Fréttablaðið - 03.06.2022, Page 14
Við lifum nú gullöld
steingervingafræð
innar og varla líður sú
vika að ekki finnist
einhvers staðar í heim
inum nýjar og áður
óþekktar tegundir af
risaeðlum. Segja má að
steingervingafræðingar
samtímans séu af Jurass
ic Park kynslóðinni.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Fjórum árum eftir gereyðingu Isla
Nublar lifa risaeðlur frjálsar og
veiða sér til matar við hlið manna
um alla veröldina.
Jafnvægið er brothætt og ljóst að
úrslit munu ráðast um það hvort
maðurinn haldi sínu hlutverki sem
aðalrándýr veraldar á plánetu sem
hann deilir nú með ógnvænlegustu
skepnum veraldarsögunnar.
Hér birtast risaeðlur sem
aldrei hafa sést áður, spennan er
áþreifanleg og beitt er tækni sem
tekur fram öllu sem áður hefur
sést.
Steingervingafræðin hefur aldrei
orðið söm eftir að mynd Stevens
Spielberg, Jurassic Park, var frum-
sýnd árið 1993.
Aldrei fyrr höfðu risaeðlur „af
holdi og blóði“ birst mönnum.
Myndin vakti gríðarlega athygli og
vakti áhuga almennings á þessum
löngu horfnu skepnum. Þetta hafði
áhrif á vísindastarf í háskólum og
framboð á námskeiðum í grein-
inni.
Við lifum nú gullöld stein-
gervingafræðinnar og varla líður
sú vika að ekki finnist einhvers
staðar í heiminum nýjar og áður
óþekktar tegundir af risaeðlum.
Segja má að steingervingafræðing-
ar samtímans séu af Jurassic Park
kynslóðinni.
Jurassic Park og Jurassic World
myndirnar eru byggðar á per-
sónum sem metsöluhöfundurinn
Michael Crichton skapaði. Varla er
til sá kvikmyndaunnandi sem ekki
hefur orðið skelfingu lostinn, fallið
í stafi og fyllst lotningu við að
horfa á sköpunarverk Crichtons og
Spielbergs á hvíta tjaldinu síðustu
þrjá áratugina.
Í Jurassic World Dominion
birtast okkur endalok sögunnar
sem hófst fyrir tæpum 30 árum.
Myndin er ólík öðrum myndum í
myndaflokknum.
Colin Trevorrow hefur í raun
verið gæslumaður og hugmynda-
smiður Jurassic-veraldarinnar í
gegnum þrjár síðustu myndirnar.
„Allt breyttist þegar risaeðlurnar
voru teknar af eyjunni sem þær
höfðu verið einangraðar á og
sleppt út í veröldina,“ segir Tre-
vorrow. „Þetta var stórkostlegt
tækifæri að geta rannsakað afleið-
ingarnar af því. Jurassic World
Dominion fjallar um mikilvægi
þess að virða afl náttúrunnar – ef
okkur bregst bogalistin deyjum
við út, rétt eins og risaeðlurnar.“
Hann segir að í þessari mynd sé
ekki aðeins verið að ljúka sögunni
sem hófst 2015 í Jurassic World,
heldur sé verið að ljúka sögunni
sem hófst 1993 með Jurassic Park.
„Þetta er saga sem kallar á að allar
persónurnar frá byrjun séu með.
Í fyrsta sinn gerist Jurassic-mynd
ekki á Isla Nublar heldur algerlega
í okkar heimi. Þetta er líka í fyrsta
sinn sem persónur úr báðum
hlutum sögunnar eru saman á
hvíta tjaldinu. Laura Dern, sem
leikur dr. Ellie Sattler, Jeff Gold-
blum, sem leikur dr. Ian Malcolm,
og Sam Neill sem dr. Alan Grant
úr Jurassic Park og Chris Patt
sem Owen Grady og Bryce Dallas
Howard sem Claire Dearing úr
Jurassic World eru öll saman-
komin þarna, Við bætast fleiri sem
sum hafa leikið í báðum hlutum
myndaflokksins.
Mögnuð mynd sem svíkur ekki
aðdáendur Jurassic-myndanna. n
Laugarásbíó, Smárabíó, Háskóla
bíó, Sambíóin Álfabakka, Sambíó
in Egilshöll, Sambíóin Kringlunni
og Sambíóin Akureyri, Sambíóin
Keflavík og Selfossbíó.
Úrslitastund
og mögnuð sögulok
Fróðleikur
n Sumar senurnar í þessari mynd áttu upphaflega að vera í Jurassic
World: Fallen Kingdom en voru teknar út úr handriti þeirrar myndar
til að spara þær fyrir þessa.
n Chris Patt þurfti að svelta sig fyrir hlutverkið og sagði: „Ég er orðinn
fertugur núna og ef ég fæ mér svo mikið sem karamellu þyngist ég
um tíu kíló.“
n Nær allar persónur í myndinni hafa birst áður í Jurassic Park og
Jurassic World myndaflokkunum.
Frumsýnd
8. júní 2022
Aðalhlutverk:
Chris Patt, Bryce Dallas
Howard, Laura Dern, Sam
Neill, Jeff Goldblum, De
Wanda Wise, Campbell Scott
og BD Wong
Handrit:
Emily Carmichael, Colin Tre
vorrow og Derek Connolly
Leikstjórn:
Colin Trevorrow
2 kynningarblað 3. júní 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS