Feykir


Feykir - 01.02.2021, Blaðsíða 11

Feykir - 01.02.2021, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Völlur.. Sudoku Krossgáta FEYKIFÍN AFÞREYING Feykir spyr... Ferðu á skíði? Spurt á Facebook UMSJÓN : klara@nyprent.is „Nei, fer aldrei á skíði.“ Aðalbjörg Hallmundsdóttir Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum: Ótrúlegt - en kannski satt... Á heimasíðu Prima krydds á Blönduósi segir að tvenns konar krydd komi af múskat-trjánum. Annars vegar múskatið sjálft, og svo múskathýðið. Múskatið er gert úr fræinu, en hitt úr hýðinu utan um fræið. Bragðið af hvoru tveggja er mjög svipað, en hýðið er þó ögn beiskara. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er múskat mjög eitrað ef því er sprautað í æð. Tilvitnun vikunnar Ráðleggingar eru eitthvað sem við biðjum um þegar við vitum svarið en vildum að við gerðum það ekki. – Erica Jong „Nei, en ég fer á bretti. Fjölskyldan fer á skíði en ég hef ekki náð að „þroskast” upp úr brettinu.“ Hugi Halldórsson „Ég á snjóbretti en hef ekki notað það í þrjú ár held ég. Mun bæta úr því í vetur!“ Ingvi Hrannar Ómarsson LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lesið af rafmagnsmælinum. F „Já, ég reyni að fara reglulega.“ Bertína Rodriguez út og penslið kjötið með BBQ sósu, ég nota sjálfur Sweet Baby Ray BBQ sósuna. Setjið pottinn aftur inn án loks og klárið eldunartímann. Þegar kjötið er fulleldað er það tekið úr pottinum og látið kólna á eldhús- bekknum. Þegar það er orðið þokkalega kalt þá takið þið tvo gaffla og rífið kjötið af beininu og tætið í sundur með þeim. Takið hamborgarabrauð, setjið BBQ sósu á botninn og lokið, salat- blað og t.d. góða tómatsneið, því næst vel af rifna kjötinu og njótið. Það má vel leika sér með meðlætið með kjötinu og hvað þú vilt hafa með. Það má vel frysta rifið grísakjöt og munið að þetta er fulleldað. Mér finnst hins vegar best að hita það upp í potti og hræra smá BBQ sósu saman við. RÉTTUR 2 Kjúklingur á vöfflum Kókosmassi: kjúklinganaggar vöffludeig 1/2 dós sýrður rjómi harissa „paste“ hlynsýróp, (maple syrop) ferskur kóríander Aðferð: Bestu naggarnir sem ég hef komist í tæri við (hef ekki prufað að gera þá sjálfur) fást í Costco og heita Flaming Chicken Nuggets. Þeir eru vel kryddaðir og spicy. Hitið naggana í ofni og á meðan búið þið til vöfflur og mæli ég með Vilko vöfflunum, mjög fljótlegar. Síðan takið þið ½ dós af sýrða rjómanum og hrærið saman við hann u.þ.b. msk. af Harissa kreminu (paste). Harissa er sterkt svo ég mæli með því að þið smakkið ykkur áfram með þetta. Þegar kjúklingurinn og vöfflurnar eru tilbúnar er bara að njóta. Setjið kjúklinganagga á vöffluna, setjið smávegis yfir nagg- ana af Harissablöndunni, vel af sýrópi og stráið yfir ferskum kóríander. Verði ykkur að góðu! Gunnar Bragi skorar á þau Ditte og Frímann að taka við matgæð- ingnum af honum og vonast til að fá smá danskan blæ á þáttinn þeirra. Rifinn grís og kjúklingur á vöfflu Matgæðingur þessa vikuna er Gunnar Bragi Sveinsson en sonur hans, Róbert Smári Gunnarsson, skoraði á pabba sinn að taka við boltanum í þessum matarþætti. Gunnar Bragi hefur verið áberandi í pólitíkinni fyrir hönd Framsóknarmanna en í dag er hann kenndur við Miðflokkinn og er búsettur á Reykjavíkur- svæðinu en fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. „Hér eru tvær uppskriftir sem eru einfaldar en góðar. Sú fyrri er rifinn grís eða „pulled pork“ en seinni er sáraeinföld og kemur skemmtilega á óvart“, segir Gunnar Bragi. RÉTTUR 1 Hægeldaður rifinn grís (pulled pork) 1 stk. grís, nei þetta er nú djók, grísabógur 2-3 laukar (til þess að setja í botninn á pottinum). Sweet Baby BBQ sósa hamborgarabrauð álegg eins og t.d. salat og tómata Ég nota grísabóg því hann fæst oft á góðu verði og þrátt fyrir að beinið sé stórt er einnig mikið af kjöti. Ég sker mest af þykku fitunni af því mér finnst allt verða löðrandi í fitu ef hún er með en það skal tekið fram að þetta er nú bara smekksatriði. Kryddblandan á bóginn: 200 g púðursykur 4 hvítlauksrif (pressuð) 1 tsk. reykt paprikukrydd 1 tsk. paprikukrydd 1 tsk. cuminkrydd 1/2 tsk. cayennepipar 1 msk. ólífuolía salt og pipar Aðferð: Fyrst er bógurinn snyrtur og síðan kryddaður með pipar og salti eftir smekk. Blandið saman púðursykri, kryddunum og ólífu- olíunni og makið vel á bóginn. Best að gera þetta með höndunum (gott að nota einnota hanska) og nudda vel á allan bóginn. Ef blandan er ekki næg að ykkar mati þá er bara að búa til meira. Ekki er verra að krydda bóginn sólarhring áður. Skerið nú tvo til þrjá lauka og setjið í botninn á potti sem rúmar bóginn. Svörtu steikarpottarnir eru fínir en ekki síðri eru steypujárns- pottarnir því hvoru tveggja má fara í ofn. Leggið svo bóginn ofan á laukana, lokið pottinum og eldið í ofni við 150°C í 4 klst. (Það má hafa hitann lægri en auka þá tímann). Þegar ca. 30 mínútur eru eftir af eldunartímanum takið þá pottinn ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is Gunnar Bragi. AÐSEND MYND 05/2021 11 Vísnagátur Sveins Víkings Hraustur þessum heldur stað. Á hverju vori grær hann. Honum hníga allir að. Oft á þeim, sem slær hann.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.