Vesturbæjarblaðið - Mar 2022, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið MARS 2022
Ný hverfastöð borgarinnar við Fiskislóð 37c
hefur hlotið hönnunarvottun samkvæmt alþjóðlega
viðurkennda vottunarkerfinu BREEAM.
Hönnunarvottunin er staðfesting á því að
hönnun byggingarinnar uppfyllir þær kröfur
sem gerðar eru í BREEAM vottunarkerfinu um
vistvæna hönnun.
Hlaut byggingin einkunnina „Very Good“ eða
65,5%. Þar með eru uppfylltar þær kröfur sem
gerðar eru um vistvæn mannvirki í Græna planinu
hjá Reykjavíkurborg og fellur fjárfestingin því undir
fjármögnun með grænum skuldabréfum. Nú er unnið
að því að ljúka fullnaðarvottun byggingarinnar.
Hverfastöðin Fiskislóð hlýtur
BREEAM hönnunarvottun
Hverfastöðin við Fiskislóð.
Gamla Osta- og smjörsalan
verður íbúðabyggð
Lagt hefur verið fram erindi
frá afgreiðslufundi byggingar
fulltrúa frá 8. mars 2022 þar sem
sótt er um leyfi til þess að byggja
fjölbýlishús á þremur hæðum
auk kjallara fyrir alls 41 íbúð,
á lóð nr. 54 við Snorrabraut
sem er gamla Osta og smjör
salan. Það er félagið Snorra
braut 54 fjölbýlishús sem óskar
eftir byggingarleyfi.
Húsið var reist 1929, hannað
og teiknað af Einari Erlendssyni
húsameistari sem á starfsævi
sinni teiknaði mörg þekkt hús
í borginni, til dæmis Þingholts
stræti 29 sem hýsti Borgar
bókasafnið, Fríkirkjuveg 11
og hús Hjálpræðishersins í
miðborginni. Lengi var starf
semi tengd mjólkurvinnslu i
húsinu eins og nafnið bendir
til. Ýmis starfsemi gefur verið
í húsinu á umliðnum árum eða
frá því mjólkurvinnsla var flutt
burt. Má þar nefnd að Bylgjan
fyrsta einknarekna útvarpsstöðin
hóf starfsemi sína þar. Þar hóf
morgunútvarp Sigurðar G.
Tómassonar og Reykjavík síð
degis Hallgríms Thorsteinssonar
göngur sínar. Útvarpsþættir sem
nutu mikillar athygli og vinsælda
enda um margt ólíkir því sen fólk
átti að venjast í íslensku útvarpi.
Þarna hafði flugfélagið Arnarflug
aðstöðu um tíma Einnig kynning
arfyrirtæki OZ og Söngskólinn.
Húsnæðið hefur lítið verið notað
að undanförnu enda staðið til að
efna til íbúðabygginga á svæðinu
enda stór lóð að baki gömlu Osta
og smjörsölunnar.
Gamla Osta- og smjörsalan við Snorrabraut.
Haldið áfram við Tryggvagötu
Framkvæmdir eru hafnar á ný við Tryggvagötu en nú
er komið að gatnamótum Grófarinnar að fá nýtt og fallegt
yfirbragð. Um er að ræða þriðja og síðasta verkáfangann
í endurgerð Tryggvagötu þar sem endurnýja á lagnir
ásamt jarðvegsskiptum og endurnýjun yfirborðs. Þessar
framkvæmdir eru hluti af því að gera borgina betri, mann
vænni, fallegri og aðgengilegri fyrir virka ferðamáta.
Framkvæmdasvæðið takmarkast við Grófina sem heild,
við gatnamót Vesturgötu og Tryggvagötu. Með því verður
Tryggvagata tímabundið að botngötu bæði með aðkomu
frá Geirsgötu og frá Kalkofnsvegi. Áhersla er lögð á greitt
að gengi gangandi og hjólandi sem verður tryggt með
hjáleiðum sem verða vel merktar. Tvö stæði fyrir hreyfi
hamlaða flytjast til vegna framkvæmdanna og verða fyrir
aftan Listasafn Reykjavíkur. Einnig eru þrjú stæði fyrir hreyfi
hamlaða þar sem framkvæmdum er lokið í Tryggvagötu.
Áætlað er að framkvæmdum í Grófinni ljúki fyrripart sumars.
Hafnarhúsið við Tryggvagötu aðsetur
Listasafns Reykjavíkur.
BÓKIN
HEIM
HEIMSENDING BORGARBÓKASAFNSINS
Þjónusta ætluð öldruðum og öðrum
sem vegna veikinda eða annarra
ástæðna, til dæmis félagslegra,
eiga ekki heimangengt á bókasafnið.
Persónuleg þjónusta sniðin að þörfum
hvers og eins.
Sendið tölvupóst eða hringið
411 6100
borgarbokasafn@reykjavik.is
borgarbokasafn.is
BB
S
2
0
2
2
匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㈀ ∠ 刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㔀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀