Fréttablaðið - 01.06.2022, Page 14
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Hrafn Þórólfsson
Svöluhöfða 11,
270 Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 2. júní kl. 13.
Margrét Ragnarsdóttir
Hólmfríður Hemmert Sigurðardóttir Örn Franzson
Ragnhildur Hemmert Sigurðardóttir Sigurður Torfi
Sigurðsson
Ernir Hrafn Arnarson Anna Gunnlaug
Friðriksdóttir
Þórólfur Sigurðsson
Margrét Helga Hemmert Arnardóttir
Hrafnhildur Svava Hemmert Sigurðardóttir
og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Lilja Magnúsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
föstudaginn 20. maí.
Jarðsungið verður fimmtudaginn 2. júní
frá Háteigskirkju kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið.
Guðbjörn Baldvinsson Ingibjörg Sigurðardóttir
Lilja Baldvinsdóttir
Kristján Árni Baldvinsson
Magnús Þ. Baldvinsson Bettina Wilhelmi
Halldór Baldvinsson Katrín Garðarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir,
dóttir, tengdamóðir, systir,
mágkona og amma,
Margrét Kristjánsdóttir
Fróðengi 16, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut, sunnudaginn 29. maí.
Útför hennar fer fram í Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 9. júní kl. 13.
Sigríður Tinna Jóhannsdóttir
Kristján Ingi Jóhannsson
Sigríður Sigurðardóttir
Björgvin Hörður Arnarson
Sigrún Una Kristjánsdóttir
Jón Valur Smárason
Tara Sif Ólafsdóttir
Margrét Lilja Ólafsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
Margrét Sigurðardóttir
lést sunnudaginn 15. maí.
Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju, miðvikudaginn
1. júní kl. 13.
Dætur, tengdasynir, barnabörn og systur.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Halldór Þ. Þorsteinsson
Vararvegi 4, Garði,
lést 26. maí 2022.
Útförin verður auglýst síðar.
Tómas Þ. Halldórsson Jessica Agan Macasarte
Þorsteinn A. Halldórsson Lilja Dís Birgisdóttir
Helga S. Halldórsdóttir Snæbjörn Óttarsson
Anna Halldórsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir mín og amma okkar,
Þóra Þorgrímsdóttir
fyrrum starfsmaður
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna,
áður til heimilis að
Ljósheimum 18a í Reykjavík,
lést fimmtudaginn
26. maí á hjúkrunarheimilinu
Hrafnistu í Reykjavík.
Útför hennar fer fram frá
Langholtskirkju, mánudaginn
13. júní kl. 13.00.
Heiða Sigurrós Gestsdóttir
Svanur Þór Stefánsson
Gestur Magnús Stefánsson
og Selma Rós Oruc
Hjartans þakkir sendum við þeim
sem heiðruðu minningu elsku
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, stjúpföður og afa,
Benedikts Geirssonar
fv. framkvæmdastjóra,
og sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát hans og útför.
Helga Möller
Runólfur Geir Benediktsson Guðrún J. Georgsdóttir
Bergrún Elín Benediktsdóttir Samúel Orri Samúelsson
Katrín Johnson
og barnabörn.
Ástkær bróðir okkar og frændi,
Halldór Vilhjálmsson
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
26. maí síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju
föstudaginn 3. júni klukkan 11.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs.
Streymt verður frá athöfninni á slóðinni:
www.hafnarkirkja.is.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir Heiður Vilhjálmsdóttir
systrabörn og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ingi Einar Jóhannesson
frá Dynjanda,
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri Ísafirði
miðvikudaginn 25. maí.
Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju
föstudaginn 3. júní kl. 14. Streymt verður frá útförinni á
Facebook-síðu Viðburðastofu Vestfjarða.
Alda S. Gísladóttir
Elvar G. Ingason Dagný S. Geirsdóttir
Brynjar Ingason Guðbjörg R. Jónsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Árni Pálsson
rafvélavirki frá
Raufarhöfn,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 3. júní kl. 13.00.
Streymt verður frá útförinni á YouTube-síðu
Grafarvogskirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Hallgerður Pétursdóttir
Una Hólmfríður Kristjánsdóttir
Þórarinn Valur Árnason Katrín Guðrún Pálsdóttir
Una Kristín Árnadóttir Björn Sverrisson
Páll Hjaltalín Árnason Friðborg Hauksdóttir
afabörn og langafabarn.
Verkið Snákur er samstarfsverk-
efni Rauða krossins og Borgar-
leikhússins. Listamennirnir að
baki verkinu eru innflytjendur og
hælisleitendur.
arnartomas@frettabladid.is
„Æfingarnar eru búnar að vera áhuga-
verðar þar sem listamennirnir fá
stundum boð í atvinnuviðtal og þurfa
að þjóta,“ segir Elisabeth Nienhuis, höf-
undur sýningarinnar Snákur sem sýnd
verður í Borgarleikhúsinu í kvöld. „Það
hefur verið áhugavert að upplifa að setja
upp sýningu þar sem leikhúsið er ekki
í fyrsta sæti hjá fólki heldur lífið sjálft,
sem er öfugt farið við venjulegar leik-
sýningar.“
Listafólkið að baki sýningunni er inn-
f lytjendur og hælisleitendur og segir
Elisabeth að verkefnið hafi komið til í
kringum leiklistartengt sjálfboðastarf
hennar hjá Rauða krossinum. „Fleira
og fleira fólk kom til mín í hverri viku.
Margir eignuðust góða vini og þau áttuðu
sig svo á að þau vildu fá að komast á svið,“
útskýrir Elisabeth sem segir listafólkið að
baki verkinu vilji fá að kynnast íslensku
fólki. „Mörg þeirra eru feimin við að tala
við fólk á Íslandi því þeim finnst þau
koma fyrir eins og útlendingar sem eru
að ónáða fólk. Þess vegna langaði þeim
að koma fram á sviði til að geta tjáð sig
og sýnt öðrum hver þau eru.“
Samstilltur hjartsláttur
Þannig snýst Snákur um hugrekki þess
að bera sig eftir björginni og að aðlagast
nýjum heimkynnum. En hvaðan dregur
sýningin nafn sitt?
„Eitt af því sem við gerðum í tímunum
hjá Rauða krossinum var að haldast í
hendur, hlaupa um og mynda þannig
eins konar snák,“ segir Elisabeth. „Enska
er ekki annað mál hjá flestum sem tala
mest arabísku, úkraínsku og spænsku.
Þegar við mynduðum snákinn áttum við
auðvelt með að skilja hvert annað. Hvort
sem viðkomandi var níu ára eða sextíu
ára – fólki fannst það bara gaman.“
Listafólkið sem stendur að sýningunni
á það þó sameiginlegt að upplifa mikla
óvissu og hefur tveimur af flytjendum
verksins verið vísað af landi brott. Elisa-
beth segir þó ótrúlega upplifun að fá að
vinna í kringum fólk með jafn ólíkan
bakgrunn og raun ber vitni í sýningunni.
„Hversu mikil ringulreið sem myndast
þá kemur fólk alltaf saman til að einbeita
sér að lokum,“ segir hún. „Ein sem er tólf
ára gömul frá Hondúras sagði mér að
hjartsláttur milli fólks samstilli sig en
andardrátturinn ekki. Ólíkur bakgrunn-
ur eða aldur fólks hefur ekki valdið okkur
vandamálum.“
Sýningin fer fram klukkan 20 í kvöld.
Aðgangur er ókeypis en sækja þarf miða
í gegnum tix.is. n
Fjölskrúðugur snákur í Borgarleikhúsinu
Sýningin er
að mestu án
orða.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR