Fréttablaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þar sem við erum að
fagna sjálfstæðinu
fannst mér bara gott
tilefni til að kveikja
alvörueld.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
Nú 149.925 kr.
Nú 183.675 kr.
Nú 225.920 kr.
AVIGNON hægindastóll
með skammel
LICATA tungusófi
Opið á sunnudögum á Smáratorgi - 13-18
Stillanlegur hægindastóll með
innbyggðum skemli. Brúnt, svart,
dökkgrátt og rautt PVC leður.
Verð 199.900 kr.
Glæsilegur tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.
Graphite River dökkgrátt áklæði.
265 x 164 x 82 cm. Verð 244.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTTUR
AF DÝNU
25%
AFSLÁTTUR
Sealy
WASHINGTON HEILSURÚM
með Premium botni
Vönduðu heilsudýna með tvöföldu pokagormakerfi,
kantstyrkingum og vandaðri og þægilegri yfirdýnu. Gormakerfinu
er skipt upp eftir svæðum þannig að það er með meiri stuðning
þar sem við erum þyngri eins og öxlum og mjöðmum. Yfirdýnan
(topperinn) er samsett úr fjórum lögum og þar á meðal er gel lag
(gel infused memory foam) sem lagast að líkamanum og heldur
honum í réttri stellingu alla nóttina. Áklæðið utan um dýnuna er
silki og bómullarblanda sem andar einstaklega. Millistíf dýna.
160 x 200 cm. 269.900 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Teknó-plötusnúðurinn Addi
Exos sér ljós í myrkrinu og
skynjar uppsveiflu á íslensku
danssenunni og hefur því
hóað saman einvalaliði
til þess að fagna frelsinu,
sumrinu og lífinu með langri
danshelgi í kringum þjóð-
hátíðardag Íslendinga.
toti@frettabladid.is
„Þetta er bara þriggja daga frelsis-
helgi; f immtudag, föstudag og
laugardag, þar sem við fögnum sjálf-
stæði Íslendinga með reisn á Húrra,“
segir plötusnúðurinn Addi Exos
um dansveisluna Liberty Fest, sem
hann og fleiri dansgeggjarar standa
fyrir á skemmtistaðnum Húrra frá
16. til 18. júní.
„Þetta er náttúrlega í kringum
þjóðhátíðardag Íslendinga og þar
sem við erum að fagna sjálfstæðinu
fannst mér bara gott tilefni til að
kveikja alvörueld í kringum þetta
og hóaði saman nokkrum góðum
sem mér finnst vera að gera frábæra
hluti í dag.“
Sjálfur ætlar Addi Exos að láta
að sér kveða að kvöldi 17. júní en
auk hans dreifa Biggi Veira, Oculus,
Agzilla, DJ Yamaho, LaFontaine,
Ewok, Samwise, Jamesen og Side-
project sér yfir dagana þrjá, auk þess
sem góðir gestir að utan, UFO95 og
Rebecca Goldberg, munu leggja sitt
af mörkum í nafni gleðinnar og
dansfrelsisins.
Seint koma sumir
„Ég notaði tækifærið til að f lytja
bara inn uppáhaldstónlistarmann-
inn minn sem spilar á fimmtudeg-
inum. Hann heitir UFO95,“ segir
Exos um franska tónlistarmanninn
UFO95, sem hann segir marga telja
einn áhugaverðasta „teknó-artista“
dagsins í dag. „Svo spilar Rebecca
Goldberg frá Detroit á laugardeg-
inum og ég er að koma þarna og
spila á Íslandi í fyrsta skipti á þessu
ári,“ heldur Exos áfram en hann tróð
síðast upp hér heima í desember.
„Ég átti náttúrlega að spila hérna
fyrir tveimur vikum en f luginu
mínu var af lýst. Ég hef tekið eftir
því að það er gríðarlega mikið um
seinkanir núna og að flugi sé aflýst,“
segir Exos, sem þvælist mikið um
flugvelli þar sem hann spilar erlend-
is allar helgar.
„Ég held að vélarnar séu bara bil-
aðar eftir kóvidið. Það er alveg rosa-
legt að fylgjast með þessu á f lug-
völlum sem eru líka undirmannaðir
en ég ætla að bæta upp fyrir þetta
núna.“
Jibbí jei á Húrra
Exos mun ekki bera hitann og
þungann af þjóðhátíðardagsteknó-
inu einn þar sem DJ Yamaho mun
einnig láta að sér kveða. „Hún er
náttúrlega einn vinsælasti plötu-
snúður Íslandssögunnar og ég held
bara að hún sé vinsælasti Dj-inn á
Íslandi enn þá. Þannig að þetta er
góð dagskrá. Samwise, maðurinn
á bak við Volume, mun þeyta eðal
mínimal-teknó-tónum ofan í dans-
þyrsta gesti og hinn óviðjafnanlegi
Jamesen mun „kickstarta“ kvöldinu
með sveif-tónlist eins og hún gerist
best.“
Þriggja daga frelsishelgi
Addi Exos er mættur til landsins og spilar hér í fyrsta skipti á þessu ári á þriggja daga frelsishátíðinni á Húrra þar sem
hann ætlar að hóa saman þungavigtarliði af danstónlistarsenunni hér heima og ytra. MYNDIR/AÐSENDAR
Þá verður Herra Agzilla, sjálfur
guðfaðir Drum & Bass senunnar
á Íslandi, meðal þeirra sem troða
upp 18. júní en hann var einna mest
áberandi í upphafi reif-senunnar.
Þriggja jakka stuð
Exos segir skemmtilegar pælingar
í kringum Liberty Fest, sem tengist
fyrst og fremst 17. júní en einnig
frelsinu frá faraldrinum og frelsinu
til að dansa. „Bara njóta þess að vera
til á Íslandi. Það er náttúrlega sumar
og Íslandsmet í kreditkortanotkun
erlendis.
Fólk er bara að fara í hrönnum
utan til að eyða. Það er allt að
verða vitlaust. Ég f inn að það
er fílingur í loftinu og um að gera
að njóta þess,“ segir Exos og bætir
við að hann hafi verið í Berlín um
síðustu helgi þar sem hann keypti
sér þrjá jakka.
„Íslenska danstónlistarsenan
hefur alltaf farið upp og niður og
mér finnst hún vera á uppleið núna.
Það var erfitt í faraldrinum en nú
finnst mér eins og það séu að koma
fleiri erlend nöfn til Íslands aftur.
Það er að koma ný kynslóð inn og
mér finnst eins og þetta sé að vakna.
Það er ljós í myrkrinu.“ n
UFO95 er
uppáhaldstón-
listarmaður
Adda Exos og
að margra mati
einhver sá
áhugaverðasti
í teknó-listinni
um þessar
mundir.
Rebecca Goldberg er sjóaður reynslubolti frá bílaborginni Detroit.
26 Lífið 15. júní 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ