Fréttablaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 2
Þórir er 78. leikmaður- inn sem skorar fyrir karlalandsliðið. Haltu mér, slepptu mér Krakkarnir úr Breiðagerðisskóla fengu að kynnast lífríki Elliðaánna í gær þar sem Jóhannes Sturlaugsson hefur haldið námskeið í átta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON AÐALFUNDUR ÍFR 2022 Aðalfundur Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík verður haldinn laugardaginn 11. júní 2022 kl. 14.00 í íþróttahúsi félagsins að Hátúni 14. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórnin Kafarar á vegum íslenska fyrirtækisins iXplorer fundu koníaksflöskur Nikulásar II Rússakeisara á botni Botníu­ flóa. Nú hefur koníaki frá sama tíma verið tappað á flöskurnar. kristinnhaukur@frettabladid.is SAMFÉLAG Koníaksflöskur ætlaðar rússneska keisaranum, sem kafarar íslenska fyrirtækisins iXplorer fundu á botni Eystrasaltsins, hafa nú fengið nýtt hlutverk. Tappað hefur verið á þær rúmlega hundrað ára gömlu koníaki frá sama framleiðanda. Flöskurnar fundust um borð í flaki skipsins SS Kyros í Botníuflóa á 77 metra dýpi. Það var að bíða eftir leysingum vorið 1917 til að komast til Sankti Pétursborgar með farm þegar þýskur kafbátur sökkti því. Um borð voru einnig teinar, skeifur og fleiri málmhlutir sem áttu að fara til rússneska hersins í fyrri heims­ styrjöldinni. Þegar skipinu var sökkt voru miklar væringar í Rússlandi og Nikulás II keisari farinn frá. Ári seinna var hann myrtur af bolsé­ víkum ásamt fjölskyldu sinni. „Þjóðverjunum var alveg sama um koníakið en ekki um vistirnar fyrir rússneska herinn. Þess vegna sprengdu þeir skipið,“ segir hinn rússnesk­íslenski Max Mikhaylov, sem stýrir teyminu. Hann segir að aðgerðirnar hafi verið mjög krefj­ andi, sjórinn aðeins 1 til 2 gráðu heitur, mikil drulla á botninum og lítið skyggni. Verkefnið var í undir­ búningi í fimm ár áður en fyrstu f löskurnar voru sóttar árið 2019. Restinni náðu Max og félagar hans, sem koma meðal annars frá Dan­ mörku, Svíþjóð og Hollandi, upp árið 2021. Af 600 flöskum náðist að bjarga helmingnum, en aðeins 7 innihéldu ómengað koníak sem hægt var að selja. Max vissi ekki hvað hann átti að gera við tómu flöskurnar þannig að hann leitaði að uppruna þeirra og komst að því að þær komu frá norskri fjölskyldu í Bordeaux að nafni Hartmann. Halfdan Hart­ mann hét sá sem sendi Nikulási keisara sendinguna sem aldrei barst og langafasonur hans, Kim Birkedal Hartmann, var enn að framleiða koníak. „Ég hringdi í Kim og hann gat fundið upplýsingar um sendinguna í sínu skjalasafni,“ segir Max. Skipið festist í ís í desember árið 1916 og þann 19. maí var það sprengt af Þjóð­ verjum. Flöskurnar hafa nú verið hreins­ aðar og Hartmann­koníaki frá árinu 1910 tappað á þær. Merkingarnar eru sams konar og voru árið 1916. Ýmislegt fleira fannst í flaki Kyros, svo sem lampar og ýmsar vélar sem áttu að fara til keisarahallarinnar samkvæmt skipsbókinni. Max seg­ ist vonast til þess að geta sýnt þessa muni á Íslandi bráðlega, hugsanlega í Hörpu. Þá segir hann að iXplorer hafi hug á því að gera fleiri kannanir á Íslandi. Við strendur Íslands séu um 4 þúsund flök. „Við finnum sennilega ekki gull eða gimsteina, en ábyggi­ lega verðmæta sögulega muni,“ segir hann. ■ Fundu koníaksflöskur keisarans í sprengdu skipi Unnt var að bjarga um 300 af 600 flöskum af koníaki og Benediktín-líkjör. Þjóðverjunum var alveg sama um koní- akið en ekki um vist- irnar fyrir rússneska herinn. Max Mikhaylov könnuður birnadrofn@frettabladid.is  SAMGÖNGUR Icelandair þurfti í síð­ ustu viku að aðlaga flugáætlun sína vega tafa á f lugvélum úr reglulegu viðhaldi. Vikuna 23.–29. maí var alls tíu f lugum flugfélagsins til og frá Keflavíkurflugvelli aflýst. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsinga­ fulltrúi Icelandair, segir í skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins, að áhersla sé lögð á að breytingar á f lugáætlun hafi sem minnst áhrif á farþega og að koma öllum á sinn áfangastað, helst samdægurs. „Við höfum þurft að fella niður einstaka f lug en öflug f lugáætlun og mikil tíðni á vinsælustu áfanga­ staði okkar hefur gert okkur kleift að leysa þetta að mestu leyti með því að sameina flug innan dagsins,“ segir Ásdís. ■ Icelandair aflýsti tíu flugum á viku Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafull- trúi Icelandair. birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Á tímabilinu frá mars 2020 fram á þriðja ársfjórðung 2021 jókst dánartíðni umtalsvert í Svíþjóð á meðan hún hækkaði smávægilega í Finnlandi og Danmörku en dróst hins vegar saman á Íslandi. Þetta segir á vef Hagstofu Íslands. Í Noregi var dánartíðni lægri á síð­ asta ári sé miðað við árið á undan en þegar uppsöfnuð dánartíðni vegna Covid­19 faraldursins er borin saman á Norðurlöndunum má sjá að hún er langhæst í Svíþjóð. Í september á þessu ári voru upp­ söfnuð dauðsföll á hverja 100 þúsund íbúa í Svíþjóð tæplega 143 en á sama tíma voru þau 8,95 á Íslandi, tæp 16 í Noregi og 45,6 í Danmörku. ■ Dánartíðni mest í Svíþjóð og minnst á Íslandi í Covid kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið er komið á blað í Þjóðadeild UEFA eftir 2­2 jafntefli gegn Ísraelum í Þjóða­ deildinni í gær. Þetta var fyrsta stig Íslands í ellefu leikjum í keppninni. Strákarnir okkar voru lengi af stað og lentu undir í Ísrael þar sem aðstæðurnar voru erfiðar og hitinn mikill. Það sló íslenska liðið ekki út af laginu. Þórir Jóhann Helgason jafnaði metin með fyrsta marki sínu fyrir Íslands hönd og Arnór Sigurðs­ son kom Íslandi yfir í seinni hálfleik. Þegar líða tók á leikinn mátti sjá þreytumerki á íslenska liðinu og náðu Ísraelar að jafna metin undir lok leiksins. ■ Fyrsta stigið kom í jafntefli í Ísrael 2 Fréttir 3. júní 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.