Vesturbæjarblaðið - mar. 2022, Blaðsíða 13
Yngri börn komast nú inn í
leikskóla borgarinnar. Síðastliðið
haust fengu öll börn sem náð
höfðu 18 mánaða aldri boð í leik-
skóla í Reykjavík þar sem áður
var miðað við 24 mánaða aldur. Í
haust verður byrjað að taka á móti
12 mánaða börnum í leikskóla
borgarinnar. Yfir 800 ný leik-
skólarými verða tekin í notkun
á þessu ári í borginni. Yfir 90
prósent barna í borginni komast í
leikskóla í sínu hverfi.
Þetta er afrakstur kraftmikillar
uppbyggingar á leikskólum í
Reykjavík sem var samþykkt í
árslok 2018 af Samfylkingunni og
samstarfsflokkum í borgarstjórn,
samkvæmt áætluninni Brúum bilið.
Vegna barnafjölgunar er framundan
mikil uppbygging leikskóla í
hverfinu og borginni allri.
Gullborg, Hagaborg og
Sæborg stækka
Í janúar síðastliðnum lauk fram-
kvæmdum við leikskólann Gullborg
við Rekagranda sem getur þá tekið
á móti 27 börnum til viðbótar.
Leikskólinn Hagaborg, í nábýli
við Melaskóla og Hagaskóla, mun
sömuleiðis stækka með tveimur
nýjum leikskóladeildum sem munu
nýtast rúmlega 30 börnum. Stefnt
er að opnun þessara deilda strax
í haust. Þá er ráðgert að stækka
leikskólann Sæborg við Starhaga
með viðbyggingu sem mun rúma
um 48 börn til viðbótar. Sæborg er
staðsettur á fallegri lóð við sjávar-
síðuna og þar verður reist viðbygg-
ing sem verður tilbúin til notkunar
innan þriggja ára.
Ævintýraborg opnar við
Eggertsgötu
Nýr leikskóli opnaði þann 1. mars
á horni Eggertsgötu og Njarðargötu
sem er hluti af þeirri lausn sem
kallast Ævintýraborgir. Þar verður
hægt að bjóða 85 börn velkomin
í áföngum og mæta brýnni þörf
fyrir leikskólarými í hverfinu.
Ævintýraborg við Eggertsgötu
brúar bilið þar til nýr og veglegur
leikskóli opnar í Skerjafirði um eða
upp úr miðjum áratug.
Mikil íbúafjölgun
í Reykjavík
Íbúum Reykjavíkur hefur fjölgað
um 10 þúsund frá 2017. Þá hefur
orðið mikil fjölgun fæðinga undan-
farin 2 ár, sem gerir það að verkum
að þörfin fyrir ný leikskólapláss
verður enn meiri en áður var
talið. Við bregðumst við þessari
þróun með því að fjölga plássum
tvöfalt meira en áformað var 2018.
Framundan er mesta uppbygging
sem sést hefur í leikskólamálum
á þessari öld og er stefnan að
rúmlega 800 ný leikskólarými
verði tekin í notkun í borginni á
þessu ári. Þar með verður hægt
að byrja að taka á móti 12 mánaða
börnum í haust, þ.e. börnum sem
verða 12 mánaða og eldri í byrjun
september. Inntökualdur barna
yfir vetrarmánuðina verður áfram
hærri að meðaltali en fer þó hratt
lækkandi á komandi árum með
fjölgun plássa. Alls fjölgar plássum
um 1680 á næstu 4 árum.
Arfleifð Reykjavíkurlistans
Sjálfstæðisflokkurinn byggði
upp leikskólakerfi í Reykjavík á 60
ára valdatíð sinni sem einkenndist
af skorti og mismunun gagnvart
foreldrum. Foreldrar í sambúð
gátu ekki fengið leikskólapláss
nema hálfan daginn og mörg börn
komust aldrei í leikskóla, þar á
meðal undirritaður! Með tilkomu
Reykjavíkurlistans undir forystu
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra
varð leik-
skóli að heils-
dagsúrræði
fyrir flest
börn og
með lögum
frá 2008 var
staðfest að
leikskólinn
væri mennta-
stofnun,
fyrsta
skólastigið
í íslensku
menntakerfi. Nú er svo komið að
tæp 90 prósent 1 til 5 ára barna
ganga í leikskóla og yfir 90 prósent
barna í Reykjavík njóta þess að
sækja leikskóla í sínu borgarhverfi.
Mikil uppbygging
um alla borg
Samfylkingin hefur leitt vinnu
við að fjölga leikskólaplássum með
samstarfsflokkum í borgarstjórn,
til að geta boðið yngri börnum í
leikskóla. Sem dæmi höfum við
opnað rúmlega 30 ungbarnadeildir,
bara á þessu kjörtímabili, þar sem
boðin eru velkomin börn allt niður
í 15 mánaða og jafnvel yngri. Á
þessu ári stefnir í að leikskólum
fjölgi um 8 í Reykjavík, með 4
Ævintýraborgum með alls 345
plássum, nýjum ungbarnaleikskóla
við Bríetartún og nýjum leikskólum
við Kleppsveg, Safamýri og Ármúla.
Þá verður fjölgað leikskóladeildum
við að minnsta kosti fimm leikskóla
víðs vegar um borgina, svo sem í
Grafarvogi og Breiðholti og ekki síst
í Vesturbæ eins og áður segir.
Lægstu leikskólagjöldin
meðal stærstu
sveitarfélaganna
Loks hefur verið sérstakt
metnaðarmál Samfylkingarinnar og
samstarfsflokka í meirihlutanum
að bjóða upp á lág leikskólagjöld
og því eru almenn leikskólagjöld
þau lægstu í Reykjavík af 15
stærstu sveitarfélögum landsins.
Því til viðbótar hafa systkina-
afslættir hækkað verulega og
fóru árið 2021 upp í 100 prósent
afslátt af leikskólagjöldum frá og
með öðru barni.
Betri starfsaðstæður
í leikskólum
Reykjavíkurborg hefur einnig
fjárfest ríkulega í bættum starfs-
aðstæðum leikskólakennara og
annars starfsfólks leikskóla borgar-
innar og varið til þess rúmlega 4
milljörðum króna á kjörtímabilinu.
Við höfum fjölgað starfsfólki á elstu
deildum, fækkað börnum á hvern
starfsmann, aukið undirbúnings-
tíma og fjármagn til faglegs starfs,
þrefaldað fjármagn í viðhald
húsnæðis og svo framvegis. Það
á sinn þátt í því að starfsánægja
hefur vaxið samkvæmt viðhorfs-
könnunum, þó álag hafi vissulega
aukist undanfarin misseri, ekki
síst vegna afleiðinga COVID-
faraldursins. Ráðningarmálin eru
krefjandi verkefni en við höfum
aukið stuðning við stjórnendur til
að létta róðurinn í þeim efnum og
hafa verður í huga að starfsfólki
leikskóla hefur fjölgað verulega á
kjörtímabilinu eða um 350 stöðu-
gildi. Við munum halda áfram að
bæta starfsaðstæður í leikskólum
borgarinnar og leggja þar með
okkar að mörkum við að fjölga
leikskólakennurum, sem er eitt
stærsta hagsmunamál leikskólanna
um þessar mundir.
Skúli Helgason er formaður skóla-
og frístundaráðs Reykjavíkurborgar
og gallharður Vesturbæingur.
13VesturbæjarblaðiðMARS 2022
Skúli Helgason.
Yngri börn komast
í leikskóla í Vesturbæ
- Nýr leikskóli við Eggertsgötu og þrír leikskólar í hverfinu stækka
Afgreiðslutími:
Mán: 11-16
Þri-fös: 11-18
Lau: 11-16
ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK
systrasamlagid.is
@systrasamlagid
Sími: 511 6367
TÍMAMÓT
Kristalsvatnsflöskur með mánaðarsteini
Inu drykkjarflöskurnar má opna og bæta við sínum
eigin kristal. Mánðarsteinn fylgir með hverri flösku.
Einstök
ítölsk kerti
Gefðu veislunni
annan blæ og
veldu þessi
ómótstæðilegu
kerti.
Jógadýnan sem jógakennarinn velur
Manduka PRO 6mm er af flestum viðurkennd sem besta fjárfestingin.
Hún fylgir þér að eilífu. Frábær gjöf. Jafnvel fermingargjöf.
Mandöluhálsmen
Eru einstök gjöf fyrir
fermingarfólk,
þig og aðra.
Falleg orð eru besta
veganestið út í lífið.
Skírdagur
Fermingarmessa klukkan 11.00.
Séra Sveinn Valgeirsson
og séra Elínborg Sturludóttir.
Dómkórinn og Kári Þormar dómorganisti.
Messa kl. 20.00.
Séra Elínborg Sturludóttir og
séra Sveinn Valgeirsson. Dómkórinn
og Kári Þormar dómorganisti.
Getsemanestund, andakt meðan altari
er afskrýtt.
Föstudagurinn langi
Guðþjónusta kl. 11.00.
séra Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn
og Kári Þormar dómorganisti.
Páskadagur
Hátíðarmessa kl. 8.00.
Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir
prédikar og dómkirkjuprestar
þjóna fyrir altari.
Dómkórinn og Kári Þormar.
Hátíðarmessa kl. 11.00.
Séra Elínborg Sturludóttir prédikar
og séra Sveinn Valgeirsson þjónar.
Dómkórinn og Kári Þormar.
Annar í páskum
Prestsvígsla kl. 11.00.
Biskup íslands Agnes M. Sigurðardóttir
vígir og séra Sveinn Valgeirsson þjónar.
Dómkórinn og Kári Þormar dómorganisti.
Dómkirkjan
um páskana
Minnum á síðdegistónleika, tíðasöng, örpílagrímagöngur og kyrrðarstundir.
Sjá nánar á fésbókinni og domkirkjan.is
Gleðilega páska!