Fréttablaðið - 03.06.2022, Síða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Svanborgar
Sigmarsdóttur
n Bakþankar
Allt breytist í kringum okkur en
helst á sama tíma alveg eins, allt
eftir því hvernig á það er litið. Við
þráum öryggi og hamingju af jafn
mikilli ástríðu, hvar sem við erum
og hvenær sem við höfum lifað.
Hvað í því felst er svo breytilegt.
Áhyggjur mínar og þínar, hvað
þetta varðar, eru trúlega minni
háttar samanborið við íbúa
Úkraínu eða annarra stríðshrjáðra
svæða. En þráin er alls staðar til
staðar.
Staðan í Maríupol og Kíjív er ekki
lengur forsíðufrétt. En afleiðingarn-
ar hafa svo sannarlega borist með
vorskipunum. Verðbólga vegna
hækkandi innkaupaverðs. Ótti um
matarskort í heiminum. Hæsta
bensínverð í manna minnum. En
líka fréttir um samstöðu í Evrópu.
Það eru stórfréttir að hlutlausu
ríkin, Svíþjóð og Finnland, sæki um
aðild að NATO, því þau telja öryggi
sínu betur borgið innan banda-
lagsins en utan. Eitthvað sem kom
ekki til greina allt kalda stríðið,
þrátt fyrir ótta um kjarnorkustríð
og ógnir. Þá töldu þessi ríki örugg-
ara að halda rússneska birninum
rólegum. Nú er björninn óró-
legur og þá er betra að vera innan
girðingar en á berangri.
NATO-ríkið Danmörk hefur svo
valið að standa ekki lengur utan
varnarsamstarfs ESB. Hagsmuna-
matið hefur breyst og þjóðin telur
betra nú að vera inni en úti. Nor-
ræna fjölskyldan á í djúpri umræðu
um hvernig tryggja skuli hagsmuni
þjóðar í breyttri heimsmynd.
Niðurstaðan hjá þessum þremur
ríkjum er að það sé í þjóðarhag að
bindast samtökum annarra vest-
rænna og lýðræðislegra ríkja. Að
stoðirnar séu tvær, innan NATO
og innan ESB. Því í samstarfi með
öðrum ríkjum sé þeirra eigin þjóð
sterkari. Er ekki kominn tími til að
eiga þetta samtal líka á Íslandi? n
Breyttur heimur
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT
STILLANLEGIR DAGAR
A F S L ÁT T U R20% KO M D U
N Ú N A !
Verðdæmi: Serta Ocean Splendid
160 x 200 cm. Fullt verð: 649.900 kr.
Serta Ocean Splendid eru fáanleg í tveimur áklæðisgerðum gráu sléttflaueli og
gráu áklæði. Þau fást í fjórum stærðum; 160/180/200 x 200 cm og 180 x 210 cm.
Náttborð seld sér.
Verð nú 519.920 kr.
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta
er pokagormadýna skipt upp í fimm
mismunandi svæði. Góður stuðningur
er við bakið og mjaðmasvæði en mýkri
við axlir. Þannig tryggir þú rétta
svefnstellingu hver sem svefnstaða
þín er og hjálpar þér að ná dýpri og
betri svefn. Hægt er að velja um tvo
stífleika, allt eftir því hvað hentar
hverjum og einum. Áklæðið utan
um dýnuna er mjúkt og slitsterkt,
ofnæmisfrítt og andar vel.
SPLENDID ROYAL
SERTA ER OPINBER BIRGI
Classico Limited ELECTRO -
Vivant gafl
NÝBYGGINGAR
Í HAFNARFIRÐI
FJÖLDI EIGNA AÐ KOMA Í SÖLU
Í SKARÐSHLÍÐ OG HAMRANESI
BÆJARHRAUN 10 – HAFNARFIRÐI
SÍMI: 520-7500 - FASTEIGNASALA SÍÐAN 1983