir Stefán. Gunnar Tryggvason, starfandi hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir um umskiptin: „Svona er bransinn. Fyrst héldu menn að sér höndum en nú verða vaxtarverkir þegar stíflan losnar.“ n Rútuskortur hindrar að farþegar komist í ferðalög NÚ ER TÍMI FYRIR SUMMER SALE sinfonia.is á Listahátíð í Reykjavík BARBARA HANNIGAN 3.& 4. JÚNÍ ORKUMÁL Landsvirkjun leggur ekki áherslu á að fá nýja stórnotendur í málmiðnaði eða hrávöruvinnslu í viðskipti á næstu árum. Útflutn- ingur orku er ekki heldur í forgangi. Þetta kemur fram í aðsendri grein frá Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, í blaðinu í dag. Í forgangi verður að sinna inn- lendum orkuskiptum, styðja við aukna stafræna vegferð, þó ekki rafmyntavinnslu. Einnig verður áhersla lögð á nýsköpun, meðal annars í f jöl- nýtingu og matvælavinnslu sem krefst orku og stuðlar að fjölbreytni atvinnulífs víða um land. Landsvirkjun hyggst einnig styðja við framþróun núverandi stórnot- enda. SJÁ SÍÐU 12 Nýsköpun og orkuskipti verði í forgangi næstu ár SJÁVARÚTVEGUR „Mér finnst orð- ræðan um íslensk fyrirtæki sem stunda veiðar og vinnslu á köflum svolítið skrýtin. Það á að þrengja að fyrirtækjum sem eru í veiðum og vinnslu á villtum fiski og kallað er eftir því að þau verði brotin upp,“ segir Þor- steinn Már. Á sama tíma bendir forstjóri Samherja á að laxeldisfyrirtækin vaxi hratt og séu stærri en stærstu hefðbundnu sjávarútvegsfyrir- tækin. „Þessi laxeldisfyrirtæki eru í meirihlutaeigu Norðmanna, sem voru tilbúnir til að koma með þolinmótt fjármagn og þekkingu inn í greinina.“ Þorsteinn Már rýfur langa fjöl- miðlaþögn með viðtali við Frétta- blaðið í dag. SJÁ SÍÐU 4 Þorsteinn Már rýfur þögnina Listahátíð í Reykjavík hefst í dag og stendur til 19. júní. Við Hallgrímskirkju hefur listakonan Steinunn Þórarinsdóttir komið fyrir skúlptúrum af nöktum og brynjuðum mönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.