Vesturbæjarblaðið - mar. 2022, Blaðsíða 15
15VesturbæjarblaðiðMARS 2022
BÍLAVIÐGERÐIR
GRANDA
FISKISLÓÐ 83 - 101 REYKJAVÍK
S: 562 5999 S: 669 5999
Alvotech og knattspyrnudeild
KR hafa skrifað undir samstarfs-
samning til næstu fjögurra ára.
Samningurinn nær til allra
knattspyrnuflokka KR og felur
í sér ýmiss konar samstarf og
viðburði.
Það voru Jóhann Jóhannsson
og Árni Harðarson sem mættu
fyrir hönd Alvotech, auk Páls
Kristjánssonar, formanns knatt-
spyrnudeildar KR og undirrituðu
samninginn í KR heimilinu í Frost-
askjóli á dögunum.
Það er mikilvægt fyrir félag eins
og KR að hafa öfluga bakhjarla til
að styðja við bakið á starfsemi
félagsins. Alvotech tók við af
Alvogen sem styrktaraðili árið
2021 en Alvogen hafði styrkt
félagið frá 2014 svo um er að
ræða framhald af margra ára sam-
starfi félaganna við KR.
“Stuðningur við íþróttastarf
fellur einstaklega vel að hlut-
verki Alvotech sem er að bæta
lífsgæði fólks. Það er okkur
sérstaklega ánægjulegt að styðja
með þessum hætti við nærsam-
félag okkar í Vesturbænum.”
Sagði Jóhann Jóhannsson við
undirritun samningsins.
KR og Alvotech undirrita 4 ára samning
Gómsæti í göngufæri
Geirsgata 1 • Sími 511 1888
Fjöldi fólks mætti og tók þátt í þorrablóti KR.
Guðmundur Benediktsson var veislustjóri
sem hófst með fordrykk klukkan 19. Hópurinn
KR konur stóð að viðburðinum og allur ágóði af
kvöldinu rennur til yngri flokka starfs KR.
Ýmislegt var t i l skemmtunar. Snjólaug
Lúðvíksdóttir var með uppistand og Bartónar og kór
Kaffibarsins söng. Síðar um kvöldið stigu strákarnir
í Björtum sveiflum á svið og léku fyrir dansi til um
kl. eitt un nóttina. Selma Björnsdóttir tók nokkra
slagara með strákabandinu og stemmningin var góð.
Greinilega var kominn tími til að skemmta sér eftir
langvarandi samkomubann.
Fjöldi fólks á þorrablóti KR
Fjöldi fólks mætti á þorrablót KR og gleðin var við völd.
Mynd. Erling Ó. Aðalsteinsson.
Forráðamenn Alvotech og knattspyrnudeildar KR.
Vorið er komið í
Blómagallerí.
Mikið úrval af fallegum
blómum fyrir
fermingarnar, páskana
og hin ýmsu tilefni.