Fréttablaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 18
Vatn er hollasti svaladrykkur-
inn. Á heitum sumardögum
er gott að vökva líkama og sál
með heilnæmri vatnsdrykkju
og þótt sumum þyki vatns-
bragð hvorki fugl né fiskur
getur sú skoðun breyst í einni
svipan með því að setja það
í frískandi og bragðgóðan
búning, fullt af fjörefnum.
thordisg@frettabladid.is
Mannslíkaminn er um 60 prósent
vatn. Því er brýnt að sinna daglegri
vökvaþörf með nægri vatnsdrykkju
en mörgum þykir vatn fremur
óspennandi drykkur og sækja
frekar í ávaxtasafa, orkudrykki
og gosdrykki til að slökkva þorsta
þegar sólin skín. Hins vegar er leikur
einn að gera ískalt vatn að ljúffengri
bragðupplifun sem dregur jafnt
unga og aldna að vatnskönnunni
vegna litríks útlits svaladrykkjar
sem lokkar og laðar með freistandi
angan og æðislegu bragði.
Þetta er einfalt: Við fyllum ein-
faldlega stóra vatnskönnu með
köldu vatni, ísmolum, ávöxtum,
grænmeti eða kryddjurtum í dálæti
og eftir stendur bráðhollur drykkur
sem nærir kroppinn og gleður
bragðlaukana. Vatn gæti meira að
segja orðið uppáhaldsdrykkur þess
sem vanalega fúlsar við vatni.
Gott er að útbúa vatnskönnu
kvöldið áður og geyma í kæli svo
vatnið hafi tíma til að taka í sig
bragð. Hægt er að geyma ávaxta-
vatn í kæli í allt að fjóra daga en
taka þarf ávexti, grænmeti, ber og
kryddjurtir úr vatninu eftir sólar-
hring.
Vitaskuld má borða ávexti sem
eru í vatnsglasinu en búast má við
að þeir verði orðnir vatnskenndari
og bragðdaufari en ella.
Einnig er tilvalið að útbúa ísmola
úr ávaxtasafa eða ávöxtum og
berjum sem frjósa inni í ísmolum.
Það gefur líka gott bragð og setur
fallegan svip á drykkinn.
Hér eru gefnar svalandi og bragð-
góðar uppskriftir að frískandi
sumarvatni. Uppskriftirnar miðast
við stóra vatnskönnu eða fjögur
stór glös.
Jarðarber, basilíka og sítróna
½ bolli skorin jarðarber, fersk eða
frosin
5 stór og rifin basilíkublöð
1 sítróna, skorin í þunnar sneiðar
Brómber, appelsínur
og engifer
½ til 1 askja brómber
1 appelsína, þunnt skorin í sneiðar
Lítill bútur af ferskri engiferrót,
skræld og þunnt skorin
Vatnsmelóna, kíví og límóna
2 bolli vatnsmelóna í bitum
1 kíví, skorið í bita eða sneiðar
1 límóna, þunnt skorin í sneiðar
Hunangsmelóna,
agúrka og mynta
½ bolli hunangsmelóna í bitum
1 agúrka, þunnt skorin í sneiðar
10 fersk og rifin myntulauf
Bláber, sítróna og rósmarín
½ til 1 askja bláber
1 sítróna, þunnt skorin í sneiðar
4 smágreinar af fersku rósmaríni
Ananas, kókoshneta
og límóna
1 bolli ferskur eða frosinn ananas
í bitum
1 bolli bitar af kókoshnetu, ferskri
eða frosinni
1 límóna, þunnt skorin í sneiðar
Greip, mynta og granatepli
1 greip, skorið í þunnar sneiðar
½ bolli granateplafræ
10 fersk og rifin myntulauf
Mangó, hindber og engifer
1 mangó, skrælt og skorið í bita
½ til 1 askja hindber
Lítill bútur af ferskri engiferrót,
skrælt og þunnt skorinn
Fyllið upp með köldu vatni og
ísmolum. n
Sumarþorsti slökktur með vatni í sparibúningi
Í íslenskri bongóblíðu er fátt eins frískandi og svalandi og ískalt vatn með
gómsætum og litríkum ávöxtum, berjum og grænmeti. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Vatnsmelóna, og í raun hvaða ávöxtur sem er, gerir ótrúlega mikið fyrir
gamla góða Gvendarbrunnavatnið. Það er líka sannkallað augnakonfekt.
Ég finn líka mun á
mér eftir æfingar.
Þegar ég hef verið að
lyfta þá er líkaminn
sneggri að jafna sig.
Hulda Rós
Eftir að Hulda hóf að taka
inn Astaxanthin frá ICE-
HERBS finnur hún mun á
heilbrigði húðarinnar. Hún
finnur síður fyrir bólgum og
eymslum í líkamanum og
bætiefnið gefur henni orku
og úthald til að takast á við
annasama daga.
Hulda Rós Hákonardóttir hóf að
taka inn Astaxanthin fyrir átta
mánuðum síðan eftir að systir
hennar, Hrafnhildur, mælti með
því. „Hún sagði mér hvað það hefði
gert sér gott og það vakti forvitni
mína,“ segir Hulda, sem er einn
eigandi Ger verslana sem reka Hús-
gagnahöllina, Betra bak og Dorma.
Góð áhrif á systurina
„Systir mín lýsti fyrir mér hvað
Astaxanthin hafði gert fyrir sig.
Hún sagðist finna fyrir minni
bólgum og það gæfi henni einnig
aukna orku og styrk í æfingum.
Sjálf hef ég alltaf æft frekar mikið
svo það talaði til mín. Einnig
minntist hún á áhrif Astaxanthins
á húðina, en þegar maður nálgast
fimmtugsaldurinn er alltaf stór
plús ef eitthvað
getur hægt á öldrun
húðarinnar,“ segir
Hulda kankvís.
Líður almennt betur
Hulda segist ekki
hafa prófað
neitt áður
sem eigi
að hafa
svipaða virkni og
Astaxanthin.
„Ég hef þó alltaf
verið dugleg
að taka inn
vítamín, og
sér í lagi við hækkandi
aldur. Eftir að ég byrjaði að
taka inn Astaxanthin
finn ég mun á bólgum
í líkamanum.
Áður vaknaði
ég oft þrútin,
á höndum
sérstak-
lega, og
var aum
í liðunum.
Þetta hefur nán-
ast alveg horfið
eftir að ég bætti
Astaxanthini
við daglega rútínu.
Mér finnst húðin
líka mun betri og þar
sem það hefur nú verið
ágætis veður undanfarið, finn ég
að ég er mun síður viðkvæm fyrir
sólinni.
Ég finn líka mun á mér eftir
æfingar. Þegar ég hef verið að lyfta
þá er líkaminn sneggri að jafna sig.
Svo á ég stóra fjölskyldu, er með
fjóra unglinga og rek líka eigið
fyrirtæki. Það er því alltaf nóg að
gera hjá mér. Eftir að ég byrjaði að
taka inn Astaxanthinið finn ég fyrir
aukinni orku til að takast á við öll
mín daglegu störf, og meira til. Það
tók nokkrar vikur fyrir mig að finna
mun á mér, en í dag líður mér ein-
staklega vel. Ég er með meiri orku og
úthald og líður bara almennt betur í
líkamanum,“ segir Hulda.
Magnað bætiefni
ICEHERBS bætiefnin eru íslensk
framleiðsla og segist Hulda vel
kunna að meta það. „Mér finnst
það algjörlega frábært að við á
Íslandi séum að nýta þau efni
sem til eru í náttúrunni okkur
til heilsubótar. Það sem er svo
magnað við Astaxanthin er hvað
það er breiðvirkt. Það er ekki bara
gríðarlega öflugt andoxunarefni
heldur hefur það margþætt jákvæð
áhrif á allan líkamann,“ segir
Hulda.
Öflugt andoxunarefni
Astaxanthin er gríðarlega öflugt
andoxunarefni sem hefur marg-
vísleg jákvæð áhrif á líkamann.
Áhrif Astaxanthin hafa verið
mikið rannsökuð og sýna klínískar
rannsóknir fram á stórkostlega
eiginleika efnisins. Það veitir vörn
gegn geislum sólar og stuðlar að
heilbrigði augna, heila og hjarta.
Astaxanthin hefur frábæra
eiginleika fyrir húðina. Það
verndar hana, bætir rakastig
hennar, mýkt og dregur úr fínum
hrukkum, blettum og freknum.
Það hefur styrkjandi virkni fyrir
húðina og eykur náttúrulega eigin-
leika hennar til að verjast sólinni
og útfjólubláum geislum hennar.
Ólíkt sólkremum sem borin eru
á húðina, blokkar Astaxanthin
ekki UV-geislana, og kemur því
ekki í veg fyrir að UVB-geislarnir
breytist í D-vítamín í húðinni.
Það ver húðina einfaldlega gegn
skemmdum.
Astaxanthin dregur almennt úr
bólgum og nýtist vel gegn nánast
hvaða bólguástandi sem er, hvort
sem það er í liðum eða annars
staðar. Að auki getur það stuðlað
að auknum árangri hjá íþrótta-
fólki. n
ICEHERBS fæst í öllum betri
matvöruverslunum, apótekum,
heilsuvöruverslunum og glæsi-
legri vefverslun iceherbs.is.
Mögnuð áhrif á húðina, orku og úthald
Hulda segist finna mikinn mun á húðinni eftir að hún byrjaði að taka inn Astaxanthin frá ICEHERBS. MYND/AÐSEND
Vatn er svalandi og
bragðgott eitt og sér,
en það er skemmtileg
tilbreyting að setja út í
það ávexti, ber, græn-
meti og kryddjurtir.
4 kynningarblað A L LT 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR