Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýningar hefjast í dag á kvikmynd-
inni Berdreymi sem Guðmundur
Arnar Guðmundsson skrifaði hand-
ritið að og leikstýrði. Guðmundur
vakti mikla og verðskuldaða athygli
og fjölda verðlauna fyrir fyrstu kvik-
mynd sína í fullri lengd, Hjartastein,
sem frumsýnd var í byrjun árs 2017
en í henni fóru börn og unglingar
með helstu hlutverk, líkt og í Ber-
dreymi.
Í Berdreymi segir af unglingspilt-
inum Adda sem á skyggna móður og
ofbeldishneigða vini, Konna og Sigga,
sem hafa sína djöfla að draga. Vin-
irnir þrír vingast við Balla sem er
fórnarlamb eineltis og býr við slæm-
ar heimilisaðstæður. Ofbeldisfull
hegðun drengjanna leiðir þá á hættu-
legar brautir og þegar líður á mynd-
ina gerist Addi berdreyminn, líkt og
móðir hans. Með hlutverk Adda fer
Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Ein-
ar Pálmason leikur Balla, Viktor
Benóný Benediktsson leikur Konna
og Snorri Rafn Frímannsson leikur
Sigga. Blaðamaður ræddi við þá Ás-
kel og Viktor um þeirra ólíku hlut-
verk í myndinni, annars vegar dreng-
inn sem verður fyrir einelti, Balla, og
hins vegar mesta fantinn í vinahópn-
um, Konna.
Átta mánaða undirbúningur
Félagarnir eru spurðir að því af
hverju þeir hafi sóst eftir því að leika
í myndinni og segir Viktor að hann
hafi alltaf langað til að verða leikari
en hann hefur áður leikið í kvikmynd,
Víti í Vestmannaeyjum. Hann segist
hafa verið að bíða eftir öðru hlutverki
í kvikmynd þegar auglýstar voru
leikprufur fyrir Berdreymi. „Ég bara
stökk á það,“ segir Viktor en Áskell
var hins vegar algjörlega óreyndur
og segir móður sína hafa bent honum
á auglýsinguna. „Ég fór í prufur og
það fór allt geggjað vel,“ segir Áskell
sem er að klára Hagaskóla en Viktor
er á leiklistarbraut í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ.
Líkt og aðrir ungir leikarar mynd-
arinnar voru þeir Áskell og Viktor
undirbúnir fyrir tökur með reglulegri
þjálfun og leiklistarkennslu yfir sex
mánaða tímabil áður en tökur hófust
og kynntist leikarahópurinn vel á
þeim tíma. Þegar að tökum kom voru
því allir vel undirbúnir, góðir vinir og
andrúmsloftið gott á tökustað, að
sögn Áskels.
Guðmundur fór yfir einstök atriði
handritsins með hinum ungu leik-
urum og slagsmálaatriði voru einnig
æfð með Jóni Viðari Arnþórssyni
sem séð hefur um slík atriði í fjölda
kvikmynda og sjónvarpsþátta. „Það
var mjög skemmtilegt, alltaf gaman
að fá Jón Viðar í heimsókn, hann
kunni allt og fékk meira að segja að
sparka í okkur,“ segir Viktor kíminn
og Áskell tekur undir það. Tekið skal
fram að engum varð meint af þeim
æfingum.
Læra að meta góða vináttu
Áskell og Viktor eru beðnir um að
lýsa persónum sínum í myndinni og
Áskell byrjar. „Balli er eineltis-
fórnarlamb og á mjög erfitt heima
fyrir. Hann kynnist strák sem tekur
hann inn í hóp af villingum og þeir
læra að meta góða vináttu,“ segir
hann. Viktor leikur Konna sem kall-
aður er „dýrið“ í myndinni og það
ekki að ástæðulausu. „Hann á líka
sína sögu og lendir í alls kyns vand-
ræðum sem hann þarf svo sjálfur að
leysa úr. Hann er ekki mikið að leita
sér hjálpar, finnst gaman að gera
þetta sjálfur og er í þessum vinahópi
sem tekur Balla inn,“ segir Viktor.
Konni er sá sem leiðir hópinn og þá
oft með ofbeldisfullri hegðun.
Í spor drengjanna
Í myndinni kemur í ljós, þegar á
líður, að hin slæma hegðun drengj-
anna á sér ýmsar og ólíkar ástæður
sem rekja má fyrst og fremst til
heimilisaðstæðna. „Þegar við vorum
að leika í myndinni þurftum við að
setja okkur í þessi spor, ímynda okk-
ur að við værum að lenda í þessu. Það
er mjög erfitt að leika í erfiðum sen-
um,“ segir Áskell og að þá hafi leik-
listarþjálfunin mánuðina á undan
komið sér vel. „Þetta var mest bara
gaman hjá okkur,“ bætir Áskell við
og blaðamaður getur staðfest að báð-
ir drengir standa sig einkar vel í hlut-
verkum sínum.
Ofbeldishegðun unglinga er sann-
arlega ekki nýtt fyrirbæri, slagsmál
hafa alla tíð tíðkast og þá einkum
meðal táningspilta. Með tilkomu
samfélagsmiðla og YouTube hefur
kastljósinu verið beint í auknum
mæli að þessu samfélagsvandamáli
hin síðustu ár og má í því sambandi
nefna að fyrir tveimur árum sendi
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá
sér myndband þar sem hún hvatti
fólk til að opna umræðuna um ofbeldi
meðal unglinga sem væri orðið mjög
alvarlegt vandamál á Íslandi.
Blaðamaður nefnir þetta við þá
Viktor og Áskel og þeir kannast auð-
vitað við þetta samfélagsmein. „Það
eru krakkar sem líður illa og vita
ekkert hvað þeir eiga að gera með
þær tilfinningar. Strákar leita í eitt-
hvað sem lætur þeim líða betur og
þeir byrja að slá frá sér og tjá þannig
tilfinningar sínar. Maður kannast al-
veg við þetta, sér þetta og ég held að
því miður þekki allir einhvern sem
hefur orðið fyrir einelti. Allir ættu að
geta tengt við þetta,“ segir Viktor.
Áskell bætir við að unglingsárunum
fylgi flóknar tilfinningar og
heimilisaðstæður spili líka oft inn í
sem og slæmur félagsskapur.
Einelti er ekki síður mikilvægur
hluti sögunnar sem rakin er í Ber-
dreymi og hefur einnig mikil umræða
verið um slíkt ofbeldi hér á landi til
fjölda ára. Viktor bendir á að ný teg-
und af einelti hafi nú bæst við, sú sem
fram fer á netinu og samfélagsmiðl-
um. „Við sem samfélag þurfum ein-
hvern veginn að læra að glíma við
það,“ segir Viktor og Áskell tekur
undir með honum. Nú séu ekki leng-
ur nokkrar manneskjur sem verði
vitni að einelti heldur tugir, hundruð
og jafnvel þúsundir manna á netinu.
Spennufall í bíósal
Berdreymi var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Berlín 11. febrúar
síðastliðinn og hlaut afar góðar við-
tökur. Strákarnir voru viðstaddir
frumsýninguna og segja upplifunina
hafa verið rosalega. „Þetta var pínu
eins og draumur, að sjá leikara eins
og Leonardo Di Caprio með flössin í
augunum á rauða dreglinum og svo
fær maður bara að upplifa þetta sjálf-
ur, lítill strákur frá Íslandi,“ segir
Viktor og brosir.
Þeir Áskell sáu kvikmyndina í
fyrsta sinn í Berlín og segir Áskell að
það hafi verið mikið spennufall í bíó-
salnum. „Ég gat varla notið myndar-
innar, ég var svo spenntur og fannst
svo gaman,“ segir Áskell kíminn og
Viktor tekur undir með honum og
segist hafa notið myndarinnar mun
betur á frumsýningu hér heima fyrr í
vikunni.
Þeir Viktor og Áskell segjast hafa
notið þess að leika í Berdreymi. Eitt
og annað hafi vissulega tekið á en þó
alltaf verið gaman á tökustað. Væru
þeir þá til í að leika aftur í kvikmynd?
„Já!“ svara þeir einróma og brosa yf-
ir því hversu samstilltir þeir eru.
Morgunblaðið/Eggert
Félagar Viktor og Áskell, tveir af aðalleikurum Berdreymis, nú tæpum tveimur árum eftir að þeir léku í myndinni.
Vinátta Birgir Dagur og Viktor á vinstri mynd og á þeirri hægri Áskell í tveimur atriða Berdreymis.
„Allir ættu að geta tengt við þetta“
- Ofbeldi og slæmar heimilisaðstæður eru efni kvikmyndarinnar Berdreymi - Táningspiltar í aðal-
hlutverkum - „Þetta var mest bara gaman hjá okkur,“ segir einn þeirra um að leika í kvikmynd
Sýningin Wörður, vinur mínar, eft-
ir Önnu Maríu Lind Geirsdóttur,
verður opnuð í dag, föstudag, í
Listasal Mosfellsbæjar. Er sú opn-
un foropnun sem hefst kl. 16 og
lýkur kl. 18 en aðalopnun er á
morgun, laugardag, kl. 13-15.
Anna María er textíllistakona með
masterspróf í textíl frá Bretlandi
og hefur vakið sérstaka athygli
fyrir textílgjörninga sína, að því er
fram kemur í tilkynningu. Má af
þeim nefna gjörninginn „Spunnið á
fjöllum“ sem Anna María fram-
kvæmdi á árunum 1993-2004 og
fólst í því að ganga á fjöll með
spunarokk á bakinu og spinna á
tindinum.
Í Listasal Mosfellsbæjar sýnir
hún ofnar myndir af vörðum og
segir um Önnu að hún sé mikil úti-
vistarmanneskja og beri sérstakan
hlýhug til varða. Flestar mynd-
irnar eru af vörðum á Mosfells-
heiði og í anda umhverfisverndar
og endurnýtingar eru allar mynd-
irnar ofnar úr gömlum fatnaði,
rúmfötum og þess háttar.
Listasalur Mosfellsbæjar er
staðsettur inn af Bókasafni Mos-
fellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2 og
er hann opinn kl. 9-18 á virkum
dögum og kl. 12-16 á laugardögum.
Textíllistakona Anna María Lind Geirsdóttir sýnir í Listasal Mosfellsbæjar.
Sýnir ofnar myndir af vörðumNú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is