Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2021, Síða 26

Skessuhorn - 06.10.2021, Síða 26
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 202126 Pennagrein Pennagrein Pennagrein Niðurstaða kosninganna varð okkur í miðflokknum heldur mótdræg, en svona gengur þetta fyrir sig í póli- tíkinni. miðflokkurinn sem fékk svo glæsilega kosningu fyrir fjór- um árum átti á brattann að sækja í þetta skiptið, en heldur þó þriggja manna þingflokki, sem er staða sem aðrir flokkar hafa áður fundið sig í og komið sterkari til baka. athyglisvert er að miðflokkur- inn er með flest atkvæði allra flokka á bak við hvern þingmann. 3626 á meðan Framsókn er með 2653, Sjálfstæðisflokkur 3044 og Píratar 2876. Það eru sem sagt 26% fleiri atkvæði á bak við hvern þingmann miðflokksins en Pírata. Ég vil þakka öllum þeim sem studdu mig og framboðið í Norð- vesturkjördæmi. Það var ómetan- legt að finna velviljann og kraftinn í miðflokksfólki í baráttunni um land allt og ég veit að sá öflugi hóp- ur mun ekki láta deigan síga. Kjörtímabilið sem nú er liðið hef- ur verið sérstakt, mjög sérstakt. Nú skiptir mestu máli að tryggt verði að atvinnulífið geti skapað þá við- spyrnu og þau verðmæti sem nauð- synleg eru, til að land og þjóð geti rétt úr kútnum eftir það áfall sem þjóðarbúið varð fyrir. að endingu vil ég óska nýkjörn- um þingmönnum til hamingju með kjörið, um leið og ég þakka þeim sem hverfa af þingi fyrir samstarf- ið. Það eru áhugaverðir tímar fram undan. Bergþór Ólason Höf. er þingmaður Miðflokksins í NV kjördæmi að hlusta á umræður formanna þeirra flokka sem sæti eiga á al- þingi var að mörgu leyti undar- Í dag höldum við upp á 40 ára af- mæli Grundaskóla en hann var fyrst settur 6. október 1981. Við fögnum farsælu skólastarfi þar sem stofnun- in hefur vakið athygli fyrir frum- kvæði, metnað og góðan árangur. Skólinn er öflug menntastofnun sem hefur notið mikillar velgengni öll starfsár sín. Þá velgengni má helst þakka samstarfi allra þeirra sem koma að skólastarfinu: Nem- endum, foreldrum, starfsmönnum og stuðning akraneskaupstaðar. Á níunda áratug síðustu aldar var mikil skólamálaumræða um að nauðsynlegt væri að gera gagnger- ar breytingar á skólum og breyta kennsluháttum. Grundaskóli var í upphafi stofnaður í anda nýrra hugmynda og strax á fyrsta ári varð skólinn þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í kennslumálum. Skólinn var oft kenndur við um- ræðu um svokallað opið skólastarf en slíkir skólar voru þekktir fyrir að brjóta upp bekkjarstarf og halda teymisvinnu á lofti. Á fyrstu starfsárum Grundaskóla voru ekki allir bæjarbúar sammála um hugmyndafræði og starfshætti skólans og í eitt skipti var skólanum lýst sem allsherjar lausagöngufjósi. Þessi lýsing hefur oft verið tekin upp og rædd innan og utan skólans en í stað þess að líta á þessa lýsingu sem neikvæða hafa menn séð þessa umsögn sem hin bestu meðmæli. Skólinn á að vera lifandi vinnustað- ur sem kemur til móts við ólíkar þarfir og hæfileika nemenda. Frá fyrsta degi hefur skólastarf- ið verið byggt á ákveðnum grunn- gildum sem eru samvinna, traust og virðing. Áhersla er lögð á að hafa trú á nemendum og byggja á styrk- leika þeirra. allir geta gert eitthvað en enginn allt. Hagsmunir nem- enda hafa ávallt verið í fyrirrúmi öll þessi fjörutíu ár. Grundaskóli er góður skóli af því að þar eru frábærir nemendur, öfl- ugur foreldrahópur og góðir starfs- menn. Lengst af fór Guðbjartur Hannesson (Gutti) fyrir skólastarf- inu og hugmyndafræði hans og áherslur lifa enn í dag. annar skóla- stjóri skólans var Hrönn Ríkharðs- dóttir en hún hætti störfum sem skólastjóri við skólann árið 2016 eftir farsælan feril sem kennari og stjórnandi í skólastofnunum akra- neskaupstaðar. Í dag starfa um eitt hundrað og tuttugu starfsmenn við skólann og nemendur eru tæplega 680. Grundaskóli er orðinn einn af fjöl- mennustu skólum landsins en þrátt fyrir það er enn sama hugsun við líði og á fyrstu starfsdögunum. mikill metnaður fyrir skólastarfinu og skólasamfélagið samstillt í að sækja fram og gera ávallt sitt besta. Grundaskóli nýtur þess á marg- víslegan hátt að á bak við skólastarf- ið stendur samstilltur hópur sem er reiðubúinn til að leggja hönd á plóg þegar á þarf að halda. Hollusta við skólann er kannski besta umsögnin um gott skólastarf. er skólinn hlaut árið 2005 fyrstur grunnskóla ís- lensku menntaverðlaunin var eftir- farandi umsögn höfð eftir nemend- um. „Við útskrifumst úr Grunda- skóla en við yfirgefum skólann aldrei.“ Fjölmargir af núverandi starfs- mönnum skólans eru fyrrverandi nemendur. Í dag er hlutfallið 35% og fer hækkandi með hverju árinu. Hér er gott að nema og hér er gott að starfa. Grundaskóli er fyrir- myndar vinnustaður og hefur hlot- ið margvísleg verðlaun og viður- kenningar fyrir framsækið skóla- starf og farsælt starfsmannahald. til marks um gæði vinnustaðarins má geta að margar umsóknir ber- ast um hvert auglýst starf og fag- fólk skipar hverja kennarastöðu og menntunarstig er hátt. Þegar 40 ára starfsafmæli Grunda- skóla er fagnað ber að þakka öllum þeim sem lagt hafa skólanum lið á þessum árum og óska þess að fram- tíðin verði jafn farsæl og hingað til. Það er ekki sjálfgefið fyrir akranes- kaupstað að eiga svo öfluga skóla- stofnun. Við sem nú störfum við skólann heitum því að halda merki Grundaskóla hátt á lofti og leggja okkur öll fram við að reka fyrir- myndarstofnun á allan hátt. Grundaskóli stendur á tímamót- um á þessu afmælisári. Fram undan er gríðarleg uppbygging og endur- bætur á skólahúsnæði stofnunar- innar. allar þessar endurbætur taka mið af upphaflegum hugmyndum um skólastarf. Hugsjón og leið- arljós forvígismanna mun áfram blómstra í starfinu. Nýtt skólahús- næði mun taka mið af nýjum kröf- um og tækniþróun til framtíðar og uppbyggingaráform einkennast af miklum metnaði og skarpri skóla- sýn. Framtíð skólans er björt og hér mun áfram unnið um ókomin ár að þróttmiklu og árangursríku skólastarfi til heilla fyrir nemendur okkar og bæjarfélag. Ég óska nemendum, starfsfólki og akurnesingum öllum til ham- ingju með 40 ára afmæli Grunda- skóla. Sigurður Arnar Sigurðsson, skóla- stjóri Grundaskóla Grundaskóli á 40 ára starfsafmæli Þakkir og hamingju- óskir á tímamótum Að loknum kosningum umsjónarmanns eigna hjá Dalabyggð Dagur í lífi... Nafn: Viðar Þór ólafsson Fjölskylduhagir/búseta: Giftur Fanneyju Þóru Gísladóttur og við eigum 3 börn og búum í Búðardal. Starfsheiti/fyrirtæki: umsjónar- maður eigna hjá Dalabyggð. Áhugamál: Hestar og útivera. Dagurinn: Fimmtudagurinn 30. september 2021. Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerð- ir? Vaknaði klukkan 7:30 og fékk mér kaffi. Hvað borðaðirðu í morgunmat? ekkert. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Klukkan 8:00 og fór keyrandi. Fyrstu verk í vinnunni? und- irbúningur á kerru og bíl vegna flutnings á dýrahræjum í Fífl- holt. Hvað varstu að gera klukkan 10? Var að safna efni í kerruna. Hvað gerðirðu í hádeginu? Borð- aði í Hyrnunni í Borgarnesi. Hvað varstu að gera klukkan 14? Keyra heim úr Fíflholti. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Hætti klukkan 17:00 og endaði daginn á smá lagfæringum á Dvalarheim- ilinu Silfurtúni. Hvað gerðirðu eftir vinnu? Sótti hesta, setti þá inn í hús og járnaði fyrir helgina. Hvað var í kvöldmat og hver eld- aði? SS pulsur og konan eldaði. Hvernig var kvöldið? Bara rólegt í hesthúsinu og endaði á að horfa á Block. Hvenær fórstu að sofa? 24:56. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Burstaði tennurnar. Hvað stendur upp úr eftir dag- inn? Betri veðurspá fyrir helgina. Eitthvað að lokum? munum hvað lífið er æðislegt og verum jákvæð, það kemur okkur langt. og svo er stutt til jóla. legt. allir, utan einn, töluðu þeir um að þetta og hitt þyrfti að gera, án þess að upplýsa eða útskýra og færa rök fyrir því hvernig það skuli gert. Svona málskrúð er þjóðin hætt að hlusta á. Þessi eini sem litla eða engan þátt tók í loforðaræðum þessum var formaður Sjálfstæð- isflokksins og fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, því hann vildi bara hafa stöðugleika í stjórn landsmála í framtíðinni. Þetta orð; „stöðugleiki“ þýðir í reynd að engu, eða litlu skuli breyta í stjórn þjóðmála og halda óbreyttri stefnu í stjórn þjóðmála, íhaldsstefnu. enginn af ræðumönnum utan rík- isstjórnarflokkanna hafði rænu á því að benda áheyrendum á hvað þessi yfirlýsing Bjarna þýddi. Hún þýddi t.d. það að 80% öryrkja, sem erfitt eiga með að ná endum sam- an í framfærslu fengju enga lagfær- ingu. Skattar á hátekjufólk yrðu ekki snertir. Stórútgerðarmenn fengju að arðræna þjóðina og skip- verja sína áfram. Skattsvik fengju að grassera áfram meðal hátekju- fólks t.d. þeirra sem reka ábatasöm fyrirtæki og gefa upp lágar launa- tekjur, þar sem skattar á hagnað eru lægri en skattar á há laun. Sjálf- tökufólk um starf sitt, t.d. lögfræð- ingar og aðrir einyrkjar. Hafsteinn Sigurbjörnsson

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.