Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýningar hefjast í dag á kvikmynd- inni Berdreymi sem Guðmundur Arnar Guðmundsson skrifaði hand- ritið að og leikstýrði. Guðmundur vakti mikla og verðskuldaða athygli og fjölda verðlauna fyrir fyrstu kvik- mynd sína í fullri lengd, Hjartastein, sem frumsýnd var í byrjun árs 2017 en í henni fóru börn og unglingar með helstu hlutverk, líkt og í Ber- dreymi. Í Berdreymi segir af unglingspilt- inum Adda sem á skyggna móður og ofbeldishneigða vini, Konna og Sigga, sem hafa sína djöfla að draga. Vin- irnir þrír vingast við Balla sem er fórnarlamb eineltis og býr við slæm- ar heimilisaðstæður. Ofbeldisfull hegðun drengjanna leiðir þá á hættu- legar brautir og þegar líður á mynd- ina gerist Addi berdreyminn, líkt og móðir hans. Með hlutverk Adda fer Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Ein- ar Pálmason leikur Balla, Viktor Benóný Benediktsson leikur Konna og Snorri Rafn Frímannsson leikur Sigga. Blaðamaður ræddi við þá Ás- kel og Viktor um þeirra ólíku hlut- verk í myndinni, annars vegar dreng- inn sem verður fyrir einelti, Balla, og hins vegar mesta fantinn í vinahópn- um, Konna. Átta mánaða undirbúningur Félagarnir eru spurðir að því af hverju þeir hafi sóst eftir því að leika í myndinni og segir Viktor að hann hafi alltaf langað til að verða leikari en hann hefur áður leikið í kvikmynd, Víti í Vestmannaeyjum. Hann segist hafa verið að bíða eftir öðru hlutverki í kvikmynd þegar auglýstar voru leikprufur fyrir Berdreymi. „Ég bara stökk á það,“ segir Viktor en Áskell var hins vegar algjörlega óreyndur og segir móður sína hafa bent honum á auglýsinguna. „Ég fór í prufur og það fór allt geggjað vel,“ segir Áskell sem er að klára Hagaskóla en Viktor er á leiklistarbraut í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ. Líkt og aðrir ungir leikarar mynd- arinnar voru þeir Áskell og Viktor undirbúnir fyrir tökur með reglulegri þjálfun og leiklistarkennslu yfir sex mánaða tímabil áður en tökur hófust og kynntist leikarahópurinn vel á þeim tíma. Þegar að tökum kom voru því allir vel undirbúnir, góðir vinir og andrúmsloftið gott á tökustað, að sögn Áskels. Guðmundur fór yfir einstök atriði handritsins með hinum ungu leik- urum og slagsmálaatriði voru einnig æfð með Jóni Viðari Arnþórssyni sem séð hefur um slík atriði í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. „Það var mjög skemmtilegt, alltaf gaman að fá Jón Viðar í heimsókn, hann kunni allt og fékk meira að segja að sparka í okkur,“ segir Viktor kíminn og Áskell tekur undir það. Tekið skal fram að engum varð meint af þeim æfingum. Læra að meta góða vináttu Áskell og Viktor eru beðnir um að lýsa persónum sínum í myndinni og Áskell byrjar. „Balli er eineltis- fórnarlamb og á mjög erfitt heima fyrir. Hann kynnist strák sem tekur hann inn í hóp af villingum og þeir læra að meta góða vináttu,“ segir hann. Viktor leikur Konna sem kall- aður er „dýrið“ í myndinni og það ekki að ástæðulausu. „Hann á líka sína sögu og lendir í alls kyns vand- ræðum sem hann þarf svo sjálfur að leysa úr. Hann er ekki mikið að leita sér hjálpar, finnst gaman að gera þetta sjálfur og er í þessum vinahópi sem tekur Balla inn,“ segir Viktor. Konni er sá sem leiðir hópinn og þá oft með ofbeldisfullri hegðun. Í spor drengjanna Í myndinni kemur í ljós, þegar á líður, að hin slæma hegðun drengj- anna á sér ýmsar og ólíkar ástæður sem rekja má fyrst og fremst til heimilisaðstæðna. „Þegar við vorum að leika í myndinni þurftum við að setja okkur í þessi spor, ímynda okk- ur að við værum að lenda í þessu. Það er mjög erfitt að leika í erfiðum sen- um,“ segir Áskell og að þá hafi leik- listarþjálfunin mánuðina á undan komið sér vel. „Þetta var mest bara gaman hjá okkur,“ bætir Áskell við og blaðamaður getur staðfest að báð- ir drengir standa sig einkar vel í hlut- verkum sínum. Ofbeldishegðun unglinga er sann- arlega ekki nýtt fyrirbæri, slagsmál hafa alla tíð tíðkast og þá einkum meðal táningspilta. Með tilkomu samfélagsmiðla og YouTube hefur kastljósinu verið beint í auknum mæli að þessu samfélagsvandamáli hin síðustu ár og má í því sambandi nefna að fyrir tveimur árum sendi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá sér myndband þar sem hún hvatti fólk til að opna umræðuna um ofbeldi meðal unglinga sem væri orðið mjög alvarlegt vandamál á Íslandi. Blaðamaður nefnir þetta við þá Viktor og Áskel og þeir kannast auð- vitað við þetta samfélagsmein. „Það eru krakkar sem líður illa og vita ekkert hvað þeir eiga að gera með þær tilfinningar. Strákar leita í eitt- hvað sem lætur þeim líða betur og þeir byrja að slá frá sér og tjá þannig tilfinningar sínar. Maður kannast al- veg við þetta, sér þetta og ég held að því miður þekki allir einhvern sem hefur orðið fyrir einelti. Allir ættu að geta tengt við þetta,“ segir Viktor. Áskell bætir við að unglingsárunum fylgi flóknar tilfinningar og heimilisaðstæður spili líka oft inn í sem og slæmur félagsskapur. Einelti er ekki síður mikilvægur hluti sögunnar sem rakin er í Ber- dreymi og hefur einnig mikil umræða verið um slíkt ofbeldi hér á landi til fjölda ára. Viktor bendir á að ný teg- und af einelti hafi nú bæst við, sú sem fram fer á netinu og samfélagsmiðl- um. „Við sem samfélag þurfum ein- hvern veginn að læra að glíma við það,“ segir Viktor og Áskell tekur undir með honum. Nú séu ekki leng- ur nokkrar manneskjur sem verði vitni að einelti heldur tugir, hundruð og jafnvel þúsundir manna á netinu. Spennufall í bíósal Berdreymi var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Berlín 11. febrúar síðastliðinn og hlaut afar góðar við- tökur. Strákarnir voru viðstaddir frumsýninguna og segja upplifunina hafa verið rosalega. „Þetta var pínu eins og draumur, að sjá leikara eins og Leonardo Di Caprio með flössin í augunum á rauða dreglinum og svo fær maður bara að upplifa þetta sjálf- ur, lítill strákur frá Íslandi,“ segir Viktor og brosir. Þeir Áskell sáu kvikmyndina í fyrsta sinn í Berlín og segir Áskell að það hafi verið mikið spennufall í bíó- salnum. „Ég gat varla notið myndar- innar, ég var svo spenntur og fannst svo gaman,“ segir Áskell kíminn og Viktor tekur undir með honum og segist hafa notið myndarinnar mun betur á frumsýningu hér heima fyrr í vikunni. Þeir Viktor og Áskell segjast hafa notið þess að leika í Berdreymi. Eitt og annað hafi vissulega tekið á en þó alltaf verið gaman á tökustað. Væru þeir þá til í að leika aftur í kvikmynd? „Já!“ svara þeir einróma og brosa yf- ir því hversu samstilltir þeir eru. Morgunblaðið/Eggert Félagar Viktor og Áskell, tveir af aðalleikurum Berdreymis, nú tæpum tveimur árum eftir að þeir léku í myndinni. Vinátta Birgir Dagur og Viktor á vinstri mynd og á þeirri hægri Áskell í tveimur atriða Berdreymis. „Allir ættu að geta tengt við þetta“ - Ofbeldi og slæmar heimilisaðstæður eru efni kvikmyndarinnar Berdreymi - Táningspiltar í aðal- hlutverkum - „Þetta var mest bara gaman hjá okkur,“ segir einn þeirra um að leika í kvikmynd Sýningin Wörður, vinur mínar, eft- ir Önnu Maríu Lind Geirsdóttur, verður opnuð í dag, föstudag, í Listasal Mosfellsbæjar. Er sú opn- un foropnun sem hefst kl. 16 og lýkur kl. 18 en aðalopnun er á morgun, laugardag, kl. 13-15. Anna María er textíllistakona með masterspróf í textíl frá Bretlandi og hefur vakið sérstaka athygli fyrir textílgjörninga sína, að því er fram kemur í tilkynningu. Má af þeim nefna gjörninginn „Spunnið á fjöllum“ sem Anna María fram- kvæmdi á árunum 1993-2004 og fólst í því að ganga á fjöll með spunarokk á bakinu og spinna á tindinum. Í Listasal Mosfellsbæjar sýnir hún ofnar myndir af vörðum og segir um Önnu að hún sé mikil úti- vistarmanneskja og beri sérstakan hlýhug til varða. Flestar mynd- irnar eru af vörðum á Mosfells- heiði og í anda umhverfisverndar og endurnýtingar eru allar mynd- irnar ofnar úr gömlum fatnaði, rúmfötum og þess háttar. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mos- fellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2 og er hann opinn kl. 9-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Textíllistakona Anna María Lind Geirsdóttir sýnir í Listasal Mosfellsbæjar. Sýnir ofnar myndir af vörðumNú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.