Skessuhorn - 06.10.2021, Qupperneq 14
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 202114
Haustþing Sambands sveitarfélaga
á Vesturlandi var haldið í Árbliki
í Dölum síðastliðinn miðvikudag.
Þar voru m.a. saman komnir full-
trúar sveitarfélaganna á Vestur-
landi, starfsfólk SSV, Þórdís Kol-
brún R. Gylfadóttir, ferðamála,
iðnaðar og nýsköpunarráðherra,
Bjarni Júlíusson fyrir hönd iceFu-
el (icelandic electrical Fuel),
einar mathiesen framkvæmda-
stjóri vindorku og jarðvarma-
sviðs hjá Landsvirkjun og Gnýr
Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá
Landsneti. Þema fundarins voru
orkumál.
Haustþing SSV
Gnýr Guðmundsson, verkefnisstjóri
hjá Landsneti, ávarpaði haustþing
SSV en Gnýr stýrir deild sem sér
um áætlanagerð fyrir Landsnet hvað
varðar innviði sem byggja á upp, en
hlutverk Landsnets er að byggja upp
og reka flutningskerfi raforku. Áætl-
anirnar eru settar fram í kerfisáætl-
un Landsnets sem gefin hefur verið
út árlega en mun framvegis líklega
koma út á tveggja ára fresti. Í erindi
sínu fjallaði Gnýr um helstu verkefni
og áskoranir í varðandi flutningskerf-
in.
Gnýr lýsti þeim þremur þáttum
sem vega þyngst við gerð kerfisáætl-
unar en þeir eru afhendingaröryggi,
umhverfi og samfélag og í þriðja lagi
verðlagning. Skipulagning verkefna
gengur út á að fá sem mest verðmæti
út úr sem minnstum tilkostnaði.
Því næst fjallaði Gnýr um áætlan-
ir Landsnets um uppbyggingu sem
er á næstunni. Kerfisáætlun er tví-
þætt. annars vegar er tíu ára áætl-
un um uppbyggingu meginflutn-
ingskerfisins og hins vegar um upp-
byggingu landshlutakerfisins. Þá lýsti
hann uppbyggingu flutningskerfisins
um allt land. Hann sagði frá því að
líftími raforkulína er um fimmtíu ár
en elsta lína Landsnets er einmitt að
verða 50 ára.
Landsnet tengir saman helstu
virkjanasvæðin á Suður- og Norður-
landi með línu sem ber 120 til 130
megavött. Gnýr lýsti þeim áskor-
unum sem felast í vondum veðrum
meðal annars og muninum á veðurá-
lagi á Suður- og Norðurlandi. Hann
fjallaði um þær áskoranir sem felast í
takmarkaðri flutningsgetu þegar úr-
koma er mismunandi milli landshluta
en ef flutningsgetan væri meiri skap-
aði það tækifæri fyrir Landsvirkjun
að flytja orku á milli með hagkvæm-
ari hætti og auka með því afkastagetu
mannvirkja og orkan rennur hrein-
lega út í sjó.
Gnýr sagði næst frá því verkefni
að byggja yfir tengivirki Landsnets.
tengivirki Landsnets eru rúmlega 70
talsins og ennþá eru yfir þrjátíu þeirra
óyfirbyggð en þau hafa farið mjög illa
í þessum vondu veðrum sem hafa
verið að koma. Stefnan er að sögn
Gnýs að yfirbyggja öll tengivirki en
það þýðir í raun að byggja þarf nýtt
tengivirki. Gnýr fór yfir þau tengi-
virki sem hafa verið yfirbyggð á Vest-
urlandi. Þá fjallaði Gnýr um hvernig
Landsnet er í auknum mæli að koma
til móts við þá sem áhuga hafa á að
setja upp vindorkuver á Vesturlandi.
að lokum fjallaði Gnýr um þær
áskoranir sem felast í orkuskiptum á
Íslandi og hvernig Landsnet þarf að
stórauka afkastagetu sína til þess að
geta mætt þeirri aukningu í fram-
leiðslu orku sem þarf til þess að orku-
skipti geti orðið að veruleika á Ís-
landi. frg
Gnýr Guðmundsson
Helstu verkefni og áskoranir
varðandi flutningskerfin
einar mathiesen framkvæmda-
stjóri vindorku og jarðvarmasviðs hjá
Landsvirkjun ávarpaði haustþing
SSV en í erindi sínu fjallaði ein-
ar um þær áskoranir sem við stönd-
um frammi fyrir þegar kemur að
því að beisla vindinn. Landsvirkj-
un hefur byggt níu vatnsaflsstöðv-
ar og eina jarðvarmavirkjun á sín-
um ferli en Landsvirkjun hóf starf-
semi 1965. Búrfellsvirkjun var fyrsta
virkjun fyrirtækisins. Þessar virkjanir
eru þriggja til 84 ára gamlar og fjöldi
vinnslueininga er 42. uppsett afl fyr-
irtækisins er 2150 megavött.
Vinnslugeta fyrirtækisins er í
kringum 14.500 gígavattstundir sem
er nokkurn veginn það sem við erum
að selja á ári. Landsvirkjun er með
sjö starfsstöðvar um land allt og 285
starfsmenn sem skiptist til helminga
milli Reykjavíkur og starfsstöðva um
land allt. Fyrirtækið er í grunninn
vatnsorkufyrirtæki en síðustu árin
hefur aukin áhersla verið lögð á jarð-
varma og byggt eina jarðvarmavirkj-
un, Þeistareyki. Landsvirkjun rek-
ur þrjár slíkar stöðvar í dag, Kröflu,
Þeistareyki og Gufustöðina í Bjarn-
arflagi.
Landsvirkjun hefur síðan ver-
ið að leggja áherslu á vindinn, „að
þróa vindaflið áfram því að það er nú
þannig að vindar hafa borið manninn
heimsálfa á milli um árþúsundir og
lagt grunninn að verslun, kortlagn-
ingu heimsins og landnámi. eins og
við þekkjum úr sögunni þá hafa vind-
myllur malað korn, hamrað járn og
veitt vatni á akra í yfir 2000 ár. Þær
munu halda áfram að svala orkuþörf
mannsins í síauknum mæli með raf-
orkuvinnslu,“ sagði einar.
Vindurinn þriðja stoðin
„Við nefnum vindinn þriðju stoðina,
hann kemur til viðbótar við vatnið
og jarðvarmann,“ hélt einar áfram.
„ sem eftirspurn eftir endurnýjan-
legum orkugjöfum hefur stóraukist
á heimsvísu er vindorka að mörgu
leyti orðinn eftirsóknarverður kost-
ur . Hún er hverful og vinnslan fer
eðli málsins eftir veðri. Vindorkan
vinnur vel með raforkuvinnslu með
vatni. Það hafa orðið miklar tækni-
framfarir og það er hægt að byggja
upp í áföngum. Verktíminn er styttri
heldur en í vatnsaflinu og jarðvarm-
anum.“
Hvað varðar umhverfismál þá
sagði einar: „Raforkuvinnslu úr
vindorku fylgir enginn mengandi út-
blástur. uppsetning vindmylla hefur
sjónræn áhrif á umhverfið og veldur
hljóðmengun í næsta nágrenni. Í ein-
hverjum tilfellum hefur hún áhrif á
fuglalíf. Varanleg umhverfisáhrif eru
mjög lítil. Vindmylla sem er tekin
niður skilur nánast ekkert eftir sig að
afloknum líftíma.“
einar sagði frá því að það var í
tengslum við stefnumótunarvinnu
innan Landsvirkjunar árið 2010 að
það var ákveðið að ráðast í að setja
upp tvær vindmyllur til prufu. Hvor
vindmylla er 0,9 megavött. Áætluð
raforkuvinnsla er 5,4 gígavattstundir
á ári. Á síðasta ári var hún 6,7 gíga-
vattstundir, gott betur en ráð var fyr-
ir gert í upphafi og nýtnin var 42,5%.
Það dugar til að sjá um 1500 heim-
ilum fyrir rafmagni.
Hvað vindorkugarð ofan við Búr-
fell sagði einar: „Við skilgreinum
þetta sem rannsóknarverkefni fyrir
rekstur við séríslenskar aðstæður, ís-
ingu, skafrenning, ösku- og sandfok
og það verður að segjast eins og er
að þær hafa reynst ákaflega vel hvað
þessi atriði varðar.“
Því næst fjallaði einar um sam-
spil vind- og vatnsorku. „Vatnslónin
geta geymt sem nemur 5.000 gíga-
vattstundum sem nemur um einum
þriðja af heildar framleiðslu Lands-
virkjunar. Landsvirkjun er háð því
að fá innrennsli yfir vetrarmánuðina,
meðal annars frá blota. Vindurinn
getur spilað vel með vatninu.“
Þrír vindorkukostir í
nýtingarflokki
en hvernig gengur okkur að setja
verkefnin í vindorku á dagskrá?
„Staðan er þannig í dag að það er
ekkert vindorkuver starfrækt í land-
inu þrátt fyrir að árið 2010 hafi menn
séð fyrir sér að nú væri komið eitt
slíkt. Nýverið var skilað inn skýrslu
verkefnisstjórnar 4. áfanga ramma-
áætlunar en hún var lögð fram í apríl-
mánuði 2021. Í matinu voru 34 orku-
kostir sendir inn en einungis fimm
voru teknir til umfjöllunar og aðeins
þrír fóru í nýtingarflokk.“
að sögn einars hefur Landsvirkj-
un tvo kosti til skoðunar hvað varð-
ar vindorku. annars vegar svokall-
aðan Búrfellslund sem lenti í bið-
flokki, bæði í rammaáætlun 3 og 4.
Hins vegar Blöndulund sem komst
í nýtingarflokk. Gert er ráð fyrir að
Búrfellslundur yrði 120 megavött og
Blöndulundur 100 megavött. Ver-
ið er að skoða fleiri kosti í nánd við
starfsstöðvar Landsvirkjunar en þeir
kostir eru skemmra á veg komnir.
orkuskipti munu ekki verða nema
ráðist verði í umtalsverða orkuöflun.
300 megavött þarf til þess að upp-
fylla plön stjórnvalda miðað við þær
skuldbindingar sem þau hafa undir-
gengist varðandi Parísarsáttmálann
sem uppfylla þarf fyrir 2030. 600
megavött þarf til viðbótar til þess að
ná fullum orkuskiptum í öllum bíla-
flotanum og 1.200 megavött þarf til
að ná orkuskiptum í öllum bílum,
skipum og flugvélum. Þá er ekki gert
ráð fyrir aukinni eftirspurn erlendis
frá, t.d. vegna framleiðslu rafelds-
neytis.
frg
Einar Mathiesen
Vindmyllur munu svala orkuþörf
mannsins í síauknum mæli
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferða-
mála, iðnaðar og nýsköpunarráð-
herra ræddi um að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefði sett orkumál sérstaklega
á dagskrá í nýafstöðnum kosningum.
Henni fannst frískandi hversu mikla
umræðu orkumál fengu í kosninga-
baráttunni. Sjálfstæðisflokkurinn
lagði sérstaka áherslu á tækifæri Ís-
lands í grænu orkubyltingunni. „Sú
staðreynd að við ætlum að vera kol-
efnishlutlaus, við ætlum að hætta að
nota olíu og löndin í kringum okkur
ætla líka að minnka losun og hætta að
nota olíu. Í því liggja bara gríðarleg
efnahagsleg tækifæri fyrir Ísland.“
Þórdís benti á að fyrir utan að það
er það sem er rétt að gera að í leið-
inni aukast loftgæði og við komum
kannski í veg fyrir súrnun sjávar og
meiriháttar þjóðflutninga í framtíð-
inni, þannig að það er sannarlega til
mikils að vinna. „Við erum að horfa
framan í það að við getum byggt upp
nýjan atvinnuveg með framleiðslu
á vistvænu eldsneyti og fjölnýtingu
auðlindastrauma sem fer þá líka inn
í þessa hugmyndafræði um hringrás-
arhagkerfi. Það sem í dag er vanda-
mál og vesen eins og losun frá stór-
iðju verður ef rétt er á málum haldið
bara verðmæti.“
Þórdís sagði að óvíða séu fleiri
tækifæri að finna í þessu en hér á Vest-
urlandi. „Ég trúi því að þetta verði
þannig að þessi stóriðjusvæði verði
eftirsóknarverður staður til þess að
vera með ýmist sprota eða einhvers
kona afleidda starfsemi, þar sem að
það sem í dag er litið á sem vandamál
nýtir þú sem mikilvægt hráefni fyrir
næsta fyrirtæki við hliðina.“
Þórdís nefndi að stefna í þessa átt
hafi verið mörkuð með langtíma-
orkustefnu fyrir Ísland sem tókst að
samþykkja í þverpólitískri samvinnu
þar sem allir flokkar á þingi áttu full-
trúa. „Það var verðmætt fyrir mig að
sjá hversu margt það er sem við get-
um verið sammála um þegar kem-
ur að þessum verkefnum og þessum
málaflokki því að þetta er jú mála-
flokkur sem hefur valdið miklum
deilum. Þar settum við markmið um
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
Óvíða fleiri tækifæri
en á Vesturlandi
að Ísland yrði óháð jarðefnaelds-
neyti í síðasta lagi 2050, sem þýðir í
raun að við verðum að hætta að nota
olíu eins og við gerum í dag og ég
hef áður sagt að tímasetningar hvað
þetta varðar geta verið fljótar að úr-
eldast.“
Ætlum að vera fyrst af
því að við getum það
„Við getum sett okkur markmið,“
sagði Þórdís og hélt áfram: „ en það
eru ytri aðstæður líka sem ráða því
hversu vel okkur gengur, þetta er
ekki allt í okkar höndum. Það er í
raun metnaðarfyllra að segja að við
ætlum að verða fyrst í heimi til að
verða óháð jarðefnaeldsneyti af því
að um leið og það er raunhæft ein-
hversstaðar þá eigum við að setja
markið hátt og segja: „Við ætlum að
vera fyrst,“ af því að við getum það.
Þetta er auðvitað risastórt verkefni
og það er áætlað að við þurfum um
1.200 mw af nýrri orku til að skipta
út allri olíu og bensíni og þá er skipa-
flotinn og innanlandsflugið. Það er
ekki hægt að gera lítið úr því.
Þórdís sagði frá því hvernig Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur komið að því
að styrkja ýmis verkefni er lúta að
orkuskiptum. „Við styrktum núna
verkefni til að hætta olíunotkun,
bæði í iðnaði og þungaflutningum
og það er áætlað að þessi verkefni
minnki olíunotkun um tvær milljón-
ir lítra á ári. Það munar um minna
en við þurfum auðvitað að gera betur
en það. Þingsályktun um orkuskipti
verður endurnýjuð á komandi þingi.
Þar verður leiðin mörkuð í samræmi
við aðgerðaráætlun orkustefnu. Ég
held að okkur sé alveg óhætt að setja
markið hærra heldur en við gerðum
síðast.“
Þar næst sneri Þórdís sér að vind-
orku. „Vindorka er einn af þeim
orkugjöfum sem mun leika aukið
hlutverk á Íslandi á næstu árum og
við á þessu kjörtímabili sögðum í
stjórnarsáttmála að við ætluðum að