Morgunblaðið - 13.06.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
Lengjudeild karla
Vestri – Kórdrengir ................................. 2:2
HK – Þór ................................................... 3:1
Staðan:
Selfoss 6 4 2 0 14:6 14
Fylkir 6 3 2 1 16:7 11
Fjölnir 6 3 2 1 15:10 11
Grótta 5 3 1 1 15:5 10
Grindavík 6 2 4 0 9:5 10
HK 5 3 0 2 10:7 9
Kórdrengir 6 1 4 1 7:6 7
Vestri 6 1 3 2 8:16 6
Þór 6 1 2 3 7:13 5
Afturelding 6 0 3 3 5:10 3
KV 6 1 0 5 6:17 3
Þróttur V. 4 0 1 3 1:11 1
2. deild karla
Ægir – Völsungur..................................... 2:1
Staðan:
Njarðvík 6 5 1 0 20:5 16
Ægir 6 5 1 0 9:1 16
Völsungur 6 4 1 1 14:8 13
Þróttur R. 6 4 1 1 12:6 13
ÍR 6 3 2 1 9:5 11
Haukar 6 2 2 2 7:8 8
KF 6 1 4 1 11:8 7
Höttur/Huginn 6 1 2 3 8:13 5
Magni 6 1 1 4 4:17 4
KFA 6 0 3 3 7:12 3
Víkingur Ó. 6 0 2 4 3:11 2
Reynir S. 6 0 0 6 5:15 0
3. deild karla
KFS – Dalvík/Reynir ............................... 2:0
Sindri – Elliði ............................................ 4:2
ÍH – Augnablik ......................................... 4:0
Víðir – Kormákur/Hvöt ........................... 5:1
Kári – KFG ............................................... 2:0
Staða efstu liða:
Sindri 6 4 1 1 14:9 13
Víðir 6 4 0 2 16:8 12
Dalvík/Reynir 6 4 0 2 13:8 12
KFG 6 4 0 2 12:8 12
Elliði 6 3 1 2 9:7 10
Augnablik 6 3 1 2 8:10 10
Vængir Júpiters 6 3 0 3 9:9 9
Lengjudeild kvenna
Tindastóll – Fjarð/Hött/Leiknir ............. 2:2
Staðan:
FH 6 5 1 0 17:4 16
HK 6 5 0 1 13:6 15
Tindastóll 6 4 1 1 8:4 13
Víkingur R. 6 4 0 2 15:8 12
Fjarð/Hött/Leikn. 6 3 2 1 13:6 11
Grindavík 6 2 1 3 6:9 7
Augnablik 6 2 0 4 8:13 6
Fylkir 6 1 0 5 4:13 3
Haukar 6 1 0 5 4:13 3
Fjölnir 6 0 1 5 4:16 1
2. deild kvenna
ÍR – Grótta................................................ 0:0
Sindri – Hamar ......................................... 3:0
Einherji – ÍA............................................. 0:2
Staða efstu liða:
Grótta 4 3 1 0 20:2 10
KH 3 2 1 0 11:5 7
ÍR 3 2 1 0 7:4 7
Fram 2 2 0 0 6:0 6
Sindri 4 2 0 2 7:12 6
Völsungur 2 1 1 0 3:2 4
ÍH 4 1 1 2 10:12 4
EM U21 árs karla
Undankeppnin, D-riðill:
Ísland – Kýpur.......................................... 5:0
Portúgal – Grikkland ............................... 2:1
Lokastaðan:
Portúgal 10 9 1 0 41:3 28
Ísland 10 5 3 2 25:7 18
Grikkland 10 5 2 3 16:10 17
Hvíta-Rússland 10 4 0 6 16:15 12
Kýpur 10 3 2 5 16:16 11
Liechtenstein 10 0 0 10 0:63 0
_ Portúgal fer beint á EM og Ísland fer í
umspil.
Svíþjóð
Rosengård – Umeå .................................. 5:2
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Rosengård.
Häcken – Vittsjö ...................................... 2:3
- Agla María Albertsdóttir og Diljá Ýr Zo-
mers voru allan tímann á varamannabekk
Häcken.
Brommapojkarna – Kristianstad .......... 1:2
- Amanda Andradóttir kom inn á hjá
Kristianstad á 59. mínútu og Emelía Ósk-
arsdóttir á 84. mínútu. Elísabet Gunnars-
dóttir þjálfar liðið.
Hammarby – Kalmar .............................. 4:0
- Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan
leikinn með Kalmar.
Noregur
Rosenborg – Brann ................................. 1:0
- Selma Sól Magnúsdóttir lék fyrstu 70
mínúturnar með Rosenborg.
- Svava Rós Guðmundsdóttir lék í 59 mín-
útur með Brann og Berglind Björg Þor-
valdsdóttir kom í hennar stað.
Röa – Vålerenga ...................................... 0:4
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan tím-
ann með Vålerenga.
Bandaríkin
Kansas City – New England .................. 1:2
- Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá
New England á 72. mínútu.
B-deild:
Oakland Roots – Rio Grande.................. 2:2
- Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn
með Oakland Roots.
50$99(/:+0$
EM 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og
Elín Metta Jensen kræktu í tvö síð-
ustu sætin í 23 manna EM-hópi Þor-
steins Halldórssonar sem landsliðs-
þjálfarinn tilkynnti á laugardaginn,
miðað við hvernig liði Þorsteinn hef-
ur teflt fram á undanförnum mán-
uðum.
Áslaug Munda hefur ekki spilað
landsleik síðan í júní 2021 og því
ekki komið við sögu í síðustu ellefu
leikjum íslenska liðsins.
Elín Metta spilaði sinn fyrsta og
eina leik frá því í júní 2021 þegar Ís-
land vann Tékkland í síðasta leik
liðsins, í undankeppni HM í apríl.
Fjórir leikmenn sem hafa spilað
tvo til þrjá leiki hver af síðustu sjö
leikjum Íslands þurfa hinsvegar að
sitja heima. Það eru Ásta Eir Árna-
dóttir, Karitas Tómasdóttir, Na-
tasha Anasi og Ída Marín Her-
mannsdóttir.
Þá fær Hlín Eiríksdóttir ekki
tækifæri. Hún missti af nær öllu síð-
asta ári með landsliðinu og hefur
ekki verið valin í ár en hefur náð sér
vel á strik á ný með Piteå í sænsku
úrvalsdeildinni.
Þær Hlín og Ída Marín eru hins-
vegar í U23 ára liðinu sem valið var í
gær fyrir vináttuleik gegn A-
landsliði Eistlands 24. júní en þann
hóp má sjá á mbl.is/sport/fotbolti.
EM-farar Íslands eru eftirtaldir:
Markverðir: Sandra Sigurðar-
dóttir (Val), Cecilía Rán Rúnars-
dóttir (Bayern), Telma Ívarsdóttir
(Breiðabliki).
Varnarmenn: Áslaug Munda
Gunnlaugsdóttir (Breiðabliki), Elísa
Viðarsdóttir (Val), Glódís Perla
Viggósdóttir (Bayern), Guðný Árna-
dóttir (AC Milan), Guðrún Arnar-
dóttir (Rosengård), Hallbera Guðný
Gísladóttir (Kalmar), Ingibjörg Sig-
urðardóttir (Vålerenga), Sif Atla-
dóttir (Selfossi).
Miðjumenn: Alexandra Jóhanns-
dóttir (Breiðabliki), Dagný Brynj-
arsdóttir (West Ham), Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir (Orlando Pride),
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Bay-
ern), Sara Björk Gunnarsdóttir
(Lyon), Selma Sól Magnúsdóttir
(Rosenborg).
Sóknarmenn: Agla María Al-
bertsdóttir (Häcken), Amanda
Andradóttir (Kristianstad), Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir (Brann),
Elín Metta Jensen (Val), Svava Rós
Guðmundsdóttir (Brann), Sveindís
Jane Jónsdóttir (Kristianstad).
Áslaug og Elín
síðastar á EM?
- Þorsteinn kynnti 23 manna hópinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
England Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Elín Metta Jensen eru í 23
manna hópnum sem valinn var fyrir Evrópumótið í sumar.
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Kristín Þórhallsdóttir fékk þrenn
silfurverðlaun og ein brons-
verðlaun í -84 kg flokki á heims-
meistaramótinu í klassískum
kraftlyftingum sem lauk í Sun
City í Suður-Afríku um helgina.
Hún fékk silfur í hnébeygju
með 230 kg og tvíbætti eigið Evr-
ópumet, silfur í bekkpressu með
120 kg, brons í réttstöðulyftu með
230 kg og silfur í samanlögðu þar
sem hún lyfti alls 580 kg og bætti
Evrópumet sitt þar um 20 kíló.
Amanda Lawrence frá Banda-
ríkjunum, sem er þjálfari Krist-
ínar, varð heimsmeistari með 615
kg samanlagt en Kristín hafði
betur gegn henni í bekkpress-
unni.
„Það var ákveðið „kick“ að
berjast um gull á HM þó það næð-
ist ekki í dag. Ég er komin á pall
í öllum greinum og komin yfir
heimsmeistarann í einni grein.
Hún átti reyndar ekki sinn besta
dag, en þetta gefur manni auðvit-
að heilmikið búst,“ sagði Kristín
m.a. í ítarlegri umfjöllun um mót-
ið á mbl.is/sport.
Ljósmynd/Hinrik Pálsson
Bestar Kristín Þórhallsdóttir og Amanda Lawrence fengu silfur og gull í
-84 kg flokknum í Suður-Afríku en Lawrence er einmitt þjálfari Kristínar.
Kristín náði í
þrjú silfur á HM
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Seinni heimaleikur Íslands í Þjóða-
deild UEFA í fótbolta fer fram í
kvöld þegar íslenska karlalands-
liðið mætir Ísrael á Laugardalsvell-
inum klukkan 18.45.
Eftir sigur Ísraelsmanna gegn
Albönum á útivelli á föstudags-
kvöldið er ljóst að Ísland verður að
vinna þennan leik til að eiga sigur-
möguleika í riðlinum þar sem Ísrael
stendur nú best að vígi til að vinna
sér sæti í A-deildinni.
Ísrael er með fjögur stig, Ísland
tvö og Albanía eitt þegar riðillinn
er hálfnaður en eftir þennan leik
verða aðeins tveir leikir eftir í
haust, þegar Albanir leika við Ís-
land á heimavelli og Ísrael á úti-
velli.
Útlit er fyrir að Arnar Þór Við-
arsson stilli upp sama eða nánast
sama byrjunarliði og í jafnteflis-
leiknum gegn Albaníu síðasta
mánudag. Birkir Bjarnason, Hörð-
ur Björgvin Magnússon og Alfons
Sampsted koma allir inn í hópinn á
ný en enginn þeirra sem hófu leik-
inn gegn Albaníu, nema Andri Lu-
cas Guðjohnsen, kom við sögu í vin-
áttuleiknum umtalaða í San Marínó
á fimmtudagskvöldið.
Hákon Arnar Haraldsson og Al-
bert Guðmundsson virðast einna
líklegastir til að geta komið inn í
byrjunarliðið.
Aron og Mikael tæpir
Arnar skýrði frá því á frétta-
mannafundi í gær að Aron Elís
Þrándarson og Mikael Anderson
væru tæpir vegna meiðsla en staða
þeirra kæmi í ljós í dag. Aron var
fyrirliði Íslands í San Marínó og
skoraði sigurmarkið. Hans hlut-
verk hefur fyrst og fremst verið að
vera til taks fyrir Birki Bjarnason
sem aftasti maður á miðjunni.
Mikael lék allan leikinn í San Mar-
ínó og var óheppinn að skora ekki í
fyrri hálfleiknum þegar hann fékk
tvö góð marktækifæri.
Þá verður Ingvar Jónsson mark-
vörður ekki í hópnum í kvöld. Hann
meiddist í upphitun í San Marínó og
Hákon Rafn Valdimarsson, mark-
vörður 21-árs landsliðsins, kemur
inn í A-hópinn í hans stað.
Þurfa sigur gegn
Ísrael í kvöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðadeild Marki Jóns Dags Þor-
steinssonar gegn Albaníu fagnað.
_ Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH
sigraði á laugardaginnn í bæði 100 og
200 metra hlaupi karla á Smáþjóða-
meistaramótinu í frjálsíþróttum á
Möltu og setti mótsmet í báðum grein-
um. Kolbeinn sigraði í 100 metra
hlaupinu á 10,59 sekúndum og í 200
metra hlaupinu á 21,40 sekúndum.
Dagur Andri Einarsson úr ÍR fékk
bronsverðlaun í 100 metra hlaupinu á
10,66 sekúndum.
Tiana Ósk Whitworth úr ÍR fékk silf-
urverðlaun í 200 metra hlaupi kvenna
á 24,25 sekúndum
og bronsverðlaun í
100 metra hlaupi
þar sem hún náði
sínum besta tíma í
ár, 11,75 sekúndur.
Hilmar Örn Jóns-
son úr FH og El-
ísabet Rut Rún-
arsdóttir úr ÍR
fengu silfurverðlaun í sleggjukasti
karla og kvenna. Hilmar kastaði 70,95
metra en Elísabet kastaði 64,21
metra. Glódís Edda Þuríðardóttir fékk
silfurverðlaun í 100 metra grinda-
hlaupi á 14,39 sekúndum sem er
hennar besti tími í ár. Irma Gunn-
arsdóttir úr FH fékk silfurverðlaun í
langstökki, stökk 5,96 metra. Íris
Anna Skúladóttir úr FH fékk silf-
urverðlaun í 5.000
metra hlaupi og
náði sínum besta
árangri, 17:09,10
mínútur, en hún
bætti þrettán ára
gamalt persónu-
legt met sitt.
_ Elverum varð
norskur meistari í handknattleik á
laugardaginn með því að sigra Arendal
á útivelli, 34:28, í fjórða úrslitaleik lið-
anna. Elverum vann þar með einvígið
3:1. Þeir Orri Freyr Þorkelssson og Ar-
on Dagur Pálsson léku báðir með El-
verum en hvorugum tókst að skora í
leiknum.
_ Stephen Curry átti stórleik aðfara-
nótt laugardags þegar lið hans Gol-
den State Warriors lagði Boston Cel-
tics á útivelli, 107:97, í fjórða
úrslitaleik liðanna í NBA-deildinni í
körfuknattleik. Þar með jafnaði Gol-
den State metin í 2:2 og er á heima-
velli í fimmta leik liðanna sem fram
fer í San Francisco í kvöld. Curry
skoraði 43 stig og tók 10 fráköst fyrir
Golden State. Jayson Tatum skoraði
23 stig fyrir Boston og Jaylen Brown
21.
_ Haraldur Franklín Magnús endaði í
39.-41. sæti á Emporda Challenge-
golfmótinu sem lauk í Girona á Spáni
í gær en það var hluti af Áskorenda-
mótaröð Evrópu. Haraldur lék á 68
höggum í gær, tveimur undir pari
vallarins, og var samanlagt á 279
Eitt
ogannað