Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
Ráðstefna Dagur var að kvöldi kominn þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í Hörpu. Yfir daginn er líflegra um að litast í ráðstefnusölum hússins en um helgina lauk þar heimsþingi
Retina International og fór Norræna augnlæknaþingið fram samhliða því. Nóg verður um að vera í Hörpu í sumar: Upplifunarsýning, tónleikar og leiksýningar svo fátt eitt sé nefnt.
Hákon
Þegar stefnuskrá
meirihluta F-lista og
D- lista (undir minni
forystu) var lögð
fram 21. janúar árið
2008 var skýrt kveðið
á um Reykjavíkur-
flugvöll og Sunda-
braut.
Í 1. lið stefnuskrár-
innar sagði: „Reykja-
víkurflugvöllur verður
sýndur í óbreyttri mynd í aðal-
skipulagi á meðan rannsóknir
standa yfir á nýjum vallarkosti.
Ekki verður tekin ákvörðun um
flutning Reykjavíkurflugvallar á
kjörtímabilinu.“
Í 4. lið stefnuskrár-
innar sagði: „Staðar-
vali og undirbúningi
vegna lagningar
Sundabrautar verði
lokið sem fyrst.“
Hér var skýrt kveð-
ið að orði en hængur-
inn sá, að flugvallar-
andstæðingar innan
borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins
undirrituðu meiri-
hlutasáttmálann ekki
af heilum hug og
unnu gegn flugvellinum frá fyrsta
degi. Vinnufriður Reykjavíkur-
flugvallar hefur síðan verið úti,
allt frá því að Hanna Birna Krist-
jánsdóttir velti mér úr sessi sem
borgarstjóra og var sjálf kjörin
borgarstjóri 21. ágúst 2008.
Sundabrautarmálið varð síðan fyr-
ir miklu áfalli í október 2008, þeg-
ar efnahagshrunið varð. Síðan rétt
var úr kútnum eftir það hafa að-
eins þeir Jón Gnarr og Dagur
Eggertsson verið borgarstjórar í
Reykjavík. Hvorugur hefur reynst
Reykjavíkurflugvelli eða Sunda-
braut vel.
Óvissa hjá nýjum meirihluta
Á fyrsta degi nýs samstarfs fall-
ins meirihluta í borgarstjórn með
Framsóknarflokknum, virtist til-
tölulega bjart yfir málefnum
Reykjavíkurflugvallar og Sunda-
brautar. Síðan kom bakslag í segl-
in. Einar Þorsteinsson sagði að
staðið yrði við samkomulag sem
borgarstjóri og innviðaráðherra
undirrituðu um starfsemi Reykja-
víkurflugvallar. Einar lagði hins
vegar áherslu á mikilvægi þess, að
áformuð byggð í Skerjafirði myndi
rísa, því hún væri mikilvæg.
Mjög fljótlega eftir að „sátt-
máli“ nýs meirihluta var kynntur,
sagði borgarstjóri að nú yrði unn-
ið að undirbúningi umhverfismats
fyrir Sundabraut á brú „eða í
göngum“! Við þetta bætist að
ýmsir loftslagstrúboðar á vinstri
væng stjórnmálanna láta nú illa
vegna áforma um Sundabrautina.
14 ár eru liðin síðan ég var
borgarstjóri. Óhætt er að segja,
að staða Reykjavíkurflugvallar
hafi jafnt og þétt versnað frá þeim
tíma og Sundabrautin hafi ekki
hreyfst um hænufet, einkum af
völdum flugvallar- og Sundabraut-
arandstæðingsins, sem nú er borg-
arstjóri í Reykjavík og hefur verið
hæstráðandi í borginni frá árinu
2010.
Eftir Ólaf F.
Magnússon. » 14 ár eru liðin síðan
ég var borgarstjóri.
Óhætt er að segja, að
staða Reykjavíkurflug-
vallar hafi jafnt og þétt
versnað frá þeim tíma og
Sundabrautin hafi ekki
hreyfst um hænufet.
Ólafur F. Magnússon
Höfundur er læknir
og fv. borgarstjóri.
Óvissa um Sundabraut og
Reykjavíkurflugvöll hjá nýrri borgarstjórn
BRUSSEL | Vænt-
anleg hernaðaráætlun
Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, verður hitt
umræðuefnið á dag-
skránni þegar stjórn-
endur bandalagsins
koma saman í Brussel
til fundahalda um
stríðsástandið í Úkra-
ínu, en nýja áætlunin
mun leggja línurnar um höf-
uðáherslur NATO næstu árin. Af
framgöngu Rússlands undanfarið
má ráða, að enduruppbygging fæl-
ingarmáttar hlýtur að vera höf-
uðþáttur þar í.
Söfnun rússnesks herliðs að
landamærum Úkraínu í fyrra mark-
aði upphafið að vígaför sem ekki
sneri að Úkraínu einni heldur enn
fremur því sem Rússar tala um sem
„vestrið sameinaða“ og stendur
fyrst og fremst fyrir Evrópusam-
bandið og NATO. Ætlunin var að
letja Úkraínu og vesturveldin til
aukinnar samvinnu á meðan augna-
mið vestursins var að bæla árás-
argirni Rússa. Innrásin sem fylgdi í
kjölfarið sýnir glöggt að engum fæl-
ingarmætti var til að dreifa.
Úkraínumenn hafa varist af mik-
illi sæmd og ESB, NATO og fleiri
vestrænir bandamenn hafa þrengt
æ meira að Rússum með efnahags-
þvingunum auk þess að aðstoða íbúa
Úkraínu eftir föngum. Átökin stig-
magnast hins vegar ískyggilega og
aðstæður kalla eftir trúverðugum
fælingarmætti sem ristir dýpra en
hin hefðbundna kjarnorkuvopnaógn.
Grundvallarstef fælingar
Þegar allt kemur til alls snýst fæl-
ingarmáttur um fleira en kjarnorku-
styrjöld. Hann á hlut að máli í öllum
birtingarmyndum átaka – hvort sem
er í viðskiptalífinu eða á vígvell-
inum. Sjást þess merki víða í þeim
átökum sem við nú horfum upp á.
Reikna hefði mátt með að umtals-
verður fælingarmáttur sprytti af
gagnkvæmu orkumálasambandi
Rússlands og Evrópu, en sú reynd-
ist ekki raunin.
Kjarni fælingarmáttar er að sann-
færa andstæðing um að með því að
láta eitthvað ógert sé hagsmunum
hans best borgið. Fælingin af Rúss-
lands hálfu fólst í öndverðu í að raða
herafla sínum upp við úkraínsku
landamærin. Meðan á þessu stóð
birtu Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra í röðum NATO sífelld-
ar upplýsingar um hverja hreyfingu
rússneska hersins við landamærin,
Kremlverjum til upplýsingar um að
hvert fótmál herja þeirra væri með
vitund vesturveldanna. Slík upplýs-
ingagjöf er grundvallarstef fæl-
ingar.
Annar kjarnaþáttur fælingar er
vitneskjan um að deiluaðili búi yfir
hvoru tveggja, viljanum og getunni
til að láta sverfa til stáls láti and-
stæðingurinn ekki af háttsemi sinni.
Trúverðugleikanum þótti ábótavant
þegar Rússar höfðu uppi fjölda
krafna í því augnamiði að draga
fram veikleika Úkraínu og NATO,
allt frá stöðu Úkraínu sem ríkis að
heildaruppbyggingu öryggismála í
Evrópu.
Að Bandaríkjamönnum und-
anskildum gerðu fáir því skóna að
Rússar létu verða af innrás sinni eða
héldu hótunum sínum í garð NATO
og hlutlausra ríkja til þrautar. Inn-
rásin varð þó að raunveruleika og
frá því hafa hótanir um beitingu
kjarnavopna verið hafðar uppi auk
þess sem Rússar hafa gert tilraunir
með nýtt hljóðfrátt flugskeyti.
Vanmátu samstöðuna
Eins lét Vladimír Pútín sér í léttu
rúmi liggja yfirlýsingar Emmanuels
Macrons Frakklandsforseta, þýska
kanslarans Olafs Scholz og fleiri
vestrænna leiðtoga er þeir lýstu því
yfir að þeir hygðust veita Úkraínu
stuðning sinn. Boðskapur þessi náði
eyrum í Kreml, en það gerðu einnig
yfirlýsingar annarra leiðtoga, þar á
meðal Bidens Bandaríkjaforseta
sem kvaðst ekki mundu senda her-
menn á vettvang til að grípa til
varna fyrir ríki utan NATO. Rússar
ákváðu því að láta til skarar skríða
og komu hörð viðbrögð vesturveld-
anna þeim í opna skjöldu.
Fælingin af hálfu Úkraínumanna
fólst í því að draga upp mynd af ríki
sem þegar tilheyrði hinum vestræna
heimi. Þrátt fyrir að Kremlverjar
hafi skellt skollaeyrunum við er ljóst
að Rússar vanmátu samstöðu úkra-
ínsku þjóðarinnar og getu hers
hennar, þrátt fyrir að hafa átt í
skærum við hann allar götur frá
Krímskagadeilunni árið 2014.
Hetjuleg sjálfsvörn Úkra-
ínumanna er okkur áminning um að
handan vígvallanna og viðskipta-
hagsmunanna, stöðvananna og
stofnananna, býr ofurvenjulegt fólk
sem þyngt er af stríði þessu og mun
að lokum ráða úrslitum um lyktir
þess. Þótt stjórnendur Rússlands
láti þrá hinna úkraínsku til að verja
líf sitt, heimili og gildi sem vind um
eyru þjóta er dagljóst að bar-
áttuandi Úkraínumanna hefur dreg-
ið þróttinn úr fjölda rússneskra her-
manna.
Betur má ef duga skal
Með framtíðina í huga verður fæl-
ingarmáttur vestrænna ríkja að ger-
ast þungamiðja í herkænsku þeirra
og fela í sér alla þá þætti sem þar
kunna að nýtast. Bandaríski varn-
armálaráðherrann Lloyd Austin tók
skref í þá átt með yfirlýsingu sinni
um að eitt markmiða Bandaríkja-
manna nú væri að „sjá Rússland
koðna niður í þá stöðu að vera ekki
fært um að grípa til aðgerða á borð
við innrásina í Úkraínu“. Beiðni Bi-
dens Bandaríkjaforseta um 33 millj-
arða dala aðstoð við Úkraínu, sem
hann undirritaði 9. maí, er annað
skref í sömu átt.
En betur má ef duga skal. Fæl-
ingarmáttur er fyrirbæri sem þarfn-
ast stuðnings og samþykkis alþýðu
allrar. Enn fremur er þess þörf að
önnur ríki legg lóð sitt á vogarskál-
arnar svo tryggja megi öryggi
smærri ríkja. Slíkt fæst ekki án
áhrifa- og andríkra leiðtoga á borð
við Volodímír Selenskí Úkra-
ínuforseta. Hans erindi hefur ekki
einvörðungu verið við úkraínsku
þjóðina heldur við gervalla heims-
byggðina. Fleiri leiðtogar gerðu vel
með því að fylgja fordæmi hans.
Að lokum er hollt að minnast þess
hvar fælingarmáttur á sinn sess í
heildarsamhengi alþjóðavæðing-
arinnar. Rússar gengust upp í þeim
gagnkvæmu hagþörfum sem eru
þeirra eigin sköpunarverk og skák-
uðu í skjóli stöðu sinnar sem neit-
unarvaldshafi við borð öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Í fæling-
armætti þurfa að felast úrræði til að
gera slíka þætti að engu eða hafa á
þeim haldreipi. Stríðið í Úkraínu er
sprottið af veikum fælingarmætti.
Án slíks máttar mun friður aldrei
ríkja.
Rupert Smith er fyrrverandi stað-
gengill æðsta herforingja NATO í
Evrópu. Ilana Bet-El er her-
kænsku- og sagnfræðingur auk þess
að gegna stjórnarsetu í Evrópska
leiðtoganetinu.
Eftir
Rupert Smith
og Ilönu Bet-El
» Þegar allt kemur til
alls snýst fælingar-
máttur um fleira en
kjarnorkustyrjöld. Hann
á hlut að máli í öllum birt-
ingarmyndum átaka.
Rupert Smith
Rupert Smith er fyrrverandi stað-
gengill æðsta herforingja NATO í
Evrópu. Ilana Bet-El er herkænsku-
og sagnfræðingur auk þess að gegna
stjórnarsetu í Evrópska leiðtoganet-
inu.
© Project Syndicate, 2022
Endurreisn fælingarmáttarins
Ilönu Bet-El