Fréttablaðið - 02.06.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 02.06.2022, Blaðsíða 12
Ég er alveg einstaklega montinn af þessu starfsfólki sem vinnur niðri í Vatnsmýri. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Árið 2008 fór Íslensk erfðagreining nánast í þrot en var bjargað af sömu fjárfestum og tóku þátt í að stofna félagið. magdalena@frettabladid.is Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, segir að mikilvægt sé að tryggja að tækin sem við notum á degi hverj- um tali íslensku. Sendinefnd hélt út til að heim- sækja stóru tæknifyrirtækin í þeim tilgangi að stuðla að því að tækin tali íslensku. Nefndin var skipuð forseta Íslands, forsetaritara, Jóhönnu Vigdísi, framkvæmda- stjóra Almannaróms, Björgvini Inga Ólafssyni, stjórnarmanni Almannaróms, Stefaníu Halldórs- dóttur, stjórnarformanni Almanna- róms, Halldóri Benjamín Þorbergs- syni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra. Markmið nefndarinnar var að koma máltæknilausnum inn í tækni- og hugbúnaðarlausnir þess- ara tæknirisa sem eru með lausnir sem við notum alla daga. Nefndin heimsótti Microsoft, Apple, Ama- zon, Meta/Facebook og Open AI. „Það var magnað að upplifa alla möguleikana sem gervigreindin opnar og mun breyta öllu sem við gerum,“ segir Jóhanna Vigdís og bætir við að tryggja þurfi að tækin tali íslensku. „Við áttum góða fundi með for- svarsmönnum tæknirisanna en næsta skref er að fylgja þessu eftir. Því það er eitt að eiga stefnumótandi fundi og annað að koma hlutunum í verk.“ Jóhanna segir auk þess að í þess- ari sendiför hafi þau myndað sterk tengsl við rannsóknar- og þróun- araðila hjá tæknifyrirtækjunum og að þau tengsl muni nýtast mjög vel í komandi vinnu. „Næst á dagskrá er að ráðast í nokkurs konar viðskiptaþróun og koma íslenskunni í þessi helstu tæki.“ Jóhanna segir að þetta skref sé einnig liður í að varðveita menn- ingarlegan fjölbreytileika. „Þetta snýst ekki bara um að tr yg g ja f ramtíð íslensk unnar heldur líka að ryðja brautina fyrir önnur smærri tungumál í tæknina og með því varðveita menningar- legan fjölbreytileika. Tungumála- fjölbreytileiki er forsenda menn- ingarlegs fjölbreytileika þar sem menningin er í raun varðveitt í tungumálinu. Það er þetta sem er svo mikilvægt.“ Jóhanna bætir við að það sé í raun undir tæknirisunum komið hvort smærri tungumál lifi áfram. „Það hvort tungumál séu í tækj- unum hefur mikið að segja varð- andi hvort þau lifi áfram eða ekki. Því er mikilvægt að það eigi sér stað vitundarvakning hjá tækni- risunum og að þeir séu leiðandi í því að koma smærri tungumálum inn í tækin sín.“ n Mikilvægt að tryggja að tækin tali íslensku Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Af fimmtán líftæknifyrir- tækjum sem voru stofnuð í sama tilgangi er Íslensk erfða- greining það eina sem enn lifir. Öll stærstu lyfjafyrir- tæki heims reyna um þessar mundir að kaupa eða stofna fyrirtæki sem skapa þekkingu á borð við þá sem verður til í Vatnsmýri. ggunnars@frettabladid.is Líftæknifyrirtækið Íslensk erfða- greining stendur á tímamótum því 25 ár eru liðin frá því fyrirtækið var stofnað. Með rannsóknum á erfðaefni Íslendinga leitar fyrirtækið orsaka margra alvarlegustu sjúkdóma sem þekkjast í heiminum. Yfir 160 þúsund Íslendingar hafa tekið þátt í rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar og gefið lífsýni og samþykki til að upplýsa um arf- gerð, heilsufar og lífshætti. Vegna þessarar nálgunar fyrirtækisins við rannsóknir hefur það oft verið á milli tannanna á fólki og jafnvel þótt ganga of langt. K á r i St ef á n s son, for st jór i Íslenskrar erfðagreiningar, segir það oft hafa tekið á að berjast fyrir tilverurétti fyrirtækisins. Ekki síst á upphafsárunum. Íslenskt vísinda- samfélag hafi til að mynda haft miklar efasemdir um fyrirtækið. Í dag sé staðan hins vegar önnur. „Það hefur aldrei í sögunni verið jafnmikil gróska í rannsóknum á sjúkdómum og einmitt nú. Þessi gróska er tilkomin vegna þess að þeir möguleikar hafa opnast að vinna á jafnkerfisbundinn hátt og við gerum.“ Að sögn Kára hefur Íslensk erfða- greining alltaf verið skrefi á undan öðrum í faginu. Það hafi einkennt fyrirtækið frá upphafi. „Þá er ég líka að tala um gífurlega kraftmiklar háskólastofnanir í Bandaríkjunum sem hafa reynt að gera það sama og við erum að gera.“ En 25 ára saga félagsins hefur ekki verið samfelld sigurganga. Að mörgu leyti voru fyrstu árin dæmi- gerð saga sprotafyrirtækis að mati Kára. Stofnendur hafi farið af stað með hugmynd en síðan hafi bilið á milli þess sem verið var að skapa og möguleikans á að nota það til að afla fjármagns verið stærra en talið var í upphafi. Árið 2008 fór Íslensk erfðagrein- ing nánast í þrot en var bjargað af sömu fjárfestum og tóku þátt í að stofna félagið. „Við vorum næstum því tíu árum of snemma í að setja þetta upp. Þær aðferðir, sem gerðu það að verkum að við skiluðum árangri, komu of seint. Þær komu ekki til sögunnar fyrr en í kringum 2006,“ rifjar Kári upp. Af fimmtán sambærilegum fyrir- tækjum sem stofnuð voru á sama tíma er Íslensk erfðagreining það eina sem lifir enn í dag. „Þetta bjargaðist en þetta voru erfiðir tímar. Þess vegna er ég alveg einstaklega montinn af starfsfólk- inu sem vinnur niðri í Vatnsmýri. Þegar við vissum ekki einu sinni hvort við ættum fyrir laununum þeirra um næstu mánaðamót þá mætti þetta fólk alltaf í vinnuna, vann af einstökum dugnaði og skil- aði gífurlega góðum árangri. Sem er meðal annars ástæðan fyrir því að fjárfestarnir höfðu trú á okkur og komu okkur aftur á fætur.“ Sú ákvörðun reyndist farsæl því nokkrum árum síðar steig stórt lyfjafyrirtæki inn og keypti fyrir- tækið. „Amgen keypti okkur fyrir tíu árum og þau voru skrefi á undan öðrum í þessum iðnaði. Nú eru allir að reyna að fylgja þeirra fordæmi og eru ýmist að reyna að kaupa sam- bærileg fyrirtæki eða byggja þau upp frá grunni,“ segir Kári. „Það má raunverulega segja að allt frá árinu 2002 hafi allir í okkar geira verið á þeirri skoðun að við værum sá hópur sem væri leiðandi í heim- inum á sviði erfðafræði.“ Kári segist vart geta verið stoltari af því sem Íslensk erfðagreining hefur áorkað. „Við höfum gert tíma- mótauppgötvanir á sviði erfðafræði allf lestra algengustu sjúkdóma mannsins.“ „Hópurinn sem skipar Íslenska erfðagreiningu í dag er að stórum hluta sá sami og byrjaði hjá okkur fyrir 25 árum. Gífurlega reynslu- mikill hópur og f lott fólk. Það er í raun merkilegt, þegar maður veltir því fyrir sér, að þessi hópur vísinda- manna er settur saman úr mengi 360 þúsund manns. Engu að síður hefur okkur tekist að raða saman teymi sem er betra en nokkurt annað í heiminum. Við þá gerð af vísindarannsóknum í líffræði sem eru einna lengst komnar. Þannig að ég er feikilega stoltur,“ segir Kári Stefánsson. n Áttu ekki fyrir launagreiðslum þegar verst lét Kári Stefáns- son, forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar, rakti sögu fyrirtækis- ins á Hringbraut í gærkvöldi. MYND/HRINGBRAUT 12 Fréttir 2. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 2. júní 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.