Feykir - 01.02.2021, Qupperneq 10
Í síðustu grein vorum við stödd á
landsmótinu 1978 að Skógarhólum í
Þingvallasveit, því síðasta sem fram
fór á þeim sögufrægu slóðum en á
því móti var m.a. í fyrsta sinn að
finna hestaíþróttir á dagskrá
landsmóts. Á fleiri leiðarstef,
varðandi þróun hestaíþróttanna á
þeim um margt tíðindamikla
áttunda áratug síðustu aldar, hefur
verið minnst.
Heimsleikar íslenska hestsins, eða
Evrópumótin eins og þessi mót voru
þá almennt kölluð, drógu þó sem fyrr
að mestu vagn framþróunar á þessu
sviði og á ýmsu gekk hvað þátttöku
íslenskra knapa varðaði en þeir efldust
jafnt og þétt og aðkoma Íslendinga
varð meiri hvað þróun keppnisgreina
varðaði. Tvímælalaust má segja að
gæðingaskeiðið sé t.d. glæsilegt dæmi
um íþróttakeppnisgrein þar sem Ís-
lendingar höfðu frumkvæðið í mótun
greinarinnar og byggt var á ramm-
þjóðlegri arfleifð í hestamennskunni.
Næsta Evrópumótið er hér var
komið sögu fór svo fram í Uddel í
Hollandi 1979. Fullyrða má að
Íslendingar hafi mætt vel undirbúnir
hvað hestakost og annað varðar, m.a.
var farið tímanlega utan með hrossin
til að treysta undirbúninginn sem þó
því miður sannaðist að getur reynst
tvíbent en hrossin veiktust því að skæð
hrossainflúensa geisaði um vestan-
verða Evrópu. Ótrúlega fínn árangur
náðist þó á mótinu á lánshestum.
Sjötta Evrópumótið fór síðan fram í
Larvík í Noregi árið 1981 en aldrei
áður hafði Evrópumótið verið haldið
svo norðarlega, þó svo Larvík sé ekki
með norðlæga legu þannig séð; er
staðsett við sjóinn á mótum
Oslóarfjarðar og Skagerraks rúmum
100 km suðvestur af Osló. Fallegur
staður í beinum ferjusamgöngum við
Hirtshals á Norður-Jótlandi. Mótið fór
fram á gamalgrónum skeiðvelli en
víða í Evrópu, ekki síst í Skandinavíu,
eru vel uppbyggð mótsvæði þar sem
veðreiðar hafa farið og fara enn fram.
Er það mikil gæfa upp á alla aðstöðu
þar sem landssambönd FEIF-
landanna hafa getað skapað tækifæri
til að nýta slík svæði. Var
gæðingaskeiðið kynningargrein á
mótinu. Það varð svo fullgild grein á
næsta móti árið 1983 sem upphaflega
stóð til að Frakkar héldu en þeir
treystu sér ekki til þess er á hólminn
var komið og tóku Þjóðverjar við því
og fór það fram í smáþorpinu
Roderath í Eifel skammt frá belgísku
landamærunum. Árangur Íslendinga
var góður á þessu móti og viðunandi á
því næsta sem fram fór í Vårgårda í
Svíþjóð 1985, þar fór mótið fram á
æfingasvæði sænska hersins en
Vårgårda er í Vestur-Gautlöndum í
Svíþjóð, stutt inni í landi eða sem
svarar rétt rúmlega 60 km loftlínu
norðvestur af Gautaborg. Þannig að í
bæði þau skipti sem mótin fóru fram í
Skandinavíu var svo sannarlega gætt
að samgöngum og fjarlægðum. Á
þessu móti bættust tvær þátttöku-
þjóðir við; Finnland og Kanada og var
þar með þátttöku þeirrar síðarnefndu
stigið skref til þess að þátttaka á
mótinu yrði útvíkkuð og nafnið
Evrópumót ætti ekki lengur við.
(Byggt á samantekt í bókinni Hestar og
menn 1987. Árbók hestamanna, bls.
198-205. Höf: Guðmundur Jónsson og
Þorgeir Guðlaugsson. Útg.: Skjaldborg
1987).
Íslandsmótið
á Selfossi 1978
Fyrsta Íslandsmótið í hestaíþróttum
fór fram á Selfossi 1978, dagana 19. til
20. ágúst, að því stóðu hestamanna-
félagið Sleipnir og Íþróttaráð LH. Í
bænum fór og fram einkar glæsileg
landbúnaðarsýning á vegum Bún-
aðarsambands Suðurlands og lands-
mótið var svo á Skógarhólum í júlí
sama ár eins og áður segir. Þannig að
mikið var um að vera í Árnesþingi
þetta ár og raunar hvað íslenska
hestinn varðar, því á öllum þessum
atburðum lét hann vitaskuld til sín
taka.
Bjarni E. Sigurðsson, skólastjóri og
hestamaður, löngum kenndur við
Hvol í Ölfusi, skrifaði merkisgrein um
þennan atburð sem birtist í 9. tbl.
Eiðfaxa 1978, bls. 7 til 9. Það er gaman
að skoða þau skrif í ljósi stöðunnar nú
rúmum 40 árum síðar. Um tölt-
keppnina sagði: „Töltkeppnin var
ákaflega skemmtileg grein og þar kom
fram að þjálfun og úthald bæði hests
og knapa er nauðsyn ef þetta á að ná
tilgangi sínum.“ Fögrum orðum var
jafnframt farið um gæðingaskeiðið en
umfjöllun um það birtist í næsta tbl.
Eiðfaxa á bls. 5. Í umfjöllun um hvoru
tveggja fjórgang og fimmgang vék
höfundur að því hve hinn löglegi
íþróttakeppnisvöllur þætti lítill og
sagði m.a.: „Er fimmgangskeppnin
hófst var greinileg spenna í áhorf-
endum og heyra mátti á þeim, er að
skeiðinu kom, að vallarstærð er of
lítil.“ Bjarni var annars mjög jákvæður
út í hestaíþróttirnar, dásamaði þátt
ungu kynslóðarinnar er á mótinu lét
til sín taka en keppt var í unglingaflokki
í tölti og fjórgangi og sá fram á að hún
myndi ná mikið lengra en þeir sem þá
voru í farabroddi eða teknir að
fullorðnast. Hann tók upp kunna
tilvitnun í Churchill sem hljóðar svo:
Ef þú vilt ala drenginn þinn vel upp þá
gefðu honum góðan hest. En bætti við:
„Við breytum þessu í takt við tíðar-
andann og segjum: Ef þú vilt ala
barnið þitt vel upp þá gefðu því góðan
hest.“
Á meðal þátttakenda og gesta voru
aldnar kempur og forystumenn í
íþróttahreyfingunni. Sigurður Ólafs-
son (1916-1993) söngvarinn frægi og
skeiðkóngur var meðal þátttakenda í
gæðingaskeiðinu, eftir honum var haft
og um hann sagt: „Ég er þakklátur
fyrir að fá að taka þátt í þessu og bið
íþróttadeildinni allrar blessunar. Þessi
aldni unglingur stóð þeim yngri
ekkert á sporði og átti auðvelt með að
fylgja þeim reglum er farið var eftir og
var það talandi dæmi um að ekki þarf
aldur að standa í vegi fyrir þátttöku.
„Hesta- og félagsmálamaðurinn Bogi
Eggertsson (1906-1987), sem áður
hefur komið við sögu í greinum
þessum, kvað eftirfarandi aðspurður
um mótið: „Ljómandi gott, á fullan
rétt á sér og meira en það. Þetta er
framtíðin.“ Þá var birt stutt viðtal við
Hafstein Þorvaldsson (1931-2015)
formann UMFÍ, þar sagði hann:
„Sjálfsagt að taka hestaíþróttirnar inn
í íþróttahreyfinguna. Sum ungmenna-
félögin hafa nú þegar tekið þetta inn á
stefnuskrá sína. Svona aðstaða er
jafnsjálfsögð og önnur íþróttamann-
virki. Annars þarf umræður um þessi
mál og styrkja þessi málefni án þess að
skerða þá starfsemi er fyrir er í gangi.
Þessi keppni er geysiskemmtileg, þetta
er svo fjölþætt og greinilegt að til þarf
þjálfun eins og við aðrar íþrótta-
greinar.“
Á þessum árum var einmitt að eiga
sér stað hröð hreyfing í þá átt sem
Hafsteinn boðaði en í síðustu grein
var getið um stofnun íþróttadeildar
Fáks 1976 og 1977. Íþróttadeild Fáks
fékk svo inngöngu ÍBR árið 1984 og
Íþróttaráð LH fékk svo stöðu sér-
sambands innan ÍSÍ árið 1987.
Niðurlagsorð
Í næstu grein verður enn haldið áfram
þar sem frá er horfið í þessari heillandi
sögu.
Kristinn Hugason
forstöðumaður
Söguseturs íslenska hestsins
HESTAR OG MENN | palli@feykir.is
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Íþróttakeppnir sagan áfram – fyrsta Íslandsmótið í hestaíþróttum
Reynir Aðalsteinsson (1944-2012) á Stjarna frá Svignaskarði á fyrsta Evrópumótinu, árið 1970. Reynir var fremsti knapi Íslendinga á upphafsskeiði hesta-
íþróttanna á Íslandi og hlaut fyrstur manna gráðu tamningameistara FT árið 1978. Hann markaði djúp spor með lífsstarfi sínu í hestamennsku.
MYND ÚR SAFNI SÍH, FRIÐÞJ.ÞORKELSS.
10 05/2021