Feykir - 01.02.2021, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Völlur..
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Ferðu á
skíði?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„Nei, fer aldrei á skíði.“
Aðalbjörg Hallmundsdóttir
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Á heimasíðu Prima krydds á Blönduósi segir að tvenns konar krydd komi
af múskat-trjánum. Annars vegar múskatið sjálft, og svo múskathýðið.
Múskatið er gert úr fræinu, en hitt úr hýðinu utan um fræið. Bragðið af
hvoru tveggja er mjög svipað, en hýðið er þó ögn beiskara. Ótrúlegt, en
kannski satt, þá er múskat mjög eitrað ef því er sprautað í æð.
Tilvitnun vikunnar
Ráðleggingar eru eitthvað sem við biðjum um þegar við vitum
svarið en vildum að við gerðum það ekki.
– Erica Jong
„Nei, en ég fer á bretti.
Fjölskyldan fer á skíði en ég
hef ekki náð að „þroskast”
upp úr brettinu.“
Hugi Halldórsson
„Ég á snjóbretti
en hef ekki notað það í þrjú
ár held ég. Mun bæta
úr því í vetur!“
Ingvi Hrannar Ómarsson
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lesið af rafmagnsmælinum.
F
„Já, ég reyni
að fara reglulega.“
Bertína Rodriguez
út og penslið kjötið með BBQ sósu,
ég nota sjálfur Sweet Baby Ray BBQ
sósuna. Setjið pottinn aftur inn án
loks og klárið eldunartímann. Þegar
kjötið er fulleldað er það tekið úr
pottinum og látið kólna á eldhús-
bekknum. Þegar það er orðið
þokkalega kalt þá takið þið tvo
gaffla og rífið kjötið af beininu og
tætið í sundur með þeim.
Takið hamborgarabrauð, setjið
BBQ sósu á botninn og lokið, salat-
blað og t.d. góða tómatsneið, því
næst vel af rifna kjötinu og njótið.
Það má vel leika sér með meðlætið
með kjötinu og hvað þú vilt hafa
með.
Það má vel frysta rifið grísakjöt
og munið að þetta er fulleldað.
Mér finnst hins vegar best að hita
það upp í potti og hræra smá BBQ
sósu saman við.
RÉTTUR 2
Kjúklingur á vöfflum
Kókosmassi:
kjúklinganaggar
vöffludeig
1/2 dós sýrður rjómi
harissa „paste“
hlynsýróp, (maple syrop)
ferskur kóríander
Aðferð: Bestu naggarnir sem ég hef
komist í tæri við (hef ekki prufað
að gera þá sjálfur) fást í Costco og
heita Flaming Chicken Nuggets. Þeir
eru vel kryddaðir og spicy. Hitið
naggana í ofni og á meðan búið þið
til vöfflur og mæli ég með Vilko
vöfflunum, mjög fljótlegar. Síðan
takið þið ½ dós af sýrða rjómanum
og hrærið saman við hann u.þ.b.
msk. af Harissa kreminu (paste).
Harissa er sterkt svo ég mæli með
því að þið smakkið ykkur áfram
með þetta. Þegar kjúklingurinn og
vöfflurnar eru tilbúnar er bara að
njóta. Setjið kjúklinganagga á
vöffluna, setjið smávegis yfir nagg-
ana af Harissablöndunni, vel af
sýrópi og stráið yfir ferskum
kóríander.
Verði ykkur að góðu!
Gunnar Bragi skorar á þau Ditte og
Frímann að taka við matgæð-
ingnum af honum og vonast til að fá
smá danskan blæ á þáttinn þeirra.
Rifinn grís og
kjúklingur á vöfflu
Matgæðingur þessa vikuna er Gunnar Bragi Sveinsson en sonur
hans, Róbert Smári Gunnarsson, skoraði á pabba sinn að taka
við boltanum í þessum matarþætti. Gunnar Bragi hefur verið
áberandi í pólitíkinni fyrir hönd Framsóknarmanna en í dag er
hann kenndur við Miðflokkinn og er búsettur á Reykjavíkur-
svæðinu en fæddur og uppalinn á Sauðárkróki.
„Hér eru tvær uppskriftir sem eru einfaldar en góðar. Sú fyrri er
rifinn grís eða „pulled pork“ en seinni er sáraeinföld og kemur
skemmtilega á óvart“, segir Gunnar Bragi.
RÉTTUR 1
Hægeldaður rifinn grís
(pulled pork)
1 stk. grís, nei þetta er
nú djók, grísabógur
2-3 laukar (til þess að setja í
botninn á pottinum).
Sweet Baby BBQ sósa
hamborgarabrauð
álegg eins og t.d. salat og tómata
Ég nota grísabóg því hann fæst oft
á góðu verði og þrátt fyrir að beinið
sé stórt er einnig mikið af kjöti. Ég
sker mest af þykku fitunni af því
mér finnst allt verða löðrandi í fitu
ef hún er með en það skal tekið fram
að þetta er nú bara smekksatriði.
Kryddblandan á bóginn:
200 g púðursykur
4 hvítlauksrif (pressuð)
1 tsk. reykt paprikukrydd
1 tsk. paprikukrydd
1 tsk. cuminkrydd
1/2 tsk. cayennepipar
1 msk. ólífuolía
salt og pipar
Aðferð: Fyrst er bógurinn snyrtur
og síðan kryddaður með pipar og
salti eftir smekk. Blandið saman
púðursykri, kryddunum og ólífu-
olíunni og makið vel á bóginn. Best
að gera þetta með höndunum (gott
að nota einnota hanska) og nudda
vel á allan bóginn. Ef blandan er
ekki næg að ykkar mati þá er bara
að búa til meira. Ekki er verra að
krydda bóginn sólarhring áður.
Skerið nú tvo til þrjá lauka og
setjið í botninn á potti sem rúmar
bóginn. Svörtu steikarpottarnir eru
fínir en ekki síðri eru steypujárns-
pottarnir því hvoru tveggja má fara í
ofn. Leggið svo bóginn ofan á
laukana, lokið pottinum og eldið í
ofni við 150°C í 4 klst. (Það má hafa
hitann lægri en auka þá tímann).
Þegar ca. 30 mínútur eru eftir af
eldunartímanum takið þá pottinn
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is
Gunnar Bragi. AÐSEND MYND
05/2021 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Hraustur þessum heldur stað.
Á hverju vori grær hann.
Honum hníga allir að.
Oft á þeim, sem slær hann.