Morgunblaðið - 22.04.2022, Side 18

Morgunblaðið - 22.04.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 ✝ Elín Pálma- dóttir fæddist í Reykjavík 31. janúar 1927. Hún lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu við Brúnaveg 2. apríl 2022. Elín var dóttir hjónanna Tóm- asínu Kristínar Árnadóttur, f. 17.5. 1899, d. 10.4. 1953 og Pálma Hannesar Jóns- sonar, skrifstofustjóra hjá Kveldúlfi, f. 10.10. 1902, d. 3.10. 1992. Systkini Elínar eru Sólveig, fv. skrifstofustjóri á Landspít- ala, f. 25.2. 1929, Árni Jón, sérkennari við Fellaskóla, f. 4.4. 1931, d. 10.1. 1993 og Helga, fv. sviðsstjóri á sjón- varpi RÚV, f. 4.7. 1936. Hálf- bróðir samfeðra var Pétur við- skiptafræðingur, f. 24.9. 1922, d. 11.4. 1998, móðir hans var Þórunn Einarsdóttir, f. 19.8. 1897, d. 24.3. 1976. Að loknu stúdentsprófi og námi við Háskóla Íslands hóf Elín störf fyrir utanríkisráðu- neytið árið 1948 og starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og sendiráðinu í París. Elín sneri sér að blaða- mennsku árið 1952, vann fyrst hjá Vikunni en hóf störf hjá umhverfismál mjög til sín taka, var formaður Nátt- úruverndarnefndar og Um- hverfisráðs, stjórnarformaður Bláfjallafólkvangs frá stofnun 1973-1986, stjórnarformaður Reykjanesfólkvangs frá stofn- un 1975-1986 og átti sæti í Náttúruverndarráði um langt skeið. Elín var stjórn- arformaður Borgar- bókasafnsins um skeið sem og stjórnarformaður Kjarvals- stofu í París. Hún tók virkan þátt í starfi Zonta-samtak- anna. Elínu hlotnaðist marg- víslegur heiður fyrir störf sín. Forseti Íslands veitti henni riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1997. Forseti Frakklands sæmdi hana Che- valier de l’Ordre National du Mérite árið 1999 og orðu frönsku heiðursfylkingarinnar Ordre National de la Légion d’Honneur árið 2015, æðstu orðu sem veitt er þar í landi. Árið 2002 var Elín heiðruð með gullmerki Ferðafélags Ís- lands og af öllum helstu nátt- úruverndarsamtökum landsins fyrir einstakt framlag til nátt- úru- og umhverfisverndarmála árið 2004. Þá voru henni jafn- framt veittar heiðursvið- urkenningar frá hinu Íslenska Náttúrufræðifélagi og Blaða- mannafélagi Íslands. Elín verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, 22. apríl 2022, klukkan 13. Morgunblaðinu 1958. Þar starfaði hún í hartnær 40 ár og lét af störf- um fyrir aldurs sakir 1997. Hún hélt þó ótrauð áfram greinaskrif- um. Elín einbeitti sér að skrifum um náttúru og nátt- úruvernd, elds- umbrot og jökla- rannsóknir og var með þeim fyrstu sem fóru til Vest- mannaeyja nóttina sem gosið hófst. Hún skrifaði einnig ít- arlega um hlutskipti fólks á átakasvæðum sem hún heim- sótti í Asíu, Afríku og á Balk- anskaga. Eftir Elínu liggur bókin Fransí biskví sem kom út árið 1989 og fjallar um þriggja alda sögu frönsku Íslands- sjómannanna en hún var til- nefnd til Íslensku bókmennta- verðlaunanna árið 1990. Aðrar bækur Elínar eru Gerður, ævi- saga Gerðar Helgadóttur myndhöggvara (1985), Með fortíðina í farteskinu (1996) og Eins og ég man það (2003). Elín tók þátt í stjórnmálum, var m.a. borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn á árunum 1970- 1982. Á þeim vettvangi lét hún Elínu Pálmadóttur móðursyst- ur minni hefur sennilega tekist að gera flest af því sem hún ætlaði sér í lífinu. Og það var ófátt. Hún var hugmyndarík, áræðin og sannkallaður orkubolti. Áhuga- svið hennar var breitt – menning ólíkra landa; íslensk náttúra; líf í ríkjum Asíu, Afríku og Balkan- skaga eftir ógnir og stríð; saga franskra sjómanna; listir; nýir möguleikar almennings til útivist- ar og skíðaiðkunar; miðlun um vís- indi og náttúruvernd. Þá er fátt eitt talið. Elín hefur fylgt mér alla ævi. Kveðjustundin er því þrungin en um leið uppspretta ljúfra minn- inga. Ég man ferð okkar um land- ið á Volkswagen-bjöllunni hennar þegar ég var 11 ára með viðkomu í Jökulheimum þar sem saman voru komnir jarðvísindamenn og jöklavinir. Ég man þegar ég bjó hjá henni 17 ára á Kleppsvegi þeg- ar fjölskylda mín var í Bandaríkj- unum. Hún eldaði þar allan mat á forláta rafmagnspönnu, uppáhald- ið ýsa með púrrulauk og sítrónu. Minnisstæðar eru heimsóknir Gerðar Helgadóttur myndhöggv- ara og annarra skemmtilegra vina. Ég man heimsóknir á Mogg- ann í Aðalstræti eftir skóladag í MR og eftirminnilega blaðamenn, ritstjóra og ljósmyndara og þá sérstöku stemningu sem ríkti í byggingunni þegar Elín var á kvöldvakt. Ég man ótal listvið- burði sem hún bauð mér á – Rost- ropovich, Pavarotti, du Pré, Me- nuhin, Helgi Tómasson. Allt hafði þetta áhrif og í raun meiri en ég hef áður áttað mig á. Elín eignaðist ekki börn en þótti mikið til okkar systkina- barna sinna koma. Hún dró hvergi af sér við að hrósa mannkostum okkar hvar sem hún kom og þótti mörgum nóg um. Okkur varð aldr- ei sundurorða utan einu sinni þeg- ar ég á fimmtugsaldri keypti mér nýjan svefnpoka. Það þótti henni bruðl og minnti, augljóslega særð, á kanadíska dúnpokann sem hún hafði gefið mér í fermingargjöf. Hann hlyti að vera nógu góður. Sjálf var hún fram úr hófi nýtin og nægjusöm á allan hátt en sérlega gjafmild í garð annarra, gjafirnar vandaðar og smekklegar. Og örlát var hún svo sannarlega á tíma sinn öllum þeim fjölmörgu sem leituðu ásjár hennar. Elín flutti sextug á Grandaveg og gerði strax ráðstafanir til að geta búið þar sjálfstæðu lífi fram eftir aldri. Þegar henni var ráðlagt að þjálfa betur vöðva í fótleggjum, þá komin fast að níræðu, tók hún sig til og gekk á hverjum morgni upp sjö hæðir í húsinu. Heimilið var stílhreint með útsýni til norð- urs yfir Faxaflóann og þar naut hún sín umkringd bókum og list- munum hvaðanæva úr heiminum. Elín fór ung til starfa við sendi- ráð Íslands í París og tók ástfóstri við Frakkland. Starfa minna vegna lá leiðin til Parísar skömmu eftir andlát hennar. Þar var gott að feta gamlar slóðir hennar og sjá hana fyrir sér rúmlega tvítuga með allt lífið fram undan. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að eiga hlutdeild í þeirri vegferð. Hún sýndi mér og mínu fólki mikinn kærleik, óbifandi stuðning og einlægan áhuga á öll- um okkar viðfangsefnum. Elín var náttúruafl allt til hinstu stundar. Megi hún nú hvíla í friði með þakklæti fyrir allt og allt. Kristín Ingólfsdóttir. Elín Pálmadóttir var þátttak- andi í öllum stórum stundum í lífi mínu og ótal hversdagsaugnablik- um frá því ég kynntist systurdótt- ur hennar. Elín, sem margir þekktu sem Ellu Pálma, var landsþekktur blaðamaður á Morgunblaðinu. Fyrir norðanpilt, sem varla hafði séð út fyrir fjalla- hring fjarðanna þar, voru kynni við Ellu eins og rafmögnuð skynditenging við fjarlægustu heimshorn – Asíu, Afríku og Am- eríku. Hún hafði alls staðar verið, alla hitt og allt reynt. Elín var ástríðublaðamaður og trúði því staðfastlega að það myndi leiða til góðs fengi fólk upp- lýsingar og skoðaði öll mál frá sem flestum hliðum. Hún hafði líka lag á að leiða þessar upplýsingar fram í gegnum viðmælendur, sem allir urðu betri sagnamenn en ella vegna þess hve þeir höfðu áhuga- saman skrásetjara. Einstaka sinn- um varð hún þátttakandi í sögunni sem hún taldi sig þurfa að segja og gat þá legið mikið á hjarta. Hún var mjög einlægur náttúruvernd- arsinni og um það vitnar aragrúi viðtala og greina sem hún ritaði um náttúru, náttúruhamfarir og náttúruauðlindir. Hún gat þá stundum ekki beðið útkomu blaðs- ins heldur rakti ítarlega fyrir þeim sem heyra vildu efni sögunnar sem hún var með í höfðinu og beið þess að komast í Moggann. Svo flutu með upplýsingar sem voru á leið í bækur á borð við stórvirkið „Fransí biskví“ eða endurminn- ingabókina „Eins og ég man það“. Elín vann í fjóra áratugi á Mogg- anum og það má segja að fé- lagarnir þar hafi orðið hennar önnur fjölskylda. Í pólitík var Elín að segja má fædd inn í Sjálfstæðisflokkinn. Pálmi faðir hennar var einn af stofnendum Heimdalls. En þó að heiðblár íhaldshiminn hvelfdist yf- ir öllu hennar umhverfi var af- staða hennar til manna og málefna fyrst og fremst byggð á mann- skilningi og velvild. Hún lokaði sig aldrei af í neinum skilningi og alls ekki í pólitík. Hún fylgdi ekki trúarsetningum eða kreddum. Hún hafði of víða verið, of marga hitt, of margt séð og engu gleymt. Elín bjó ein, en hún var aldrei ein. Hún var afar frændrækin, en ég varð líka vitni að því hve hún var hjálpsöm og vinmörg, greið- vikin og örlát langt út fyrir fjöl- skyldu- og flokkabönd. Það gaf mér enginn jafn hagnýtar jóla- gjafir og Ella. Þær miðuðu gjarn- an við aðstæður sem hún hafði sjálf upplifað á ferðum í fjarlæg- um löndum og stríðshrjáðum. Þar á meðal er græja til að sjóða vatn þar sem ómengað neysluvatn er ófáanlegt. Líka fjölnota vasahníf- ur til lífsbjargar í frumskógi. Svo fylgdi reyndar einhvern tíma áburður gegn hárþynningu, sem hún taldi fráleitt að ég léti yfir mig ganga. Það reyndist tapað stríð. Stærsta gjöfin sem hún gaf mér og öllu samferðafólki var velvild og lífsgleði sem geislaði af henni. Það er gott að muna Ellu Pálma. Það er gott að muna góð- mennsku sem engan greinarmun gerði á fólki, brennandi áhuga á hlutskipti fólks og þessa óbælandi þörf fyrir að miðla til annarra. Hvort heldur ég rifja upp stóru stundirnar eða hversdagsaugna- blikin sem við áttum saman er allt- af bjart yfir minningunum. Henn- ar lífi var vel lifað. Einar Sigurðsson. Nú er hún Elín Pálmadóttir blaðamaður látin, 95 ára að aldri. Mig langar til að minnast stóru systur minnar með nokkrum orð- um. Þar sem ég ólst upp á Siglufirði hjá fósturforeldrum mínum var samband okkar ekki mikið fyrstu árin. Mæður mínar, systurnar, voru þó alltaf í miklum samskipt- um en móðir okkar fékk lömunar- sjúkdóm og lést langt um aldur fram. Þegar ég fór að geta ferðast ein var ég send til Hjalteyrar að sumri til en þar dvaldi faðir okkar með alla fjölskylduna á meðan síldveiðarnar voru í gangi og starfaði fyrir Kveldúlf. Ella fékk þá vinnu á rannsóknarstofu Síld- arverksmiðjunnar við að mæla fitu síldarinnar m.a. Þarna var mikið fjör og hafði Ella orð á því seinna hve gaman hefði verið á Hjalteyri. Þegar Ella vann í sendiráðinu í París heillaðist hún af franskri menningu og öllu sem franskt var. Hún umgekkst þar marga ís- lenska listamenn, m.a. Gerði Helgadóttur, og þær urðu miklar vinkonur. Seinna skrifaði Ella bók um ævi hennar. Áður en Ella fór til Parísar hafði hún verið nemi hjá hinum nýstofnuðu Sameinuðu þjóðum í New York og upplifði þar margt áhugavert. Hún sagði mér meðal annars frá Eleanor Roosevelt fyrrum forsetafrú sem hafði oft samband við erlendu nemana, bauð þeim heim og sagði þeim frá hugsjónum sínum og vonum um frið og mannréttindi. Á fyrsta ári mínu í menntaskóla bjó ég hjá Ellu og Pálma föður okkar á Öldugötu 3. Þá kynntumst við Ella afskaplega vel og ævilöng vinátta myndaðist. Ég var alin upp við mikinn bóklestur en var ekki komin að Laxness á þessum tíma. Systir mín bætti snarlega úr því, lánaði mér Barn náttúrunnar og Sölku Völku svo ekki varð aftur snúið. Halldór Laxness varð minn maður. Hún vakti líka athygli mína á frönskum bókmenntum. Ella hóf sinn blaðamannsferil hjá Vikunni. Því fylgdu fríðindi og fékk Ella oft miða á frumsýningar leikhúsa og á opnanir listsýninga. Tók hún mig þá með sér, mér til ómældrar ánægju. Ella var ósínk á að lána mér fal- legu Parísarfötin sín. Einu sinni kom babb í bátinn. Ég var að fara á frumsýningu hjá Menntaskólan- um en Ella að skrifa um sýn- inguna fyrir Vikuna. Hún var í mestu vandræðum með að finna viðeigandi föt á sig því ég hafði sýnt mig í þeim öllum í skólanum. Seinna var það gæðingurinn Sokki sem tengdi okkur nánum böndum. Pálmi faðir okkar var forfallinn hestamaður og hélt hesta í Reykjavík. Hann lánaði okkur Ellu gæðinginn Sokka sem við höfðum í hesthúsunum inn við Elliðaár. Á þessum tíma vann ég sem flugfreyja hjá Loftleiðum. Það hentaði vel, Ella hafði Sokka fyrir sig þegar ég var að fljúga en milli ferða hafði ég hann. Svo önn- uðumst við hann saman. Ég varð auðvitað fyrir áhrifum af áhuga Ellu á verndun náttúr- unnar og jafnréttismálum. Hún átti langan feril hjá Morgun- blaðinu og gekk þar í öll störf til jafns við strákana sem ekki var sjálfgefið. Ella minnti mig á að konur gætu allt ef viljinn væri fyr- ir hendi. Það var uppörvandi. Mínum börnum var Ella ynd- isleg móðursystir og barnabörnin dáðust að henni, einkum þegar þau áttuðu sig á að hún var blaða- maður og heimshornaflakkari eins og Tinni. Hvíl í friði. Helga. Ungum nýráðnum þingfrétta- ritara var vísað af liprum sam- starfsmönnum Morgunblaðsins inn í myndarlegt glerbúr sem upp- lagt væri að hann legði undir sig og þingskrifarastörfin. Þóttist ný- græðingurinn heppinn og ham- ingjusamur og tók að koma sér fyr- ir í þessari líka prýðilegu aðstöðu. Svo sem hálfri stund síðar var hurðinni að dásemdinni hrundið upp af alkunnum dugnaði þess sem átti í hlut. Þar var Elín Pálmadóttir. Hvað vildi þessi spraðurbassi upp á dekk? Varnir um að viðkomandi hefði verið vísað á þann stað af þeim sem bestu þekktu til, þeim sömu sem reyndar virtust hafa framlengt kaffipásu sína til að sjá lokin á brandara sínum. Þessi fyrsti dagur á Mogganum byrjaði ekki sem best. En skálkar, sem gerðu sér dagamun, vísuðu nýja manninum út í sitt horn. Það var ekkert stúkusæti. En þing- fréttaritari hafði ágæta aðstöðu í þinginu og náði að ljúka drjúgum hluta sinna verkefna þar. Kynni okkar Elínar gátu frá fyrstu stundu ekki átt neitt eftir nema að batna. Ég þekkti hana af afspurn. Fjöldi manna hafði á henni mikið álit. Dugnaður hennar var með ein- dæmum. Hún baðst sjaldan undan verki og aldrei af þeirri ástæðu að það væri nær óvinnanlegt eða bein- línis hættulegt. Þeir eiginleikar ýttu undir ákafa Elínar að fá að fást við það. Hvort sem hún lenti á fljótandi borgarísjaka eða austur í Víetnam við vafasamar aðstæður, sem stundum voru ekki ýkjur að teldust lífshættulegar. Elín Pálmadóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Orðuveiting Elín var heiðruð af franska ríkinu í tvígang. Hér fær hún orðuna Ordre National de la Légion d’Honneur árið 2015, en það er æðsti heiður sem veittur er í Frakklandi. Borgarstjórn Elín var borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1970-1982. Hér situr hún við hlið Birgis Ísleifs Gunnarssonar, oddvita flokksins í borgarstjórn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.