Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2021, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 06.10.2021, Blaðsíða 2
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 20212 Veðrið er uppáhalds umræðuefni margra Íslendinga. Kannski seg- ir það okkur eitthvað en til dæm- is eru til yfir hundrað íslensk orð yfir vind. Þar má nefna orð eins og áhlaup, bálviðri, derringur, garri, hundaveður, næpingur, ókjör, rembingur, skakviðri og tíkar- gjóla. Síðustu daga höfum við að- eins fengið að finna fyrir vindin- um í fangið eða þá beint í andlitið og frítt með því smá kuldagjóstur. Því er um að gera að fara að kíkja eftir kuldavettlingunum, henda á sig húfu og kannski trefil líka áður en maður skellir sér út í göngu svo kuldabolinn stingi ekki of fast. Á fimmtudag verður austan 15-23 og víða talsverð rigning, hiti 4 til 10 stig. Á föstudag og laugardag má búast við suðaustan og aust- an 5-13 og rigning eða skúrir en yfirleitt þurrt og bjart um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið. Á sunnudag er gert ráð fyrir norð- lægri átt og heldur kólnandi. Rign- ing eða slydda með köflum fram eftir degi norðan og austanlands, annars úrkomulítið. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hversu oft ferðu í klippingu á ári?“ 29% svarenda sögðu „5-7 sinnum“ 26% sögðu „8-11 sinnum“ 23% sögðu „1-4 sinnum“ 15% sögðu „Fer aldrei í klippingu“ og 7% sögðu „12 sinn- um eða oftar.“ Í næstu viku er spurt: Kitlar þig auðveldlega? Borgfirðingurinn Kristín Þórhalls- dóttir gerði sér lítið fyrir og nældi í bronsverðlaun á HM í klassískum kraftlyftingum í Svíþjóð um síðustu helgi. Nokkrum dögum áður settu Skagamennirnir Alexander Örn Kárason og Helgi Arnar Jónsson alls sjö Íslandsmet og Alexander fékk silfur í bekkpressu á HM ung- linga í klassískum kraftlyftingum. Þau eru Vestlendingar vikunnar að þessu sinni. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Nýr varamaður Framsóknar og frjálsra AKRANES: Á fundi bæjar- stjórnar akraness í síðustu viku var skipaður nýr varamaður Framsóknar og frjálsra í vel- ferðar- og mannréttindaráð, vegna flutninga Ölmu Dagg- ar Sigurvinsdóttur úr sveitarfé- laginu. Samþykkt var að skipa Liv Åse Skarstad sem varamann í stað Ölmu Daggar. -vaks Peningaflækja í hraðbanka BORGARNES: Hraðbankinn í anddyri arion Banka í Borgar- nesi við Digranesgötu 2 er kom- inn í gagnið eftir að hafa legið niðri í smá tíma. Kom í ljós að viðskiptavinur sem ætlaði sér að notafæra hraðbankann fór ekki eftir settum leiðbeiningum til að leggja inn pening. Úr varð einhverskonar peningaflækja sem olli því að hraðbankinn hreinlega lokaðist. Þurfti utan- aðkomandi aðila til að laga vél- ina sem er nú komin í gagnið á nýjan leik. -glh Lenti á skilti SNÆFELLSNES: Á mánu- dag, stuttu eftir hádegi á Útnes- vegi í átt að Hellissandi missti ökumaður stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að öku- tækið lenti utan vegar og tók vegaskilti niður í leiðinni. eng- in slys urðu á fólki en í bílnum voru tveir erlendir ferðamenn, báðir í belti, á bílaleigubíl. Bíll- inn var óökuhæfur eftir skellinn og kom bílaleigan öðrum bíl til ferðamannanna sem héldu ferðalagi sínu áfram um Snæ- fellsnes. -glh Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að loðnuafli fiskveiðiárið 2021/2022 verði allt að 904.200 tonn. Ráðgjöf- in verður svo endurmetin í kjöl- far mælinga á stærð veiðistofnsins í byrjun næsta árs. Á síðasta fisk- eigendur fiskvinnslu- og útgerðar- fyrirtækisins Valafells ehf. í ólafs- vík hafa komist að samkomulagi við KG Fiskverkun ehf. í Rifi um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Valafelli. Samningar aðila eru gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynn- ingu vegna kaupanna kemur fram að fyrirætlanir nýrra eigenda séu að efla enn frekar starfsemi sína í Snæ- fellsbæ. Valafell ehf. er rótgróið útgerð- ar- og fiskvinnslufyrirtæki í Snæ- fellsbæ sem rekur sögu sína allt til ársins 1961. Fyrirtækið gerir út ólaf Bjarnason SH 137, sem er 112 lesta bátur, smíðaður á akranesi árið 1973 og er gerður út á dragnót og net. Árið 1990 tók fyrirtækið í notkun nýtt fiskvinnsluhús og rak þar saltfiskvinnslu til ársins 2011 en þá var vinnslan flutt í stærra hús- næði eftir miklar endurbætur og ný tæki keypt til fiskvinnslu. Björn erlingur Jónasson og Kristín Vig- fúsdóttir segja um sölu á fyrirtæki þeirra: „Við erum mjög ánægð með að samningar hafi tekist við KG Fiskverkun og þannig tryggt að starfsemin verði áfram í heima- byggð og bindum miklar vonir við að hún verði efld enn frekar.“ KG Fiskverkun ehf. er eins og kunnugt er öflugt útgerðarfélag, sem gerir út skipið tjald SH 270 með heimahöfn í Rifi. Þá rekur félagið einnig fiskvinnslu í Snæ- fellsbæ. Daði Hjálmarsson fram- kvæmdastjóri KG Fiskverkunar fagnar kaupunum og segir í til- kynningu: „Við erum mjög þakk- lát fyrir það traust sem þau Kristín og Björn erlingur hafa sýnt okkur og hlökkum til að takast á við nýjar áskoranir.“ mm Gott útlit með loðnukvóta fyrir næstu vertíð veiðiári veiddust 128.600 tonn af loðnu við Íslandsstrendur og fóru veiðarnar fram í janúar til mars. Þær veiðar voru með minnsta móti í sögulegu samhengi ef undan eru skilin tvö ár án veiða. ungloðnu- vísitala sem mældist nú í haust er sú þriðja hæsta frá upphafi. Sér- fræðingar hjá Hafrannsóknastofn- un telja ótvírætt að loðnustofninn sé nú að taka hraustlega við sér. mm/ Ljósm. Friðþjófur Helgason Ólafur Bjarnason SH-137. KG fiskverkun kaupir Valafell í Ólafsvík Valafell ehf. í Ólafsvík er til húsa á Snoppuvegi 4. skál! Frystihúsið | Kirkjubraut 2 | 300 Akranes | s: 419 0770 BREIÐIN KR OSSVÍK BYRJAÐU DAGIN N RÉTT

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.