Feykir - 06.01.2021, Side 9
Kæru lesendur ég óska ykkur öllum
góðs og gæfuríks árs, árið 2020 er nú
horfið veg allrar veraldar og þótt alls
ekki sé hægt að segja að allt sem því
tengist þurfi endilega að hafa verið
slæmt er heildarorðspor þess með
eindæmum. Horfum þó vonglöð
fram um veg á nýbyrjuðu ári og
verður nú samantekt um sögu
hestaíþrótta á Íslandi hér
framhaldið en fyrst skal vikið ögn
að mótsbrag fyrri ára.
Í síðustu grein var landsmótsins á
Vindheimamelum getið en það var
fyrsta landsmótið sem þar fór fram og
hið þriðja sem haldið var á Norður-
landi; áður voru haldin mót á Þverár-
eyrum í Eyjafirði ´54 og á Hólum ´66.
Næsta landsmót fór svo fram árið 1978
að Skógarhólum í Þingvallasveit. Þetta
var fimmta og jafnframt síðasta mótið
sem haldið var á Þingvöllum sjálfum
eða þá að Skógarhólum í Þingvallasveit.
Mikill ljómi lék eðlilega um mótshald
á eða í næsta nágrenni við hinn forna
helgistað þjóðarinnar, Þingvelli, en
rétt eins og að hann stóð ekki undir
hugmyndum rómantíkera nítjándu
aldar sem þingstaður landsins varð
mönnum sífellt ljósara að hann stæðist
ekki heldur kröfur sem landsmóts-
staður hestamanna.
Mótið á Vindheimamelum 1974
heppnaðist prýðilega; væsti hvorki um
menn né hesta, a.m.k. miðað við þess
tíma kröfur, á Þingvöllum hins vegar
gekk á ýmsu 1978 og enn var fólki í
fersku minni öll þau veðurfarslegu
ósköp með meiru sem á gengu 1970 á
þeim stað. Á mótinu 1978 var töluvert
bras með hagamál og vörslu sýninga-
hrossa: Tjaldstæðamál voru svo á pari
við fyrri mót, þannig ægði saman
þeim sem vildu njóta næturhvíldar og
hinum sem una vildu við stöðugan
gleðskap og stunda jafnvel útreiðar á
tjaldsvæðinu. Þannig er til saga af
manni sem reið um tjald á Þingvöllum
og þegar tjaldbúinn skreið út, en það
var kona, þekkti hún manninn því
hann hafði og riðið tjald hennar um á
næsta móti á staðnum þar á undan.
Salernismálin voru síðan í algerum
ólestri; fyrst og fremst var um kamra
að ræða og þeir jafnvel svo útleiknir að
menn stóðu (húktu) á setunum pú-
andi vindla til að lifa skákina af, þá er
þeir tefldu við páfann. Þessi mál sem
eru frumforsenda alls mótahalds voru
hins vegar komin í gott horf m.v. það
er þá var krafist á Vindheimamelum.
Snemma var þar farið að deila tjald-
svæðunum upp í svokölluð fjölskyldu-
tjaldsvæði, þar sem ríkari kröfur voru
um hófsamlegt framferði og næturró,
og almenn. Komið upp haganlegum
vatnssalernum, auk byggingar stóð-
hestahúss og stórauknu og bættu
framboði af beitarhólfum. Sama þróun
varð svo á Gaddstaðaflötum við Hellu
en þar var næst haldið landsmót á
Suðurlandi (1986) en í millitíðinni var
haldið landsmót 1982 á Vindheima-
melum. Hvað beitarhólfamálin varð-
aði og vörslu sýningahrossa hafði það
svo og sín áhrif að jafnt og þétt dró úr
að menn kæmu ríðandi til móts og
eins hitt að þátttakendur fóru að koma
hrossum sínum fyrir annars staðar en
á mótsvæðunum sjálfum. Hestakerr-
urnar orsökuðu ótrúlega framfara-
byltingu í öllum þessum málum en
þær komu til sögunnar á áttunda
áratugnum. Að síðustu en alls ekki síst
eru það svo vallarmálin sjálf, þau voru
alls ekki í góðu lagi í Skógarhólum né á
Þingvöllum og í fyrri greinum hefur
stundum verið að vandkvæðum í
þeim málum vikið, sjá t.d. grein í
33. tbl. Feykis 2019 en hana er að finna
á heimasíðu Sögusetursins, www.
sogusetur.is, undir slánni Fræðsla /
Greinar forstöðumanns í Feyki. Ein
megin ástæðan fyrir uppbyggingu
mótsvæða á svæðum eins og t.d.
Vindheima-, Melgerðis- eða Kaldár-
melum eða þá á Gaddstaðaflötum
voru einmitt aðstæðurnar frá náttúr-
unnar hendi að leggja velli auðveldlega.
Það er náttúrulega breytt í dag með
stóraukinni véltækni og þar með
bolmagni til að byggja upp velli frá
grunni.
Þrátt fyrir þau vandkvæði sem hér
hafa verið nefnd var mótið 1978 á
margar hátt gagnmerkt, hátíðleiki
landsmótanna var þá enn við lýði í
hugum hestunnenda og fólk lagði
mikið á sig til að sækja þau. Á þessu
móti voru svo hestaíþróttir í fyrsta
sinn á dagskrá landsmóts! Var þar um
að ræða keppni í gæðingaskeiði annars
vegar og tölti hins vegar. Stjórnandi
beggja keppnanna var Friðþjófur
Þorkelsson í Fáki.
Friðþjófur Þorkelsson
Friðþjófur Þorkelsson fæddist í
Reykjavík 29. ágúst 1932 og lést þar 20.
febrúar 2008. Hann ólst upp á einu
smábýlanna sem stóðu í Krossamýri á
Ártúnshöfða en lengst af bjó hann í
Mosfellsbæ. Hann nam trésmíði og
starfaði við hana alla tíð en hesta-
mennska; hestaíþróttir, ræktunarstarf,
einkum þó fræðileg nálgun þess og
hestaljósmyndun átti hug hans allan
og starfaði hann ötullega að því öllu
saman.
Friðþjófur tók gæðingadómarapróf
árið 1973 en þá var fyrsta formlega
námskeiðið haldið skv. nýrri útfærslu
keppninnar (spjaldadómar), hann
kom í framhaldinu að kennslu á nám-
skeiðum fyrir nýja gæðingadómara,
framkvæmd prófa og var yfirdómari á
stórmótum. Hann stóð fyrir stofnun
unglingadeildar Fáks og varð fyrsti
formaður íþróttadeildar Fáks (1976)
en það var fyrsta hestaíþróttadeildin
sem stofnuð var og í framhaldinu
fyrsti formaður Íþróttaráðs LH.
HESTAR OG MENN | palli@feykir.is
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Íþróttakeppnir – sagan rakin áfram ásamt nokkrum orðum
um mótsbrag fyrri tíðar og merkan brautryðjanda
Friðþjófur Þorkelsson stjórnar Leirugleði hestamanna í Mosfellsbæ, „látið vaða á súðum og notið þess
að að ærslast og vera til“, sjá bls. 176 í Íslenski hesturinn, útg. MM og SÍH 2004, höfundar: Gísli B.
Björnsson, Hjalti Jón Sveinsson o.fl.
MYND ÚR SAFNI SÍH, SIG.SIGM
(1977). Hann var mjög virkur á því
sviði og tók þátt í að skapa keppnis-
greinina gæðingaskeið.
Friðþjófur var virkur í starfi al-
þjóðasamtaka landssambanda Íslands-
hestafélaga (FEIF) um árabil og var
heiðraður af samtökunum. Hann var
einnig í nánu sambandi við lands-
samtök sumra aðildarlandanna, sér-
staklega Danmörku, þar sinnti hann
mikið kynbótadómum en hann var
áhugasamur um þann þáttinn, ekki
síst þekkingarfræðilega nálgun á
sviðinu og hélt námskeið um þetta
hugðarefni sitt. Skrifaði hann grein
um sköpulag kynbótahrossa ásamt
með Þorvaldi Árnasyni sem birtist í
Hestinum okkar, 2. tbl., 23. árg. 1982:
68-75. Einnig birti hann grein um
samband skeiðs og lendarbyggingar
hrossa í Hestinum okkar, 1. tbl., 20.
árg. 1979: 4-8. Friðþjófur sat í ritnefnd
Hestsins okkar um árabil.
Friðþjófur var einn af forgöngu-
mönnum hestaljósmyndunar hér á
landi og nálgaðist það viðfangsefni
með mjög markvissum hætti, s.s. með
að mynda skipulega liti og litaafbrigði
íslenska hestsins og hafði jafnframt
ríkan vilja til að miðla öðrum af
þekkingu sinni, samanber bókakaflann
„Hestamyndir – Leiðbeiningar um
töku hestamynda“, bls. 42-61 í ritinu
Hesturinn minn – Handbók hesta-
manna, útg. LH 1979. Myndir eftir
Friðþjóf hafa víða birst í blöðum og
bókum, s.s. Íslenski hesturinn - litir og
erfðir, höf.: Stefán Aðalsteinsson, útg.
Ormstunga 2001 og í hans eigin bók
Litir íslenska hestsins, útg. Edda 2006,
kom út á ensku, þýsku og dönsku auk
íslensku. Myndir hans voru og birtar á
plakötum sem t.d. FEIF gaf út. Hann
færði Sögusetri íslenska hestsins
ljósmyndasafn sitt að gjöf með
formlegum hætti þann 4. janúar 2008.
Eiginkona Friðþjófs var Louise Anna
Schilt, þau voru barnlaus.
Niðurlagsorð
Í næstu grein verður enn haldið áfram
þar sem frá er horfið í þessari heillandi
sögu.
Kristinn Hugason
forstöðumaður
Söguseturs íslenska hestsins
01/2021 9