Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.06.2022, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 15.06.2022, Qupperneq 26
Ég fór um það bil tuttugu sinnum í Mjódd- ina, kynntist fólki og safnaði miklu efni. Útsala Hvernig ertu? er yfirskrift sýningar Svavars Péturs Eysteinssonar (Prins Póló) í Borgarbókasafninu Gerðu- bergi. Þar sýnir hann ljós- myndir, prentverk, vídeóverk og skúlptúr. Ný plata lista- mannsins er komin út. Spurður um titil sýningarinnar segir Svavar: „Þegar ég fór að setja upp þessa sýningu þá var þessi frasi ofarlega í huga mér því ég var alltaf að heyra hann. Þannig klíndist hann á sýninguna.“ Svavar hefur undanfarin ár glímt við krabba- mein og fær því oft að heyra þessa spurningu: Hvernig ertu? Hluti af sýningunni er ljós- myndasería tekin í Mjódd. „Þar er fólk af öllum stigum samfélagsins en einstaklingar sem búa við kröpp kjör og eru jafnvel fallnir frá vegna óreglu eru þar áberandi,“ segir lista- maðurinn. „Myndirnar eru teknar yfir hálfan vetur. Ég fór um það bil 20 sinnum í Mjóddina, kynntist fólki og safnaði miklu efni. Þetta er fyrsta og eina verkefnið sem ég hef gert þar sem ég sekk mér ofan í mannlífið.“ Fleiri ljósmyndir eru á sýn- ingunni. „Í listinni leik ég mér að hversdagshlutum. Á þessari sýningu eru ljósmyndir af þeim tveimur hringtorgum sem eru í Breiðholtinu. Við tökum lítið eftir hringtorgum og þau þykja jafnvel ómerkileg en það er ótrúlega fal- legur strúktúr í þeim. Ég heillast af hringtorgum og á góðan bunka af ljósmyndum af þeim víða um heim. Ég sýni líka ofur hversdagslegar matarmyndir, eins og örbylgju- hamborgara og mynd af mér að smyrja kavíar á ristað brauð og útbúa kórónu sem er tákn Prins- ins.“ Sjoppulegur titill Eins og f lestir vita er listamanns- nafn Svavars Prins Póló. „Ég tók mér það nafn á Seyðisfirði fyrir rúmum tíu árum. Þá hafði ég ekkert að gera og ákvað að semja tónlist þar sem horft yrði til bernskunnar þegar poppmenningin byrjaði að gerjast í höfðinu á mér. Þá tók ég mér sjoppulegan listamannstitil vegna þess að mér fannst ég vera að gera sjoppulega hluti.“ Einn skúlptúr er á sýningunni sem samanstendur af gúmmíbát og reiðhjóli. „Þar fer ég alveg á byrj- unarreit, aftur til ársins 1987 þegar ég var tíu ára gamall og eignaðist gúmmíbát og reiðhjól.“ Vídeóverk sýnir þegar Svavar fer í bílskúr föður síns að sækja þessa gömlu muni til að fara með á sýninguna í Gerðubergi. Ari Eldjárn er höf- undur myndbandsins. Myrk viðfangsefni Á sýningunni má einnig sjá prent- verk með textum af nýrri plötu Svavars. „Ég hef gert það í gegnum tíðina að renna í gegnum textana mína og ef ég sé einhverja frasa sem mér finnast eiga heima á prentverki þá bý ég til prent úr þeim.“ Platan kom út á opnunardag sýn- ingarinnar, 28. maí. Á henni eru sex lög með texta eftir Svavar. „Ég hef alltaf leikið mér að því að tala um dimma hluti og gera þá kómíska en á þessari plötu eru viðfangsefnin samt myrkari en venjulega. Prins- inn er melankólískur og veikindin hafa ýtt undir það.“ Hann segist hafa haft gaman af að vinna að sýningunni. „Ég hafði ár til að vinna hana. Það er gaman að gera sýningu sem maður getur eytt tíma í. Ég ætla svo að halda áfram að skapa. Það kemur mér fram úr á morgnana og hefur gert í rúman áratug.“ n Leikur sér að hversdagshlutum Á sýningunni eru prentverk með textum af nýrri plötu Svavars. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Listamaðurinn hafði ár til að undirbúa sýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is kolbrunb@frettabladid.is Ljósrými – skuggarými er yfirskrift sýningar í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Á sýningunni eru ljósmyndir eftir Ester Jóhannes- dóttur. Sýningin byggir á yfirstandandi rannsókn Esterar á ljósmyndun í afmörkuðu rými. Hún leitast við að ljósmynda birtu og skugga í innviðum bygginga með náttúru- legri lýsingu, en einnig úti með raf- magnsljósi. Með því vill Ester skoða hvaða áhrif birtan/ljósið, náttúru- legt eða rafmagns, hefur á rýmið og myndina. Ester Jóhannesdóttir útskrifaðist með MFA gráðu frá University of Leeds árið 2010 og hefur fengist við listsköpun í yfir 30 ár. Sýningin stendur til 16. ágúst. n Birta og skuggar Ljósmynd á sýningunni. MYND/AÐSEND kolbrunb@frettabladid.is Kjagað á eftir biskupi er yfir- skrift ókeypis k völdgöngu á vegum Borgar- sögusafns, sem Jón Páll Björns- son og Íris Gyða G u ð b j a r g a r - d ót t i r s a g n - fræðingar leiða f immtudaginn 16. júní kl. 20. Gangan byrjar við Dómkirkjuna á Austurvelli. Gengið verður um Dómkirkjuna, Víkurgarð og Aðalstræti, leiðsögu- menn segja frá hinum ógleyman- legu biskupshjónum Geir og Sigríði Vídalín sem bjuggu í Aðalstræti 10 á árabilinu 1807-1846, samtíðarfólki þeirra og tíðaranda 18. aldar. n Kjagað á eftir biskupi Geir Vídalín biskup. 22 Menning 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.