Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 26

Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Lengjudeild karla Vestri – Kórdrengir ................................. 2:2 HK – Þór ................................................... 3:1 Staðan: Selfoss 6 4 2 0 14:6 14 Fylkir 6 3 2 1 16:7 11 Fjölnir 6 3 2 1 15:10 11 Grótta 5 3 1 1 15:5 10 Grindavík 6 2 4 0 9:5 10 HK 5 3 0 2 10:7 9 Kórdrengir 6 1 4 1 7:6 7 Vestri 6 1 3 2 8:16 6 Þór 6 1 2 3 7:13 5 Afturelding 6 0 3 3 5:10 3 KV 6 1 0 5 6:17 3 Þróttur V. 4 0 1 3 1:11 1 2. deild karla Ægir – Völsungur..................................... 2:1 Staðan: Njarðvík 6 5 1 0 20:5 16 Ægir 6 5 1 0 9:1 16 Völsungur 6 4 1 1 14:8 13 Þróttur R. 6 4 1 1 12:6 13 ÍR 6 3 2 1 9:5 11 Haukar 6 2 2 2 7:8 8 KF 6 1 4 1 11:8 7 Höttur/Huginn 6 1 2 3 8:13 5 Magni 6 1 1 4 4:17 4 KFA 6 0 3 3 7:12 3 Víkingur Ó. 6 0 2 4 3:11 2 Reynir S. 6 0 0 6 5:15 0 3. deild karla KFS – Dalvík/Reynir ............................... 2:0 Sindri – Elliði ............................................ 4:2 ÍH – Augnablik ......................................... 4:0 Víðir – Kormákur/Hvöt ........................... 5:1 Kári – KFG ............................................... 2:0 Staða efstu liða: Sindri 6 4 1 1 14:9 13 Víðir 6 4 0 2 16:8 12 Dalvík/Reynir 6 4 0 2 13:8 12 KFG 6 4 0 2 12:8 12 Elliði 6 3 1 2 9:7 10 Augnablik 6 3 1 2 8:10 10 Vængir Júpiters 6 3 0 3 9:9 9 Lengjudeild kvenna Tindastóll – Fjarð/Hött/Leiknir ............. 2:2 Staðan: FH 6 5 1 0 17:4 16 HK 6 5 0 1 13:6 15 Tindastóll 6 4 1 1 8:4 13 Víkingur R. 6 4 0 2 15:8 12 Fjarð/Hött/Leikn. 6 3 2 1 13:6 11 Grindavík 6 2 1 3 6:9 7 Augnablik 6 2 0 4 8:13 6 Fylkir 6 1 0 5 4:13 3 Haukar 6 1 0 5 4:13 3 Fjölnir 6 0 1 5 4:16 1 2. deild kvenna ÍR – Grótta................................................ 0:0 Sindri – Hamar ......................................... 3:0 Einherji – ÍA............................................. 0:2 Staða efstu liða: Grótta 4 3 1 0 20:2 10 KH 3 2 1 0 11:5 7 ÍR 3 2 1 0 7:4 7 Fram 2 2 0 0 6:0 6 Sindri 4 2 0 2 7:12 6 Völsungur 2 1 1 0 3:2 4 ÍH 4 1 1 2 10:12 4 EM U21 árs karla Undankeppnin, D-riðill: Ísland – Kýpur.......................................... 5:0 Portúgal – Grikkland ............................... 2:1 Lokastaðan: Portúgal 10 9 1 0 41:3 28 Ísland 10 5 3 2 25:7 18 Grikkland 10 5 2 3 16:10 17 Hvíta-Rússland 10 4 0 6 16:15 12 Kýpur 10 3 2 5 16:16 11 Liechtenstein 10 0 0 10 0:63 0 _ Portúgal fer beint á EM og Ísland fer í umspil. Svíþjóð Rosengård – Umeå .................................. 5:2 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård. Häcken – Vittsjö ...................................... 2:3 - Agla María Albertsdóttir og Diljá Ýr Zo- mers voru allan tímann á varamannabekk Häcken. Brommapojkarna – Kristianstad .......... 1:2 - Amanda Andradóttir kom inn á hjá Kristianstad á 59. mínútu og Emelía Ósk- arsdóttir á 84. mínútu. Elísabet Gunnars- dóttir þjálfar liðið. Hammarby – Kalmar .............................. 4:0 - Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn með Kalmar. Noregur Rosenborg – Brann ................................. 1:0 - Selma Sól Magnúsdóttir lék fyrstu 70 mínúturnar með Rosenborg. - Svava Rós Guðmundsdóttir lék í 59 mín- útur með Brann og Berglind Björg Þor- valdsdóttir kom í hennar stað. Röa – Vålerenga ...................................... 0:4 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan tím- ann með Vålerenga. Bandaríkin Kansas City – New England .................. 1:2 - Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá New England á 72. mínútu. B-deild: Oakland Roots – Rio Grande.................. 2:2 - Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn með Oakland Roots. 50$99(/:+0$ EM 2022 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Elín Metta Jensen kræktu í tvö síð- ustu sætin í 23 manna EM-hópi Þor- steins Halldórssonar sem landsliðs- þjálfarinn tilkynnti á laugardaginn, miðað við hvernig liði Þorsteinn hef- ur teflt fram á undanförnum mán- uðum. Áslaug Munda hefur ekki spilað landsleik síðan í júní 2021 og því ekki komið við sögu í síðustu ellefu leikjum íslenska liðsins. Elín Metta spilaði sinn fyrsta og eina leik frá því í júní 2021 þegar Ís- land vann Tékkland í síðasta leik liðsins, í undankeppni HM í apríl. Fjórir leikmenn sem hafa spilað tvo til þrjá leiki hver af síðustu sjö leikjum Íslands þurfa hinsvegar að sitja heima. Það eru Ásta Eir Árna- dóttir, Karitas Tómasdóttir, Na- tasha Anasi og Ída Marín Her- mannsdóttir. Þá fær Hlín Eiríksdóttir ekki tækifæri. Hún missti af nær öllu síð- asta ári með landsliðinu og hefur ekki verið valin í ár en hefur náð sér vel á strik á ný með Piteå í sænsku úrvalsdeildinni. Þær Hlín og Ída Marín eru hins- vegar í U23 ára liðinu sem valið var í gær fyrir vináttuleik gegn A- landsliði Eistlands 24. júní en þann hóp má sjá á mbl.is/sport/fotbolti. EM-farar Íslands eru eftirtaldir: Markverðir: Sandra Sigurðar- dóttir (Val), Cecilía Rán Rúnars- dóttir (Bayern), Telma Ívarsdóttir (Breiðabliki). Varnarmenn: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðabliki), Elísa Viðarsdóttir (Val), Glódís Perla Viggósdóttir (Bayern), Guðný Árna- dóttir (AC Milan), Guðrún Arnar- dóttir (Rosengård), Hallbera Guðný Gísladóttir (Kalmar), Ingibjörg Sig- urðardóttir (Vålerenga), Sif Atla- dóttir (Selfossi). Miðjumenn: Alexandra Jóhanns- dóttir (Breiðabliki), Dagný Brynj- arsdóttir (West Ham), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Orlando Pride), Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Bay- ern), Sara Björk Gunnarsdóttir (Lyon), Selma Sól Magnúsdóttir (Rosenborg). Sóknarmenn: Agla María Al- bertsdóttir (Häcken), Amanda Andradóttir (Kristianstad), Berg- lind Björg Þorvaldsdóttir (Brann), Elín Metta Jensen (Val), Svava Rós Guðmundsdóttir (Brann), Sveindís Jane Jónsdóttir (Kristianstad). Áslaug og Elín síðastar á EM? - Þorsteinn kynnti 23 manna hópinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon England Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Elín Metta Jensen eru í 23 manna hópnum sem valinn var fyrir Evrópumótið í sumar. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Kristín Þórhallsdóttir fékk þrenn silfurverðlaun og ein brons- verðlaun í -84 kg flokki á heims- meistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem lauk í Sun City í Suður-Afríku um helgina. Hún fékk silfur í hnébeygju með 230 kg og tvíbætti eigið Evr- ópumet, silfur í bekkpressu með 120 kg, brons í réttstöðulyftu með 230 kg og silfur í samanlögðu þar sem hún lyfti alls 580 kg og bætti Evrópumet sitt þar um 20 kíló. Amanda Lawrence frá Banda- ríkjunum, sem er þjálfari Krist- ínar, varð heimsmeistari með 615 kg samanlagt en Kristín hafði betur gegn henni í bekkpress- unni. „Það var ákveðið „kick“ að berjast um gull á HM þó það næð- ist ekki í dag. Ég er komin á pall í öllum greinum og komin yfir heimsmeistarann í einni grein. Hún átti reyndar ekki sinn besta dag, en þetta gefur manni auðvit- að heilmikið búst,“ sagði Kristín m.a. í ítarlegri umfjöllun um mót- ið á mbl.is/sport. Ljósmynd/Hinrik Pálsson Bestar Kristín Þórhallsdóttir og Amanda Lawrence fengu silfur og gull í -84 kg flokknum í Suður-Afríku en Lawrence er einmitt þjálfari Kristínar. Kristín náði í þrjú silfur á HM Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Seinni heimaleikur Íslands í Þjóða- deild UEFA í fótbolta fer fram í kvöld þegar íslenska karlalands- liðið mætir Ísrael á Laugardalsvell- inum klukkan 18.45. Eftir sigur Ísraelsmanna gegn Albönum á útivelli á föstudags- kvöldið er ljóst að Ísland verður að vinna þennan leik til að eiga sigur- möguleika í riðlinum þar sem Ísrael stendur nú best að vígi til að vinna sér sæti í A-deildinni. Ísrael er með fjögur stig, Ísland tvö og Albanía eitt þegar riðillinn er hálfnaður en eftir þennan leik verða aðeins tveir leikir eftir í haust, þegar Albanir leika við Ís- land á heimavelli og Ísrael á úti- velli. Útlit er fyrir að Arnar Þór Við- arsson stilli upp sama eða nánast sama byrjunarliði og í jafnteflis- leiknum gegn Albaníu síðasta mánudag. Birkir Bjarnason, Hörð- ur Björgvin Magnússon og Alfons Sampsted koma allir inn í hópinn á ný en enginn þeirra sem hófu leik- inn gegn Albaníu, nema Andri Lu- cas Guðjohnsen, kom við sögu í vin- áttuleiknum umtalaða í San Marínó á fimmtudagskvöldið. Hákon Arnar Haraldsson og Al- bert Guðmundsson virðast einna líklegastir til að geta komið inn í byrjunarliðið. Aron og Mikael tæpir Arnar skýrði frá því á frétta- mannafundi í gær að Aron Elís Þrándarson og Mikael Anderson væru tæpir vegna meiðsla en staða þeirra kæmi í ljós í dag. Aron var fyrirliði Íslands í San Marínó og skoraði sigurmarkið. Hans hlut- verk hefur fyrst og fremst verið að vera til taks fyrir Birki Bjarnason sem aftasti maður á miðjunni. Mikael lék allan leikinn í San Mar- ínó og var óheppinn að skora ekki í fyrri hálfleiknum þegar hann fékk tvö góð marktækifæri. Þá verður Ingvar Jónsson mark- vörður ekki í hópnum í kvöld. Hann meiddist í upphitun í San Marínó og Hákon Rafn Valdimarsson, mark- vörður 21-árs landsliðsins, kemur inn í A-hópinn í hans stað. Þurfa sigur gegn Ísrael í kvöld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þjóðadeild Marki Jóns Dags Þor- steinssonar gegn Albaníu fagnað. _ Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH sigraði á laugardaginnn í bæði 100 og 200 metra hlaupi karla á Smáþjóða- meistaramótinu í frjálsíþróttum á Möltu og setti mótsmet í báðum grein- um. Kolbeinn sigraði í 100 metra hlaupinu á 10,59 sekúndum og í 200 metra hlaupinu á 21,40 sekúndum. Dagur Andri Einarsson úr ÍR fékk bronsverðlaun í 100 metra hlaupinu á 10,66 sekúndum. Tiana Ósk Whitworth úr ÍR fékk silf- urverðlaun í 200 metra hlaupi kvenna á 24,25 sekúndum og bronsverðlaun í 100 metra hlaupi þar sem hún náði sínum besta tíma í ár, 11,75 sekúndur. Hilmar Örn Jóns- son úr FH og El- ísabet Rut Rún- arsdóttir úr ÍR fengu silfurverðlaun í sleggjukasti karla og kvenna. Hilmar kastaði 70,95 metra en Elísabet kastaði 64,21 metra. Glódís Edda Þuríðardóttir fékk silfurverðlaun í 100 metra grinda- hlaupi á 14,39 sekúndum sem er hennar besti tími í ár. Irma Gunn- arsdóttir úr FH fékk silfurverðlaun í langstökki, stökk 5,96 metra. Íris Anna Skúladóttir úr FH fékk silf- urverðlaun í 5.000 metra hlaupi og náði sínum besta árangri, 17:09,10 mínútur, en hún bætti þrettán ára gamalt persónu- legt met sitt. _ Elverum varð norskur meistari í handknattleik á laugardaginn með því að sigra Arendal á útivelli, 34:28, í fjórða úrslitaleik lið- anna. Elverum vann þar með einvígið 3:1. Þeir Orri Freyr Þorkelssson og Ar- on Dagur Pálsson léku báðir með El- verum en hvorugum tókst að skora í leiknum. _ Stephen Curry átti stórleik aðfara- nótt laugardags þegar lið hans Gol- den State Warriors lagði Boston Cel- tics á útivelli, 107:97, í fjórða úrslitaleik liðanna í NBA-deildinni í körfuknattleik. Þar með jafnaði Gol- den State metin í 2:2 og er á heima- velli í fimmta leik liðanna sem fram fer í San Francisco í kvöld. Curry skoraði 43 stig og tók 10 fráköst fyrir Golden State. Jayson Tatum skoraði 23 stig fyrir Boston og Jaylen Brown 21. _ Haraldur Franklín Magnús endaði í 39.-41. sæti á Emporda Challenge- golfmótinu sem lauk í Girona á Spáni í gær en það var hluti af Áskorenda- mótaröð Evrópu. Haraldur lék á 68 höggum í gær, tveimur undir pari vallarins, og var samanlagt á 279 Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.