Fréttablaðið - 02.06.2022, Qupperneq 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Þeir eru aumir, mennirnir sem
í skjóli málfrelsis níða aðra að
tilefnislausu. Við þurfum að gera
okkur grein fyrir hvað felst í níði.
Það er ekki níð að gera grín að
fólki í valdastöðu eða að nota sín
sterkustu orð til þess að gagn-
rýna, þvert á móti, það er skylda
okkar sem hafa til þess öflugan
vettvang. Það er heldur ekki níð
að benda á það sem er satt og rétt,
jafnvel þótt það kunni að fara
fyrir brjóstið á landsþekktum
trúbadorum.
Það er níð að nota valdastöðu
sína eða öflugan vettvang til
þess að draga í efa eða gera lítið
úr tilvist heils þjóðfélagshóps.
Það gerist þó það reglulega að
við kippum okkur tæpast upp
við það. Við segjum að málefni
trans fólks séu f lókin og þau þurfi
að ræða í ró og næði, þar sem
undirtextinn er augljóslega að
það þurfi að ræða málefni trans
fólks án aðkomu trans fólks,
þau skilji ekki um hvað málið
snýst. Þetta er svo f lókið mál.
Þetta er svo f lókið mál að okkur
þykir ekkert eðlilegra en að tveir
þekktustu grínistar samtímans
noti eitt stærsta svið heims til
þess að gera lítið úr trans konum.
Á tyllidögum segjast þeir vinna
við að ögra en það er ekki ögrun
að viðhalda ríkjandi kynjakerfi.
Það er þjónandi, þeir eru í beinu
þjónustuhlutverki gagnvart vald-
höfum.
Þetta er ekki f lókið mál, ekki
einu sinni þegar það snýr að
börnum. Trans börn eru til, við
vitum það meðal annars vegna
þess að trans fólk er til. Verndum
trans börn, það virðist því
miður vera ærin ástæða til þess.
Verndum trans börn og hættum
að rökræða tilvist trans fólks.
Það er það allra minnsta sem við
getum gert. n
Málfrelsi
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Allt fyrir
veisluna
Skreytingar
Borðbúnaður
Búningar
Tækjaleiga
MUNA
dagar!
20%
ormsson.is
SAMSUNG
KÆLISKÁPUR USA
AEG VEGGOFN BRABANTIA RUSLAFATA SMEG HRAÐSUÐUKANNA SAMSUNG UPPÞVOTTAVÉL
SAFAPRESSAELECTROLUX BRAUÐRISTELECTROLUX AIRFRYER MOCCAMASTER KAFFIVÉL
*Tax Free jafngildir 19,36% afslætti
Öll eldhústæki á afslætti dagana 1. - 6. júní