Feykir - 27.01.2021, Qupperneq 2
Húnahornið segir frá því að lesendur miðilsins
hafi valið Valdimar Guðmannsson sem mann
ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2020.
Valdimar hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf
fyrir kirkjugarðinn á Blönduósi og verið jákvæður
og hvetjandi á margan hátt fyrir samfélag sitt.
Hann hefur meðal annars staðið fyrir vinsælum
kótelettukvöldum á Blönduósi, stutt
samfélagsverkefni á svæðinu og verið óþreytandi
að tala jákvætt um allt sem húnvetnskt er.
Í tilnefningum um Valdimar sagði m.a.:
„Hann er ótrúlega duglegur að tala bæinn
Blönduós upp, skapa ný og skemmtileg verkefni,
minna íbúa á gæði bæjarins og þess að búa þar.
Hvetja til nýrra og góðra verka. Sér tækifæri í öllu
og hikar ekki við að benda á þau. Hann er bara
frábær fyrirmynd og hverju samfélagi nauð-
synlegur. Að tala lítið samfélag upp er ofsalega
hvetjandi og skapar jákvæðni meðal íbúa.“
„Valli hefur unnið frábært starf, ásamt öðrum,
við að laga og fegra kirkjugarðinn okkar. Og svo er
hann svo jákvæður og óþreytandi við að tala upp
sveitarfélagið okkar.“
„Fyrir óeigingjarnt starf fyrir samfélagið á
Blönduósi. Maður sem er tilbúinn að leggja allt á
sig hvort sem það tengist félagsstörfum,
kótilettukvöldi eða kirkjugarðinum sem margir
tala um sem fallegasta og snyrtilegasta kirkjugarð
landsins.“
Í frétt Húnahornsins segir að undir eðlilegum
kringumstæðum hefði verið tilkynnt um
niðurstöðuna í valinu á Blöndublóti – þorrablóti
Blönduósinga á laugardagskvöld en vegna
kórónuveirufaraldursins var ekkert þorrablót
haldið. Valdimar fær þess í stað heimsókn frá
Húnahornsmönnum sem afhenda honum
viðurkenningarskjöld til staðfestingar valinu og
gjöf frá Húnahorninu, líkt og venja er.
Fjölmargir aðrir fengu verðskuldaða tilnefn-
ingu en langflestar féllu þær Valdimar í skaut. Má
þar nefna að í öðru sæti í valinu var Jóhannes
Torfason, framkvæmdastjóri Ámundakinnar, og í
þriðja sæti hjónin Björn Þór Kristjánsson og
Sandra Kaubriene sem eiga og reka veitingastaðinn
B&S Restaurant. /ÓAB
Undanfarnar vikur höfum við verið minnt á ótrúleg
kraftaverk vísindanna á einn og annan hátt. Þróun bóluefnis
gegn COVID-19 á undraskömmum tíma er sannkallað afrek,
þrátt fyrir tafir og vandræðagang
í kringum afgreiðslu þess. Það
eru alltaf bjartar hliðar á öllum
málum og ágætt að fréttamenn
geti haft um eitthvað að spyrja á
hinum daglegu upplýsinga-
fundum.
Bóluefni er eitthvað sem okkur
þykir sjálfsagt að sé til en í raun er
ekki svo ýkja langt síðan það var
fundið upp, eða um miðja 19. öld
þegar farið var að þróa þess háttar
lyf til að fyrirbyggja sjúkdóma. Síðan hefur tekist að útrýma eða
halda fjölda sjúkdóma í skefjum með þessari aðferð sem er í
raun svo ofureinföld, það er að segja, þegar búið er að finna upp
viðeigandi efni gegn tilteknum sjúkdómi.
Annað stórvirki sem mér er ofarlega í huga er ágræðsla
tveggja handleggja á hinn ótrúlega Guðmund Felix Grétarsson,
23 árum eftir að hann missti báða handleggina í vinnuslysi.
Aðgerðin er sögð sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum og er
mikið læknisfræðilegt afrek. Þarna er um að ræða handleggi af
öðrum manni en eftir því sem ég kemst næst var það árið 1962
sem heill útlimur var græddur á í fyrsta skiptið en þá var um að
ræða eigin útlim þess sem hann missti.
Til viðbótar við afrek læknavísindanna finnst mér
Guðmundur Felix sjálfur vera ótrúlegur. Að maður sem hefur
beðið í áratug eftir aðgerð sem engin leið er að segja fyrir um
hvort heppnast skuli ekki missa móðinn er ótrúlegt en vafalaust
má þakka það hæfileika Guðmundar til að gera að gamni sínu
við hinar ýmsu aðstæður. Það er mikilvægur eiginleiki.
Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður
LEIÐARI
Undur vísindanna
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is | Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Austur-Húnavatnssýsla
Valdimar Guðmannsson maður ársins
Valdimar Guðmannsson, maður ársins í A-Hún MYND: PF
AFLATÖLUR | Dagana 18. til 24. janúar 2021 á Norðurlandi vestra
Drangey með tæp 279 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Drangey SK 2 Botnvarpa 279.063
Málmey SK 1 Botnvarpa 209.268
Múlaberg SI 22 Botnvarpa 91.522
Alls á Sauðárkróki 579.853
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Landbeitt lína 2.660
Viktoría HU 10 Lína 1.200 Alls á Skagaströnd 3.860
Aðeins tveir bátar lögðu upp á Skagaströnd í síðustu viku og var heildaraflinn 3.860 kg. Á
Króknum var landað tæpum 580 tonnum og voru aðeins þrjú skip með þennan afla og var
Drangey SK 2 aflahæst. Enginn landaði á Hofsósi eða Hvammstanga í síðustu viku og var
heildaraflinn á Norðurlandi vestra 583.713 kg.
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra efna til spjalls um
landbúnað á Facebooksíðu sinni dagana 1. – 5. febrúar næstkom-
andi. Samtökin fá til liðs við sig nokkra viðmælendur sem hafa
ýmislegt til málanna að leggja hvað landbúnað varðar og eiga við
þá hálftíma spjall um landbúnaðarmálin sem eru íbúum Norður-
lands vestra svo mikilvæg.
Dagskrána má nálgast á heimasíðu SSNV, ssnv.is. Samtalið hefst kl.
11.30 alla dagana og mun standa í 30 mínútur. /FE
SSNV
Spjallað um
landbúnað á Facebook
www.skagafjordur.is
Álagningu
fasteignagjalda 2021 lokið
Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lög-
aðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitar-
félagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is
undir flipanum "Mínar síður".
Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og örorku-
lífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2019. Þegar álagning 2021 vegna tekna ársins 2020
liggur fyrir í júní/júlí n.k. verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða
skuldar eftir því sem við á. Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum.
Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.
Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar
á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000
eða í innheimta@skagafjordur.is
2 04/2021