Fréttablaðið - 01.06.2022, Síða 24

Fréttablaðið - 01.06.2022, Síða 24
Áhorfand- inn gengur inn í sal þar sem mörg kerfi koma saman og hvert kerfi fylgir eigin reglu. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir sýnir nýtt verk á sýningunni Ekkert er víst nema að allt breytist, í Listasafni Íslands. Verk hennar er fjölþætt innsetning sem stýrist af mismunandi þáttum. „Upphaflega kveikjan að verkinu var hugleiðing um það hvort heim- urinn sé í eðli sínu óreiðukenndur eða reglulegur. Ég hef skoðað kerfi vítt og breitt, bæði manngerð kerfi og kerfi í náttúrunni og velt því fyrir mér hvort það sé eitthvað undir niðri sem stýri öllu eða hvort allt Sjálfstæði og frjáls vilji „Ég set saman mörg mismun- andi kerfi og bý til einn heim,“ segir Ingunn Fjóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is byggist á tilviljunum. Ég velti fyrir mér hvort óreiða sé yfir höfuð til eða hvort hlutir birtist óreiðukenndir fyrir okkur af því við erum svo smá að við sjáum ekki heildarmyndina. Ég er uppfull af spurningum en hef ekki nein ákveðin svör,“ segir Ing- unn Fjóla. Verk sem breytist Hún lýsir innsetningunni nánar: „Ég set saman mörg mismunandi kerfi og bý til einn heim. Áhorfand- inn gengur inn í sal þar sem mörg kerfi koma saman og hvert kerfi fylgir eigin reglu. Ákveðnir hlutir í rýminu hreyfast á meðan aðrir eru kyrrir. Þannig breytist verkið stöðugt. Sumar breytingarnar eru tölvu- stýrðar og innbyggðar í verkið. Sem dæmi um það eru hamrar sem slá á píanóstrengi. Sex strengir eru í rým- inu og það er slegið á einn þeirra á mínútufresti, næsta á tveggja mín- útna fresti, þriðja á þriggja mínútna fresti og svo framvegis. Ljósin lýsa upp salinn hægt og rólega og svo dofna þau smám saman aftur, þann- ig að þar er líka ákveðinn taktur. Aðrir mótorar keyra þræði og er stýrt af hreyfiskynjurum, þannig að áhorfandinn hefur áhrif á inn- setninguna. Þegar enginn er inni í rýminu eru þessir þræðir kyrrir.“ Litlar reglur Sýningin er greinilega þaulhugsuð. Um það segir Ingunn Fjóla: „Ég er mjög upptekin af kerfum, reglum og mynstrum og allt inni í rýminu fylgir einhverjum takti. Hann sýnist kannski ekki alltaf lógískur en er það fyrir mér. Allt er fullt af litlum reglum sem ég hef skapað og mætast á sýningunni.“ Litirnir á sýningunni eru heldur ekki tilviljun. Frístandandi rammar á gólfinu eru fjólubláir. „Ég vildi að rammarnir væru allir eins á litinn. Fjólublár poppaði upp í hausnum á mér, hlutlaus litur sem er hvorki karl- eða kvenlegur og er sjaldgæfur í náttúrunni.“ Á veggjum salarins eru grænir tónar öðrum megin og rauðir hinum megin, en á milli þeirra glitt- ir í gula tóna. „Þar er ég að hugsa um merkjakerfi sem við höfum skapað, rautt og grænt stýrir því hvar skip sigla milli vita og við þekkjum öll rauða, græna og gula liti umferðar- ljósa, en rautt og grænt getur einnig táknað útgang og inngang. Á sýningunni er ég að vísa í mis- munandi kerfi, bæði tæknileg og hugmyndaleg, og skoða sameigin- lega f leti þeirra í víðu samhengi. Með því mætti segja að ég velti upp spurningum um sjálfstæði og frjálsan vilja einstaklingsins,“ segir Ingunn Fjóla. n kolbrunb@frettabladid.is Herdís Mjöll Guðmundsdóttir fiðlu- leikari og Liam Kaplan píanóleikari bjóða í tónlistarferðalag um Banda- ríkin á tónleikum á vegum 15:15 tónleikasyrpunnar í Breiðholts- kirkju laugardaginn 4. júní. Á efnisskránni verða Romance eftir Amy Beach, Bird as Prophet eftir Martin Bresnick, String Poetic eftir Jennifer Higdon, Jhula Jhule eftir Reena Esmail og Road movies eftir John Adams. Verkin eiga það sameiginlegt að vera skrifuð á sein- ustu 100 árum í Bandaríkjunum og sækja innblástur í landslag og menningu landsins. Herdís hefur komið fram sem ein- leikari og sigrað í keppnum á Íslandi og Bandaríkjunum. Hún var einn af sigurvegurum í einleikarakeppni Listaháskólans og Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands árið 2016. Hún vann konsertkeppni Oberlin Conserva- tory árið 2020. Liam hefur unnið til verðlauna fyrir píanóleik og tónsmíðar. Hann var í fyrsta sæti í konsertkeppnum í Oberlin Conservatory og Aspen Music Festival. Hann vann BMI- verðlaun fyrir ung tónskáld árið 2019 og hefur gefið út tvær einleiks- plötur sem innihalda seinni hluta Das Wohltemperierte Klavier og Goldberg-af brigðin eftir J.S. Bach. Seinni plata Liams inniheldur einn- ig átta prelúdíur eftir hann sjálfan og Orpheus Suite eftir Elizabeth Ogonek. n Ferðalag með Herdísi og Liam Liam og Herdís verða í Breiðholtskirkju. MYND/AÐSEND Verkin sækja inn- blástur í landslag og menningu landsins. kolbrunb@frettabladid.is Dómkórinn í Reykjavík fagnar nýju sumri þar sem flutt verða íslensk kórverk úr ólíkum áttum undir stjórn Kára Þormar. Tónleikarnir fara fram í Hallgrímskirkju, í kvöld 1. júní, og hefjast klukkan 20.30. Verkin eiga það sammerkt að vera samin á undanförnum áratugum, það elsta frá 1971 en yngstu verkin voru skrifuð fyrir Dómkórinn. Nýju verkin eru þrjú talsins, eftir þau Arngerði Maríu Árnadóttur, Hafstein Þórólfsson og Hreiðar Inga Þorsteinsson. Að auki heyrast verk eftir Smára Ólason, Pétur Þór Bene- diktsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Stefán Arason, Sigurð Sævarsson, Atla Heimi Sveinsson, Martein H. Friðriksson, Önnu Þorvaldsdóttur, Báru Grímsdóttur, Sigurð Flosason og Jón Ásgeirsson. n Dómkórinn í Hallgrímskirkju Dómkórinn flytur íslensk kórverk úr ólíkum áttum. MYND/AÐSEND Verkin eiga það sam- merkt að vera samin á undanförnum ára- tugum 18 Menning 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.