Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 32
FERMINGAR TILBOÐ GÓÐUR STUÐNINGUR VIÐMJÓBAK ÝMIR HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT POKAGORMAKERFI Styður mun betur við líkamann en venjuleg gormakerfi. Pokagormarnir eru meðmis- þykkum vír eftir því hvar þeir eru staðsettir í dýnunni.Mjúkir við axlasvæði, stífir við mjóbakssvæði,millistífir í miðjunni. 330 gormar per fm2. Tvíhert stál. VERÐ ÁÐURSTÆRÐ VERÐ NÚ 120×200 140×200 150×200 99.900 kr. 114.900 kr. 129.900 kr. 89.900 kr. 104.900 kr. 119.900 kr. Öll verð með PU botni og fótum. ATH. fleiri stæðir í boði. V e rð b ir t m e ð fy ri rv a ra u m in n sl á tt a rv il lu r o g /e ð a b re yt in g a r. FRIGG, ÓÐINN OG IÐUNN: Öll verð eru með PU botni og fótum. ATH.fleiri stæðir í boði. STÆRÐ VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ 120×200 140×200 150×200 139.900 kr. 159.900 kr. 179.900 kr. 119.900 kr. 139.900 kr. 159.900 kr. IÐUNN GÓÐ SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNA SEM STYÐUR RÉTT VIÐ LÍKAMANN Cool efnablandan aðlagast líkamanumog gefur betri öndun.Góðþrýstijöfnunog réttur stuðningur tryggir betra blóðflæði ogbetri líðan, þú færðdýpri ogbetri svefn. FRIGG HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI Með5 svæðaskiptu pokagormakerfi.Góður mjóbaksstuðningur. Mýkra og betra axlasvæði. Þrýstijöfnunarefni í bólstrun. Vandaðar kantstyrkingar. Fullkomin nýting á svefnfleti. ÓÐINN HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI Með5 svæðaskiptu pokagormakerfi.Góður mjóbaksstuðningur.Mýkra ogbetra axlasvæði. Þrýstijöfnunarefni í bólstrun.Vandaðar kantstyrkingar.Fullkominnýting á svefnfleti. – MILLISTÍF – STÍF 25% AFSLÁTTUR AF FYLGIHLUTUM VIÐ DÝNUKAUP VERÐ SEM KOMA Á ÓVART Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Hljómsveitirnar Dúkkulísurnar og Tappi Tíkarrass koma fram á tónleikum á Húrra í kvöld, 22. apríl, kl. 19. Báðar sveitir voru áberandi í íslensku tónlistarlífi á níunda áratugnum. Dúkkulísurnar störfuðu af krafti frá árinu 1982 til ársins 1987 og hafa starfað með hléum eftir það. Tappi Tíkarrass var ein þeirra sveita sem komu fram í heimildarmyndinni Rokk í Reykjavík árið 1982 og lagðist sveitin í dvala ári síðar en reis upp frá dauðum árið 2015 og er í dag skipuð upphaflegum liðsmönnum hljómsveitarinnar. Sveitin hefur sent frá sér tvær plöt- ur eftir upprisuna og verður í kvöld flutt blanda af gömlu og nýju efni. Dúkkulísur og Tappi á Húrra FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 112. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Tindastóll lagði deildarmeistara Njarðvíkur að velli, 84:79, í fyrsta undanúrslitaleik liðanna á Íslandsmóti karla í körfuknattleik sem fram fór í Njarðvík í gær- kvöld. Sauðkrækingar eru því komnir með undirtökin og fá tækifæri til að komast í 2:0 á sínum heimavelli en liðin mætast þar á sunnudagskvöldið. »26 Tindastóll byrjar á sigri í Njarðvík ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hjónin Ásmundur Kristjánsson og Guðrún Hildur Rosenkjær hafa rek- ið fyrirtækið Annríki á Suðurgötu 73 í Hafnarfirði frá 2011. Þau sérhæfa sig í íslenskum þjóðbúningum og skarti, hafa eignast gott safn bún- inga á liðnum árum, hafa í raun sprengt húsnæðið utan af sér og vilja stækka við sig, en hafa ekki enn fundið heppilegt rými. „Okkur lang- ar til þess að tengjast safnastarfsem- inni í Hafnarfirði með einhverjum hætti, því í raun rekum við fræðaset- ur og sýnum þjóðbúningana á gínum á föstudögum,“ segir Guðrún Hildur. Ásmundur er vélvirki og gull- smiður og sérhæfir sig í gerð þjóð- búningaskarts. Guðrún Hildur er klæðskeri og kjólameistari auk þess að vera sagnfræðingur í meist- aranámi. Hún vann áður í 15 ár við þjóðbúningasaum og -kennslu hjá Heimilisiðnaðarfélaginu og hefur sökkt sér ofan í söguna. „Þetta er mikill menningaraarfur, ekki bara föt, og sagan er ótrúlega merkileg,“ segir hún. Stór hluti starfsins felist í að endurgera muni, sem aðeins séu til á söfnum eða hafa varðveist í rit- uðum heimildum. Í því sambandi nefnir hún svonefndan Viðeyjarbún- ing, sem Magnús Stephensen seldi úr landi á sínum tíma. Þau hafi tvisv- ar farið til London til þess að kynna sér hann nákvæmlega með end- urgerð í huga, fyrst 1999 og síðan 2015. Rannsóknir og fræðsla Í meistaranáminu rannsakar Guð- rún Hildur sögu búninganna og er komin aftur á fyrri hluta 18. aldar. Hún segir að rannsóknirnar skili sér í vinnunni en til þess sé leikurinn gerður. Þau reki saumastofu, þar sem þau saumi nýja búninga, og haldi námskeið víða um land. „Starf- ið er mjög fjölbreytt og allt sem við- kemur þessari annríkisveröld er hjá okkur í Annríki. Reksturinn hefur gengið mjög vel og í raun þurfum við meiri mannskap til þess að geta sinnt öllu sem við viljum sinna.“ Þau hafi lengst af staðið ein í þessu en séu nú með saumakonu sér til aðstoðar. Búningarnir hafa safnast upp frá fyrsta degi í húsnæði þar sem Vél- smiðja Hjalta Einarssonar var stofn- uð á sínum tíma. Guðrún Hildur seg- ir að margir 20. aldar búningar séu til í landinu. Þau hafi fengið gefins búninga og keypt aðra, en í safninu eru búningar frá um 1750 til nú- tímans. „Elstu búningarnir í safninu eru í raun nýir því þeir eru end- urgerðir frá 18. öld.“ Búningarnir segja mikla sögu. Guðrún Hildur segir að draumurinn sé að opna safn með áþreifanlegum munum, þar sem hlutirnir séu ekki lokaðir á bak við gler heldur geti gestir handleikið þá og fengið fræðslu um þá. „Vilji fólk vita eitt- hvað um munina erum við ónísk á tímann og til í að halda fyrirlestra um þá.“ Hún bendir á að Þjóðminja- safnið eigi ógrynni gamalla búninga en þeir séu í geymslu. Heimilisiðn- aðarsafnið á Blönduósi sé með marga búninga frá 20. öld til sýnis án mikilla upplýsinga. „Við brúum bilið með því að fræða gesti og gangandi um söguna og viljum útvíkka þá starfsemi, en þurfum stærra hús- næði til þess að geta látið drauminn rætast.“ Annríki og menning - Sérhæfa sig í íslenskum þjóðbúningum og skarti Morgunblaðið/Eggert Annríki Hjónin Ásmundur Kristjánsson gullsmiður og Guðrún Hildur Rosenkjær, búningahönnuður, kjólameistari og sagnfræðingur. Merkileg saga Í safni hjónanna eru búningar frá um 1750 til nútímans. Skraut Gerð búninga og skarts krefst mikillar færni og vinnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.