Fréttablaðið - 03.06.2022, Síða 8

Fréttablaðið - 03.06.2022, Síða 8
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Skynsam- leg þjóð- málaum- ræða er að kafna í æsinga- fullum upphróp- unum frá fólki sem er fyrir- munað að sýna still- ingu. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Þjóðmálaumræðan einkennist af æsingi, upphrópunum og fúkyrða­ flaumi. Hugsanlega er hluti skýr­ ingarinnar á þessum látum öllum sú að nútímatækni gefur nánast hverjum sem er gott tækifæri til að tjá sig. Um leið skapast ákveðinn vandi, því hvernig á fólk að láta taka eftir sér þegar svo að segja allir eru að tjá sig? Það er svo óskaplega auðvelt að týnast í fjöldanum. Í hugum margra er lausnin einföld; það er best að æpa sem hæst og fá þannig athygli. Ef viðkomandi er heppinn ratar hann jafnvel í fréttir á netmiðlum. Þá líður við­ komandi vel. Merkilegt hversu margir eru háðir athyglinni. Stundum er eins og þeim finnist þeir ekki vera til nema eftir þeim sé tekið. Við sjáum æsingafull upphlaup svo að segja daglega. Þingmenn, sérstaklega stjórnarand­ stöðunnar, eru sérlega gefnir fyrir þau. Hið sama má segja um ýmsa sjálfskipaða álitsgjafa sem telja af einhverjum ástæðum að alveg sérstök eftirspurn sé eftir skoðunum þeirra. Það er svo sem ekki skrýtið að þeir lifi í þeim misskilningi. Fjölmiðlar, sérstaklega netmiðlar, eru iðnir við að þefa uppi fúkyrðaflauminn og skella glaðhlakkalegir í frétt eins og: D segir að ríkisstjórn Íslands sé fasísk – H segir að Sjálf­ stæðisflokkurinn hati flóttamenn – I segir að Katrín Jakobsdóttir hafi selt sálu sína. Allt skynsamt fólk sér í gegnum þetta. Það veit vel að ríkisstjórn landsins er ekki fasísk. Forystumenn hennar eru þrautþjálfaðir stjórn­ málamenn sem hafa í aðalatriðum staðið sig vel í störfum sínum. Forsætisráðherrann er svo sannur þjóðarsómi. Skynsamleg þjóðmálaumræða er að kafna í æsingafullum upphrópunum frá fólki sem er fyrirmunað að sýna stillingu. Íslandsbanka­ salan er dæmi um þetta. Flestir sem þar æptu hæst um spillingu og viðbjóð hafa litla sem enga þekkingu á málinu – og virðast ekki hafa sérstakan áhuga á að kynna sér það. Þeir gáfu sér fyrir fram að málið væri svínarí. Umræða um málefni útlendinga er á svip­ aðan hátt. Þar er kastað fram fullyrðingum um mannvonsku og fyrirlitningu Sjálfstæðis­ flokksins í garð fólks sem hingað kemur og vill setjast hér að. Um leið eru Vinstri græn stimpluð sem svívirðilega meðvirk. Þetta er ansi einsleit mynd, en því miður virðist lítið rými gefast fyrir hófstillta og vitræna umræðu um þessi mál. Yfirveguð þjóðfélagsumræða á ekki upp á pallborðið í samfélagi þar sem æsingur og tilfinningaofsi eru ráðandi. Við erum ekki á góðum stað. n Fúkyrðaflaumur Sigurður K. Kolbeinsson ræðir við ýmsa þekkta og óþekkta Íslendinga um lífið og tilveruna og sagðar eru skemmtilega sögur og frásagnir aftur í tímann sem mörgum kunna að þykja skemmilegar. Laugardaga kl. 10.00 www.hotelbokanir.is/lifid-er-lag-hladvarp og á Spotify Jón Þór Hannesson er næsti gestur hlaðvarpsins. ser@frettabladid.is Veggfóður Það fer enn þá hrollur um almenning á Íslandi þegar læknar og hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum lýsa vinnuum­ hverfinu við Hringbraut og í Fossvogi, en enn einu sinni er flótti brostinn á á viðkvæmustu deildum spítalans, svo sem á bráðamóttökunni. Læknarnir Tómas Guðbjartsson og Theodór Skúli Sigurðsson spöruðu ekki stóru orðin á Fréttavaktinni á Hringbraut í gærkvöld þegar þeir sögðu að sjúklingar, ekki síst gamalmenni, væru eins og veggfóður uppi um alla veggi deildarinnar á hverjum degi, en þennan vanda spítalans megi einkum rekja til roluháttar stjórnvalda, árum og áratugum saman. Einkavæðing Hér er hraustlega tekið til máls en tilefnið er ærið, enda standa landsmenn frammi fyrir þeirri stóru spurningu hvort ein ríkasta þjóð í heimi hafi ekki efni á að manna æðstu heil­ brigðisstofnun þjóðarinnar og koma því svo fyrir að aldraðir sjúklingar komist ekki í úrræði eftir aðgerðir á spítalanum og endi þar beinlínis sem stranda­ glópar. Má vera að hér sé einhver pólitík að baki, hafa menn spurt af minna tilefni, en langvarandi svelti spítalans er ef til vill til þess gert að réttlæta einkavæð­ ingu í greininni. n Oft sjáum við ekki nema hluta af myndinni. Þannig er það líka með ferðaþjónustuna. Eru margir ferða­ menn í miðbænum? Eru margar rútur á bílastæðinu við Þingvöll? Er hellingur af fólki við Stuðlagil? Fjöldi ferðamannanna, í ýmsu samhengi, er mæli­ einingin sem við notum oft ósjálfrátt. En fjöldi ferðamanna, brottfarartölur frá Kefla­ vík eða það hve margir þeirra sitja á fletum fyrir á kaffihúsum í miðbænum þegar okkur langar í bolla, er hvorki mælieiningin sem skiptir okkur máli, né stóra myndin af atvinnugreininni sem þjónustar ferðamenn. Verðmætin sem ferðamennirnir skilja eftir sig í samfélaginu okkar eru aðalatriðið. Á mörgum stöðum eru það líka þessi verðmæti sem gera það mögulegt að hafa starfandi veitinga­ og kaffihús yfir höfuð. Verðmætin gera það þess virði fyrir samfélagið okkar að bjóða þessum góðu gestum heim. Útflutningstekjur af ferðaþjónustu voru fyrir faraldurinn orðnar meiri en verðmæti af sjávarútvegi og álframleiðslu samanlagt. Og eftir­ spurnin í ár sýnir að það er stutt í að það verði þannig aftur. Árið 2019 nam bein, óbein og afleidd neysla ferðamanna á Íslandi alls um 834 milljörðum króna, eða um 2,3 milljónum króna á hvern íbúa landsins. Og þessi verðmæti hríslast ofan í nær­ samfélög fólks um allt land. Beinar og afleiddar skatttekjur sveitarfélaganna af ferðaþjónustu sama ár voru 41,6 milljarðar króna, eða um 10,6% af heildarskatttekjum þeirra (án jöfnunarsjóðs). Nú þegar ferðaþjónustan kemst á skrið skulum við muna eftir þessum nýju peningum sem eru að mokast inn í samfélagið. Í heildarmyndinni er því mikilvægast að styðja við verðmætasköpun ferða­ þjónustufyrirtækja, ekki hamla þeim með tak­ mörkunum á fjárfestingu, þyngra og kostnaðar­ samara rekstrarumhverfi og meiri sérsköttum. n Allir græða á ferðaþjónustu Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferða­ þjónustunnar SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 3. júní 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.