Fréttablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 26
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Ég er með táknrænum hætti að endurgreiða skuld mína við íslenska náttúru. Innblásinn af goðsögninni um Sísýfos hefur belgíski lista­ maðurinn Floris Bocca negra í tvö ár ætlað sér að skila tonni af ís upp á topp jökulsins fyrr­ verandi, Oks, með táknræn­ um gjörningi um þversagnar­ kennt samband ferðafólks og fagurrar náttúru. toti@frettabladid.is Snemmsumars 2020 sagði belgíski konseptlistamaðurinn Floris Bocca­ negra Fréttablaðinu frá hugmynd sinni að listgjörningnum Sisyphus 2.0 þar sem hann ætlaði að skila 500 kílóum af ís upp á topp Oks sem þá hafði misst stöðu sína sem jökull. Þá ætlaði hann að ýta hálfu tonni af frosnu jökulvatni í stærðarinnar kúlu upp á tind Oks vegna þess að „fyrir mér eru örlög Oks fyrsta tákn­ ið um áþreifanleg áhrif hnattrænnar hlýnunar í Evrópu.“ Gjörningur verður skuld Heimsfaraldurinn setti síðan öll áform Floris á ís en hann er hvergi af baki dottinn og er aftur kominn á kreik með dálítið breytta útgáfu af frumhugmyndinni. „Núna get ég loksins haldið áfram þar sem frá var horfið þótt hug­ myndin að gjörningnum hafi breyst aðeins í millitíðinni og nú heitir hann Sísýfosarskuldin.“ Fréttin um áform Floris vakti nokkra athygli og viðbrögð sem urðu til þess að hann ákvað að gefa fleirum tækifæri til að taka þátt með því að mynda mennska keðju sem síðan myndi handlanga 1.000 kíló af frosnu vatni, í 500 tveggja kílóa ísstöngum, upp á topp Oks. Kaldhæðnisleg þversögn „Nú ætla ég að gera þetta einn og skila einu tonni af ís aftur á topp eldfjallsins þar sem jökullinn Ok var áður. Ég hef þetta 1.000 kíló vegna þess að það er um það bil jafn mikill ís og ég mun bræða óbeint með því að koma til Íslands með f lugvél,“ segir Floris sem notaði sérstaka reiknivél sem sýnir raunveruleg áhrif flugferða á umhverfið. „Þversögnin í þessu er að fólk sem kemur til Íslands til þess að sjá jökl­ ana og fegurð ísilagðs landslagsins tekur óbeint þátt í að eyðileggja það sem þau eru komin til þess að sjá. Þannig að ég er með táknrænum hætti að endurgreiða skuld mína við íslenska náttúru.“ Byrjaður í ræktinni Floris stefnir að því að skila ísnum á „sinn stað“ í byrjun október og er þegar byrjaður að undirbúa sig á göngubrettinu í ræktinni heima í Brussel. „Ég þarf að vera í góðu formi vegna þess að ég reikna með að þetta verði 40 ferðir á toppinn, sem mér skilst að sé í 1.198 metra hæð, þann­ ig að þetta jafngildir því að klífa Everest 5,4 sinnum,“ segir Floris sem ætlar að bera 25 kíló af frosnu jökul­ vatni í hverri ferð. „Það verður vandlega búið um ísinn í séreinangruðum bakpoka og ég held mér ætti að takast þetta á þremur dögum. En til þess að þetta gangi upp þarf ég að komast til og frá Oki, einfaldan frysti til að gera ísklumpana og gistingu fyrir mig og ljósmyndarann minn í nágrenni við Ok. „Ég stefni á að koma til Íslands fljótlega til þess að undirbúa gjörn­ inginn en veit ekki enn nákvæmlega hvenær það verður,“ segir Floris sem hefur aldrei komið til Íslands og bætir við að hann muni þurfa aðstoð við ýmis hagnýt atriði og hvetur alla sem vilja leggja honum lið og taka þátt í gjörningnum til þess að senda honum tölvupóst á boccanegrart@ gmail.com. Þá er hægt að fylgjast með honum og listsköpun hans á Instagram: f_boccanegra og boccanegra.org. n Nánar á frettabladid.is Kolefnisjafnar Íslandsferð með tonni af ís í bakpoka Floris Boccanegra við eitt verka sinna heima í Brussel þaðan sem hann ætlar að koma til þess að rétta hlut Oks sem ekki telst til jökla lengur. MYND/AÐSEND toti@frettabladid.is Volaða land, eftir Hlyn Pálmason, gerði góða ferð til Cannes þar sem hundurinn Jökull hreppti hunda­ verðlaunin Grand Jury Prize í keppninni The Palm Dog Award. Dómnefnd Palm Dog horf ir einfaldlega á allar myndir með hundum í á hátíðinni og veitir þeim hundi sem þykir hafa staðið sig best verðlaunin við hátíðlega athöfn. Þetta var í 21. skipti sem Hunda­ pálminn var veittur og til þess að setja þetta afrek Jökuls í samhengi má benda á að Tilda Swinton og Quentin Tarantino hafa tekið við þessum verðlaunum en hundar úr Tarantino­myndunum Inglourious Bast erds og Once Upon a Time in Hollywood fengu verðlaunin 2009 og 2019. Jökull átti ekki heimangengt þannig að Anton Máni Svansson og Katrin Pors, framleiðendur mynd­ arinnar, tóku við verðlaununum fyrir loppu óvæntustu stjörnunnar í Volaða land. „Þau finna eins líka hunda og þau geta til að koma upp á svið með sig­ urmyndunum. Það var nokkuð erf­ itt í okkar tilfelli með okkar íslenska fjárhund,“ segir Anton Máni og getur ekki varist brosi enda ekki á hverjum degi sem íslenskur kvik­ myndaframleiðandi kemur heim með verðlaun frá Cannesjum. n Nánar á frettabladid.is Jökull hlaut Hundapálmann í Cannes Katrin og Anton í góðum málum með verðlaunaólina á milli sín. FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 SCOTT Hornsófi úr sterku koníaksbrúnu bonded leðri (leðurblöndu). Sterkir fætur úr svörtu járni. Hægra eða vinstra horn (ekki færanlegt). Stærð: 293 x 217 x 85 cm. MATTEO Borðstofuborð, spónlögð svört eik. Ø140 cm. 195.993 kr. 279.990 kr. 74.993 kr. 99.990 kr. 48.743 kr. 64.990 kr. 132.993 kr. 189.990 kr. 23.996 kr. 59.990 kr. ÚTSALA SUMAR ALLT AÐ 60%AFSLÁTTUR 30% 60% 25% 25% 30% SLIT Borðstofustóll. Eikargrind og leðurseta. SOLI Sófaborð. Ø45 cm. GRAN Hægindastóll. Rust, svartur eða hvítur. 20 Lífið 1. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.