Fréttablaðið - 02.06.2022, Síða 28
Það skilar sér alltaf
síðar að hugsa vel
um húðina. Það er nauð-
synlegt að hreinsa húð-
ina vel með andlitsmjólk
og andlitsvatni á kvöldin
og jafnvel á morgnana.
Aldrei að fara að sofa
með óhreina húð.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Laufey Birkisdóttir snyrti-
fræðingur hefur ávallt verið
þeirrar skoðunar að við
þurfum að huga að hvað
við setjum á húðina ekki
síður en hvað við setjum
ofan í okkur. Sjálf er Laufey
með fallega húð og aðhyllist
heildræna meðferð þegar
kemur að því að hugsa um
húðina.
Laufey trúir ekki á skyndilausnir
heldur að við séum stöðugt að
hugsa um líkama og sál. „Mín upp-
lifun er sú að það skiptir máli hvað
við borðum og hvað við drekkum
mikið af vatni, hvernig við sofum
og ekki síst hvernig við ræktum
sálina,“ segir Laufey.
Laufey býr á Seltjarnarnesi í
reisulegu húsi, á tveimur hæðum
við sjávarsíðuna, með fjölskyldu
sinni. Á fyrstu hæð hússins er
snyrtistofan Leila Boutique sem
Laufey rekur og þar fá gestir stof-
unnar fyrsta flokks húðmeðferðir
og slökun en Laufey er líka lærður
nuddari sem kemur sér ákaflega
vel í faginu. Sambýlismaður Lauf-
eyjar er Friðrik Karlsson tónlistar-
maður og á heimilinu búa tvö
uppkomin börn Laufeyjar og dóttir
Friðriks.
Þegar kom að því hjá Laufeyju
að mennta sig fór hún út fyrir
landsteinana. „Ég menntaði mig
í Englandi í ensku og viðskiptum
og alþjóðlegri snyrti-, förðunar- og
nuddfræði. Ég hef ávallt haft áhuga
á lífsrækt, en andleg og líkamleg
rækt tengist mínu fagi.“
Umhirða húðarinnar skiptir máli
„Ég fékk áhuga á þessu fagi frá
Maríu móður minni, sem seldi
snyrtivörur á Akureyri. Ég ætlaði
samt í hárgreiðslunám fyrst , en
þar sem ég bjó úti á landi fékk ég
ekki inngöngu fyrr en árið eftir.
Þá æxlaðist það þannig að ég fór í
nám í Englandi.“
Laufey segist alltaf hafa haft
áhuga á umhirðu húðarinnar.
Getur þú gefið okkur góð ráð
um hvað skiptir mestu máli þegar
kemur að því að hugsa vel um
húðina, sérstaklega andlitið?
„Það skilar sér alltaf síðar að
hugsa vel um húðina. Það er nauð-
synlegt að hreinsa húðina vel með
andlitsmjólk og andlitsvatni á
kvöldin og jafnvel á morgnana.
Aldrei að fara að sofa með óhreina
húð. Síðan þarf að bera dag- og
næturkrem og jafnvel serum eða
olíu undir, aldrei að gleyma hálsi
og bringu,“ segir Laufey og bætir
við að vert sé að byrja að nota
augnkrem upp úr 25 ára aldri.
Ljóminn og fegurðin kemur innan frá
Laufey Birkis
dóttir rekur
snyrtistofuna
Leila Boutique
þar sem gestir
stofunnar fá
fyrsta flokks
húðmeð
ferðir og slökun.
Laufey aðhyllist
heildræna með
ferð fyrir húð
og sál.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
„Íslendingar eru gjarnir á að nota
vatn úr krananum til að þvo and-
litið, sem getur þurrkað viðkvæma
húð, en við þurfum að viðhalda
rakanum vel.“
Sólina ber að varast
Nú er hækkandi sól á lofti og sól-
þyrstir Íslendingar spenntir fyrir
að njóta sólarinnar.
Ert þú með einhver töfraráð til
að tryggja að við getum verndað
húðina?
„Eins og sólin getur glatt marga,
þá ber líka aða varast hana, eins og
að setja rakaserum undir og 50+
sólarvörn yfir. Eftir daginn er gott
að nota kornamaska og taka með
sér rakamaska í fríið.“
Meðferðin sem hefur slegið í gegn
Nýja byltingarkennda meðferðin
CACI andlitsmótunin sem þú býður
upp á, getur þú sagt okkur aðeins
frá meðferðinni og eiginleikum
hennar?
„Ég er með alla almenna snyrti-
þjónustu, en legg áherslu á CACI
andlitsmótunina. Fyrirtækið CACI
er búið að þróa meðferðina í 30 ár
og er ég búin að fá 3 ára reynslu
í meðferðinni. Hún byggist á því
að þjálfa andlitsvöðvana með
hljóðbylgju- og loftþrýstitækni til
að fjarlægja dauðar húðfrumur og
djúphreinsa húðina. Ljósaþerapía
og CACI fínulínubaninn. Húð-
endurnýjun og sýnir samstundis
árangur í andliti án þessa að þú
þurfir að fara undir hnífinn. Við
endum síðan meðferðina á öflugri
öldrunarstöðvun með hydra-
tone andlitsmaskanum sem gefur
aukinn raka og endurnýjar og
lífgar upp á húðina.“
Hvernig fréttir þú af þessari
meðferð?
„Ég fór á snyrtisýningu í Bret-
landi og sá þar CACI stjörnumeð-
ferðina sem ég heillaðist svo af.“
Meðferðin hefur notið vin-
sælda hjá viðskiptavinum. „Það
hafa margir prófað hana hjá mér.
Annars vegar kemur fólk reglulega,
eða þá það tekur 3-6-eða 10 skipti
með stuttu millibili. Gaman er líka
að geta þess að augnmaskinn sem
tilheyrir CACI augnmeðferðinni
er verðlaunamaski ársins 2019
og aftur núna í Bretlandi, með
einkunn 15/15. Einnig fékk CACI
andlitsmeðferðin og hydrotone
maskinn verðlaun 2017 og 2020 í
Bretlandi sem bestu andlitsmeð-
ferðir, einkunn 10/10. Allir mínir
CACI-kúnnar hafa fundið fyrir
því að hafa endurheimt æsku-
ljómann, það er meiri raki, þéttari
og stinnari húð og lyfting hefur átt
sér stað.“
Hefur margt breyst í áranna rás
þegar kemur að umhirðu húðar-
innar, með aukinni þekkingu og
reynslu?
„Fólk lifir allt öðruvísi lífi í dag.
Það sem hefur breyst er að fólk lifir
hraðar og vill fá skyndilausnir og
hafa snyrtifyrirtækin tekið mið af
því. Fólk gerir kröfur um umhverf-
isþætti og innihald vara. Allt fer
í hringi. En við verðum að muna
að ljóminn og fegurðin kemur
innan frá, þar byrjum við að bera
virðingu fyrir og þykja vænt um
sjálfið.“ n
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Ruth Bergsdóttir, markaðsfulltrúi
Sími: 694 4103 / ruth@frettabladid.is
Sjómannadagurinn
Í tilefni af sjómannadeginum 2022 ætlum við
á Fréttablaðinu að gefa út sjómannadagsblað.
Laugardaginn 11. júní kemur út sérblaðið
FERMINGARGJAFIR
Fi mtud ginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ót l
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarn r lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
10 kynningarblað A L LT 2. júní 2022 FIMMTUDAGUR