Fréttablaðið - 02.06.2022, Qupperneq 26
Tíska sem var vinsæl á
tíunda áratugnum er að taka
sig upp aftur með sumar-
komu. Það eru svokall-
aðir „bucket“ hattar sem allt
fræga og fína fólkið er farið
að láta sjá sig með þessa dag-
ana. Prada, Gucci og Loewe
kynntu þá til sögunnar sem
sumartískuna 2022.
elin@frettabladid.is
Margir setja á sig hatt til að verja
sig fyrir sólinni, aðrir til að hylja
óhreint hár og enn aðrir til að
fylgja nýjustu tísku. Það er ákaf-
lega merkilegt að Prada-hatt-
arnir, sem fást í sjö litum, eru
unnir úr endurunnu nælongarni
sem safnað var úr hafinu. Þetta
er hreinsað plastsorp sem hefur
komið frá fiskinetum
og textíl úrgangstrefjum.
Mjög ánægjulegt er þegar hátísku-
húsin hanna vöru á umhverfis-
vænan hátt sem síðan slær í gegn,
enda flottir hattar. Skemmtilegir
litir setja síðan punktinn yfir i-ið.
Hattarnir eru sagðir passa vel við
sumarkjóla eða stuttar gallabuxur.
Sumum finnst þessir hattar barna-
legir í lögun en eftir að Rihanna
sýndi sig með Prada-hatt ásamt
frægustu fyrirsætum heims varð
ekkert barnslegt við þá. Brad Pitt
sást með „fötuhatt“ á Opna banda-
ríska meistaramótinu og sömu-
leiðis Edward Enninful frá breska
Vogue-tímaritinu, meira að segja
við jakkaföt. Það er engin spurning
hvað verður á höfði fólks í sumar
vilji það halda í tískuna og klæða
sig eins og fræga fólkið. n
Tíska sumarsins
situr á höfðinu
Brad Pitt með tískuhattinn ásamt Bradley Cooper á
Opna ameríska mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Rihanna lætur sjá sig með Prada-hattinn og er í bol í stíl.
8 kynningarblað A L LT
Prada-hatturinn,
sem er endurunn-
inn úr fiskinetum
úr sjó og öðrum
úrgangsefnum í
hafinu.
Natalia
Verza er
áhrifavaldur sem
ljósmyndarar hafa
mikinn áhuga á. Hér
með svartan Prada-
hatt í París.
Sonia Ly-
son er leikkona
og er orðin einn
helsti tískuáhrifa-
valdur. Hún gengur
um með appelsínu-
gulan Prada-
hatt.
Gabriella Ber-
dugo er enn einn
áhrifavaldurinn sem eft-
ir er tekið. Hér með svartan
nælonhatt frá Maison Michel
en hann er öflugur hatta-
hönnuður og það er gaman
að skoða heimasíðu hans,
michel-paris.com.
Breska heimilistrygginga-
fyrirtækið Confused.com
komst nýlega að þeirri
niðurstöðu að hálsmenið
The Heart of the Ocean, eða
Hjarta hafsins, úr kvik-
myndinni Titanic frá 1997,
væri verðmætasti skart-
gripur í sögu Hollywood.
Tryggingafyrirtækið setti saman
lista yfir frægustu skartgripina
sem hafa sést í kvikmyndum og
sjónvarpi og fengu svo skartgripa-
verslunina Queensmith til að meta
verðgildi gripanna. Queensmith
komst að þeirri niðurstöðu að
hálsmenið sem tilheyrði per-
sónu Kate Winslet, Rose DeWitt
Bukater, væri það verðmætasta, en
það var metið á rétt tæplega 640,5
milljónir dollara. Hjarta hafsins
var með bláan 56 karata hjarta-
laga demant, sem var innblásinn af
Hope-demantinum.
Í öðru sæti var Toussaint-háls-
menið sem persóna Anne Hatha-
way, Daphne Kluger, bar í kvik-
myndinni Ocean‘s 8, frá árinu
2018. Menið var með rúmlega 136
karata demant og það var metið
á rúmlega 192 milljónir dollara.
Hálsmenið var endurgerð af háls-
meni sem var til á 20. öld.
Í þriðja sæti var gult 128 karata
demantshálsmen sem persóna Gal
Gadot, Linnet Doyle, bar í kvik-
myndinni Death on the Nile, sem
kom út á þessu ári. Það var metið
á tæplega 38,5 milljónir dollara.
Menið var endurgerð á hinum
þekkta gula Tiffany-demanti.
Þegar kom að skartgripum úr
sjónvarpi var niðurstaðan jafntefli
milli trúlofunarhrings Blair Wal-
dorf úr Gossip Girl og trúlofunar-
hrings Díönu prinsessu úr The
Crown. Báðir voru metnir á rétt
tæplega 641 þúsund dollara. n
Verðmætasti skartgripur
kvikmyndasögunnar
Hálsmenið fræga í kvikmyndinni
Titanic. SKJÁSKOT/YOUTUBE
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Þjáist af liðverkjum?
Viðkvæmt ónæmiskerfi? - Of hár blóðþrýstingur?
Arctic Star sæbjúgnahylki
eru framleidd úr íslenskum sæbjúgum
sem eru með:
• Hátt próteininnihald
og lágt fituinnihald
• Fjölbreytar amínósýrur
• Taurín
• Chondroitin súlfat
• Peptíð
• Vítamín og steinefni.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is
2. júní 2022 FIMMTUDAGUR