Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 21

Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 ✝ Kristín Erna Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 30. apríl 1944. Hún lést 28. maí 2022 í Reykjavík. Kristín Erna var dóttir Ragnhildar Ólafsdóttur frá Miðvogi á Akra- nesi, f. 2. febrúar 1923, d. 24. júní 2017, og Ólafs Björnssonar frá Stóra-Sandfelli í Miðdal, f. 18. mars 1920, d. 28. desember 1979. Systkini Kristínar eru Ragn- heiður, f. 21. októ- ber 1945, Bergþór Rúnar, f. 31. júlí 1949, og Ólöf Anna, f. 30. júlí 1954. Kristín giftist Óskari Lárussyni frá Reykjavík, f. 20. september 1942, og eignuðust þau fjög- ur börn. Þau slitu samvistir 1977. Börn þeirra: 1) Lárus, kona hans er Guðlaug Helgadóttir, börn þeirra eru Hrefna Lind, Jóhanna og Helga og þrjú barnabörn. 2) Ásthildur, maður hennar er Eiríkur Ágúst Ingvarsson, barn þeirra er Brynjar. 3) Anna María, hennar maður Halldór Benjamín Brynj- arsson, börn þeirra eru Kristín og Gunnar Örn, þau eiga eitt barnabarn. 4) Andri Þór, börn hans eru Alexandra, Aníta og Sara. Kristín ólst upp á Blómvalla- götu í Vesturbænum. Hún gekk í Melaskóla og gaggó vest, einn- ig fór hún í húsmæðraskólann. Eftir að hún eignaðist börnin var hún heimavinnandi en vann einnig af og til í skóbúð pabba síns sem ung kona. Árið 1976 byrjaði hún að vinna á Landspít- alanum þar sem hún vann alla tíð sem móttökuritari, fyrst á röntgen- en svo á geisladeild, þar til hún hætti störfum. Útförin fór fram í kyrrþey 9. júní 2022. Minning um móður. Í hjarta mínu er lítið ljós, sem logar svo skært og rótt. Í gegnum torleiði tíma og rúms það tindrar þar hverja nótt. Það ljósið kveiktir þú, móðir mín, Af mildi, sem hljóðlát var. Það hefur lifað í öll þessi ár, þótt annað slokknaði þar. Og þó þú sért horfin héðan burt og hönd þín sé dauðakyrr, í ljósi þessu er líf þitt geymt, – það logar þar eins og fyrr. Í skini þess sífellt sé ég þig þá sömu og þú forðum varst, er eins og ljósið hvern lífsins kross með ljúfu geði þú barst. Af fátækt þinni þú gafst það glöð, – þess geislar vermdu mig strax og fátækt minni það litla ljós mun lýsa til hinsta dags. (Jóhannes úr Kötlum) Elskulega móðir mín verður jarðsungin í dag, eftir að hafa glímt við mjög erfið veikindi und- anfarin ár. Það er þungu fargi af henni létt og ég veit að henni líður betur þar sem hún er núna. Hún tókst á við þessi veikindi af æðru- leysi og naut þar styrks síns besta vinar, Gústa, sem alltaf stóð eins og klettur við hlið hennar í veikindum hennar, alveg fram á síðasta dag. Ég á ekki nógu mörg orð til að þakka Gústa fyrir trausta og fallega vináttu við mömmu. Alla tíð og alveg undir það síðasta kallaði Gústi fram bros á varir og glampa í augu mömmu. Takk Gústi, fyrir að vera til staðar fyrir mömmu, við systkinin kunnum mjög vel að meta það. Mamma sá ekki sólina fyrir þér og elskaði þig meira en lífið sjálft. Lífshlaup mömmu einkenndist af dugnaði, ósérhlífni, hlýju, ást og kærleika. Ung varð hún frá- skilin fjögurra barna móðir og þurfi alla tíð að hafa mikið fyrir lífinu með fjögur börn, sem hún elskaði út af lífinu og setti okkur alltaf í fyrsta sæti. Hún kenndi manni að heiðarleiki og hrein- skilni væru góðir mannkostir og hennar ráð voru alltaf þau, að maður ætti að koma hreint og beint fram. Mamma var okkur systkinum mjög góð fyrirmynd í lífinu og verður hennar ávallt minnst sem stoltrar móður, sem lagði mjög mikið á sig, til að börn- in hennar fengju gott uppeldi. Mamma var mikil fjölskyldu- manneskja og þau eru ófá mat- arboðin, þar sem hún hóaði liðinu sínu saman í mat, þar sem var spjallað um daginn og veginn. Hún elskaði að ferðast til útlanda og voru ferðirnar ófáar sem hún fór til Miðjarðarhafslanda eða til Ameríku og naut þar lífsins í góðra vina hópi. Elsku mamma, takk fyrir að reynast mér góð mamma, að reynast Guðlaugu góð tengdamamma, börnunum okkar góð amma, barnabörnun- um okkar góð langamma, við söknum þín öll mikið en ég veit að sorgin og söknuðurinn sem við upplifum núna svo sterkt mun með tímanum breytast í fallegar minningar um þig og okkar stundir saman. Ég mun ávallt minnast þín með hlýju í hjarta. Lárus Óskarsson. Elsku hjartans yndislega mamma okkar, nú ertu farin frá okkur og er það ólýsanlega sárt að hugsa til þess að sjá þig ekki aftur, fallega brosið þitt, en þú tókst alltaf á móti okkur með bros á vör og sagðir: „Ertu komin, ó hvað það er gott að fá þig!“ Þú varst okkur svo mikil fyr- irmynd í lífinu, kenndir okkur svo margt. Við vorum bara litlar sex ára stelpur og þú byrjuð að kenna okkur að prjóna. Einnig saumaðir þú fullt af fallegum fötum, bæði á okkur og sjálfa þig. Þú kenndir okkur að baka og var ægilega vin- sælt af vinkonum okkar að koma heim og baka skúffuköku, alltaf stuð í Barmahlíðinni. Alltaf vor- um við svo montnar af þér, svo falleg, góð og glæsileg, þú varst sko mamma okkar! Þótt þú ættir fjögur börn og værir í fullri vinnu á lansanum var heimili okkar alltaf svo hreint og fallegt. Úr Barmahlíðinni var stutt að kíkja í heimsókn í vinn- una og segja hæ, alltaf vorum við velkomnar á þinn vinnustað. Þér fannst gaman að ferðast bæði innan- og utanlands, hafðir farið mjög víða: Ameríkuferðin, sem tók þá 12 tíma flug, til Önnu frænku, þar naust þú þín vel og hafðir gaman af. Ítalíuferðin þeg- ar við vorum aðeins níu ára og fengum að koma með, það var sko spennandi og í þrjár vikur. Árin liðu og eignaðist þú barnabörnin sem þér fannst gam- an að fylgjast með. Þú eignaðist líka fjögur langömmubörn og tvö þeirra alveg ný sem þú hafðir yndi af að sjá. Síðustu ár fór heilsu þinni að hraka og fórum við þá að eyða meiri tíma saman, sem er okkur svo dýrmætt í dag. Svo kom covid og þá var farið mikið í bíltúra: Vesturbærinn tekinn; Blómvallagatan, Fjólugatan og auðvitað Hlíðarnar. Alltaf var stoppað og keyptur ís, því þú elskaðir að fá ís. Áttum líka ynd- isleg kvöld saman, þá var horft á Silfur Egils, Attenborough, Mamma mía og ekki má gleyma laugardagskvöldunum með Helga Björns, þau voru í uppá- haldi. Elsku mamma okkar, við gæt- um haldið endalaust áfram að rifja upp góðar minningar sem við geymum nú í hjarta okkar. Huggum okkur við það að við sjáumst aftur í fallega sumar- landinu. Takk fyrir allt, við elsk- um þig. Þínar ástkæru dætur, Anna María og Ásthildur. Elsku amma okkar, það er undarlegt og erfitt að kveðja þig, en við vonum að þú sért komin á betri stað þar sem þér líður vel. Þú fallega amma skvís. Blómarós, allt svo fallegt í kringum þig. Það var alltaf gott að koma í heimsókn og hitta þig. Brosið þitt þegar þú opnaðir dyrnar og faðmlagið. Þú varst ljúf og góð amma. Við áttum margar góðar stundir með þér elsku amma. Það var svo gaman þegar þú varst að vinna í skóbúðinni og við feng- um fína skó frá þér á jólunum. Sjálf áttir þú alltaf svo fallega skó. Takk fyrir appelsínið, allt spjallið við eldhúsborðið og samprjónið. Takk fyrir purus- teikina á jólunum, gleðina og forvitnina. Takk fyrir að segja okkur frá gamla tímanum þín- um. Reykjavíkurmærin í Vest- urbænum. Þú ert sannarlega hetja í okkar augum. Hver gengur þarna eftir Austurstræti og ilmar eins og vorsins blóm með djarfan svip og ögn af yfirlæti á ótrúlega rauðum skóm Ó, það er stúlka engum öðrum lík það er hún fröken Reykjavík. Ó, það er stúlka engum öðrum lík það er hún fröken Reykjavík. Hver situr þar með glóð í gullnum lokkum í grasinu við Arnarhól Svo æskubjört í nýjum nælonsokkum og nýjum, flegnum siffonkjól (Jónas Árnason) Hrefna og Jóhanna Lárusdætur. Elsku amma mín. Takk fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum sam- an. Þú ert partur af fyrstu minningum mínum sem barn. Þegar við tvær fórum að stúss- ast saman. Okkur skvísunum leiddist það ekki að kíkja saman í Kolaportið. Ég man eftir því hvað mér fannst þú alltaf glæsi- leg. Rúllurnar í hárið, varalitur og flott föt. Það var alltaf ynd- islegt að koma í heimsókn til þín, því þú varst svo elskuleg og brosmild. Takk fyrir að kenna mér að prjóna. Það var gaman að hanga með þér, horfa á sjón- varpið, prjóna, borða ís og hlæja saman. Svo var líka svo gaman að gera okkur fínar með naglalakki, rúllum og varalit. Já, þú varst sko ákveðin í því að vera alltaf fín og sæt. Þú varðst bara glæsilegri og glæsilegri. Síðustu ár hefur þú staðið þig eins og hetja, elsku amma mín. Ég er viss um að þú sért komin á góðan stað núna því ef það er einhver sem á það skilið þá ert það þú. Hvíldu í friði, ég elska þig. Helga Lárusdóttir. Kristín Erna Ólafsdóttir Hlöðuvelli, Arnarvatnsheiði, norður fyrir Langjökul, um Hveravelli og Kerlingarfjöll, í Arnarfell undir Hofsjökli, Hruna- manna- og Gnúpverjaafrétt, Fjallabaksleiðir, Rangárvalla- og Fljótshlíðarafrétti og víðar. En eftirminnilegasta ferðin í huga okkar er ferðin 1985 austur Landmannaleið, inn að Langasjó, inn á milli Fögrufjalla inn í Gras- ver undir Vatnajökli, yfir Skaftá gegnt Tröllhamri, niður Skaft- áreldahraunið að Kirkjubæjar- klaustri og syðri Fjallabaksleið heim. Þau Kristján og Magga voru ávallt vel ríðandi. Hún hafði eignast hryssu frá Þverspyrnu í Hrunamannahreppi og var henni haldið undir góða stóðhesta og urðu afkvæmi hennar öll lángef- in, góðgeng og traust hross og sómdu þau hjón sér vel á þessum gæðingum sínum. Kristján var ákaflega fróð- leiksfús og vel lesinn og stundum þegar hann sagði frá var því lík- ast sem hann þekkti fólk í hverj- um hreppi á Íslandi. Bæði voru þau hjón ljóð- og söngelsk eins og mörg okkar, og alltaf kátt á hjalla í sæluhúsunum þegar komið var í náttstað á kvöldin. Þau hjón voru ákaflega gestrisin og höfðingjar heim að sækja og borðin svignuðu undan kræsingunum sem Magga breiddi á borð í veislunum sem þau héldu. Eftir slysið sem henti Kristján fyrir nokkrum árum var aðdáun- arvert að sjá hvað Magga og börnin hans tókust á við erfiðleik- ana sem því fylgdi og sýndu hon- um óendanlega þolinmæði og um- hyggju. Að leiðarlokum þakka ég hon- um alla þá vináttu og tryggð sem hann ávallt sýndi okkur Gunnu og fjölskyldu okkar og vinahópurinn úr hestaferðunum sendir Möggu og fjölskyldu hennar samúðar- kveðjur með þökk fyrir allt sem hann var okkur. Andreas Bergmann. Kristján Guðmundsson var góður maður og allt sem honum var falið vann hann af trú- mennsku og alúð. Hann var glað- sinna, heilsteyptur og hlýr í samskiptum. Það var einstak- lega gott að eiga hann að vini og ég hef saknað hans síðan slysið varð. En frá þeim tíma hefur líf hans og fjölskyldunnar verið gjörbreytt. Ég kynntist Krist- jáni þegar nýr kafli var að hefj- ast í mínu lífi þegar ég var kosin í bæjarstjórn Kópavogs 1978. Hann var þá félagsmálastjóri og þar varð minn vettvangur árin í bæjarstjórn. Kristján varð bæj- arstjóri tveimur árum seinna og áratugurinn sem fylgdi líklega sá umsvifa- og áhrifamesti á starfsævi hans. Hann átti ein- staklega gott með að umgangast fólk og ná til þess. Hann lét sig líka varða hagi annarra og hlúði persónulega að ýmsum sem höll- um fæti stóðu og taldi aldrei eft- ir sér að reyna að leysa vanda ef til hans var leitað. Það var gam- an að vinna með Kristjáni, hann var skemmtilegur og það var góður bragur á því sem hann sá um. Hann var bæjarstjóri fyrir meirihluta Alþýðuflokks, Al- þýðubandalags og Framsóknar- flokks. Við vorum framsækin við stjórn bæjarins og stolt þegar bærinn hlaut viðurnefnið félags- málabærinn. Þegar mörgu á að hrinda í framkvæmd er mikil- vægt að hafa ötulan bæjarstjóra sem fylgir málunum vel eftir inn í kerfið. Þannig var Kristján og ég fullyrði að starfsmenn Kópa- vogsbæjar hafi lagt sig fram allir sem einn miðað við þann góða anda sem ríkti milli starfsfólks- ins á þessum tíma. Þetta var góður og eftirminnilegur tími og vinabönd þróuðust milli margra. Við Sverrir eignuðumst Mar- gréti og Kristján að góðum vin- um og fylgdumst álengdar með lífi barnanna og þeirra sterku stórfjölskyldu. Við höfum líka fylgst með því undanfarin ár hvernig þau öll hafa reynt að létta Kristjáni breyttar og mjög erfiðar aðstæður. Við eigum ljúf- ar minningar um innlit og kaffi- spjall í Hrauntungunni og alltaf var gaman meðan Kristján var frískur og kíkti við á Hlíðarvegi á heilsugöngu sinni í dalnum. Nú er lífsgöngu þessa sómamanns lokið. Ég er stolt af að hafa átt hann að vini og við Sverrir þökk- um áralanga samfylgd um leið og við vottum Margréti, Höllu, Svövu og Hjalta, já allri fjöl- skyldunni, innilega samúð. Blessuð sé minning Kristjáns Guðmundssonar. Rannveig Guðmundsdóttir. Mig langar að minnast góðs vinar og samferðamanns, Krist- jáns Guðmundssonar, með nokkrum minningabrotum. Fyrstu kynni okkar eru tengd Bergstöðum í Biskupstungum en þangað átti hann oft leið með föð- urbróður sínum Bergi og Rögnu konu hans. Þau keyptu jörðina ásamt fjórum öðrum fjölskyldum og voru að koma sér upp bústað á landinu. Þessar minningar eru tengdar hestastússi, sameigin- legu áhugamáli þessa hóps. Bergur féll frá 1983 og þá hófst nýtt og nánara skeið í samskipt- um Kristjáns við okkur og við Rögnu og Unni föðursystur hans, en þær voru nú félagar í hesta- mennskunni. Hélst þessi hesta- tenging áfram, m.a. voru nokkrar „burtreiðar“ saman, en um þetta leyti árs er farið ríðandi með hrossin af höfuðborgarsvæðinu austur yfir heiðar í sumarhaga. Leiðir okkar lágu einnig sam- an á starfsvettvangi, þegar ég sótti um starf garðyrkjustjóra í Kópavogi 1986. Samstarf við hann og þann meirihluta sem þá stýrði málum bæjarins var ein- staklega frjótt og skemmtilegt. Það var gríðarlega mikill vilji til að gera veg umhverfismála bæj- arfélagsins í víðum skilningi sem mestan. Þetta var mikill blóma- tími fyrir starfsumhverfi okkar sem unnum saman að umhverf- ismálum bæjarins næstu árin. Bæði var mikill skilningur hjá nefndum og yfirstjórn bæjarins. Kristján hóf sinn starfsferil hjá Kópavogsbæ sem félags- málastjóri 1971 en frá 1982 var hann ráðinn bæjarstjóri og starf- aði til ársins 1990. Á þessum tíma, fyrir nær 40 árum, fór mjög gott orð af fyrirmyndarfélags- þjónustu hjá Kópavogsbæ. Mála- flokkurinn er margþættur og tekur til flestra þátta velferðar íbúanna, sérstaklega þeirra sem minna mega sín. Skömmu eftir að ég hóf störf sem garðyrkjustjóri átti ég orða- stað við ungan verktaka sem vann fyrir okkur. Hann trúði mér fyrir því að hann vildi svo gjarna flytja í Kópavog því hann hefði vissu fyrir því að hann fengi mun betri þjónustu við ungt barn sitt í Kópavogi en hann fengi þar sem hann bjó. Undir lok starfs hans sem bæjarstjóri undir 1990 hvessti í sambúð Reykjavíkur og Kópa- vogs um lagningu hraðbrauta um Fossvogsdal. Á árunum 1986- 1990 mögnuðust þessar deilur mjög og í byrjun maí 1989 var enn gripið til mótmæla og fjöl- menntu íbúar við dalinn og víðar að og gróðursettu nokkur hundr- uð aspir og önnur tré í mótmæla- skyni. Mótmælin voru undir for- ustu Kristjáns í góðu samráði við íbúa að dalnum. Þessir lundir eru í dag yfir 10 m háir og setja mik- inn svip á svæðið kringum Fagralund, íþróttasvæði HK. Kristján var alltaf jákvæður og glaðsinna í daglegum sam- skiptum þannig að minninga- brotin eru öll mjög jákvæð og ljúf af áralöngum kynnum. Við fjölskylda mín og systkin mín tengd Bergstöðum þökkum samfylgdina og vottum Margréti og fjölskyldunni allri innilega samúð á þessum tímamótum. Einar E. Sæmundsen. Auður var fyrir- buri og vart hugað líf eftir að hún fæddist. Ólína móðir Auðar lést einungis fjórum dögum eftir fæðinguna. Vegna að- stæðna var Auður send í fóstur að Gunnlaugsstöðum á Fljótsdalshér- aði þar sem hún ólst upp við gott atlæti. Gunnlaugsstaðir eru í næsta nágrenni við Hallormsstað- arskóg og hinn fallega og vinsæla áningarstað Atlavík við Lagar- fljótið. Auður var send í nám að Hús- mæðraskólanum á Hallormsstað. Auður Magnúsdóttir ✝ Auður Magn- úsdóttir fædd- ist 12. apríl 1924. Hún lést 11. maí 2022. Útför Auðar fór fram í kyrrþey 27. maí 2022. Uppi á héraði kynnt- ist hún eiginmanni sínum Rögnvaldi Sigurðssyni tré- smíðameistara. Þau bjuggu um skeið á Seyðisfirði ásamt fjórum börnum sín- um áður en þau fluttu til Reykjavík- ur. Hún vann lengst af við verslunarstörf og heimaþjónustu í Reykjavík. Skömmu eftir að Auð- ur varð ekkja flutti hún í litla íbúð í Hörðalandi 22 í Reykjavík sem reyndist henni mikið gæfuspor. Hún undi sér vel í Hörðalandi í yfir 30 ár með yndislegum nágrönnum sem reyndust henni sannkölluð stoð og stytta. Á góðviðrisdögum hafði hún yndi af því að sitja í litla skjólgóða garðinum fyrir framan íbúðina sína. Hún las bæði bækur og dagblöð og fylgdist alla tíð vel með þjóðmálum. Auður var létt í lund en hlédræg að eðlisfari, hún var samt mikil fé- lagsvera og fannst gaman að vera innan um fólk. Henni fannst gott að fara í sund og í Múlabæ ásamt starfi eldriborgara í Bústaða- kirkju. Þrátt fyrir að hún ætti æ erfiðara með gang vegna gigtar var hún mjög sjálfstæð og keyrði bíl fram á 92. aldursár og vildi allt- af komast áfram á eigin forsend- um. Það var henni því mikil frels- isskerðing þegar hún þurfti að hætta að keyra bíl. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá henni en aldr- ei þannig að það væri meiðandi eða á kostnað annarra og hún gerði óspart grín að sjálfri sér. Einhvern tíma þegar hún var búin í einni af mörgum mjaðmaskiptaaðgerðum sínum þá sagði hún glettin að það væri bara verið að skipta um vara- hluti í henni eins og bílnum henn- ar. Hennar stóra fjölskylda skipti hana mestu máli og fylgdist hún alltaf vel með öllum, ekki síst yngsta fólkinu. Það er minnisstætt þegar gesti bar að garði, þá hitaði hún alltaf kaffi í mokka espresso- kaffikönnunni sinni á eldavélar- hellunni þar til kannan fór að flauta, þá var kaffið tilbúið. Síðan dró hún fram bakkelsi sem hún átti alltaf handa gestum og gang- andi. Auður vildi líta vel út og al- veg fram á síðasta dag fannst henni mikilvægt að vera snyrtilega til fara og með fallegt hár. Lífið lék ekki alltaf við Auði og á fyrstu ár- unum eftir að fjölskyldan flutti til Reykjavíkur var oft erfitt að ná endum saman. Hún hafði ríka rétt- lætiskennd og lét það óspart í ljós ef henni fannst hallað á minnimátt- ar í samfélaginu. Auður var aldrei rík að verald- legum auði en átti þeim mun meira af hjartahlýju. Þessi litla pena kona sem var vart hugað líf eftir að hún kom í heiminn var dugnaðar- forkur. Hún kvaddi sátt við lífið og tilveruna og erum við þakklát fyrir að hafa átt hana svona lengi að. Eins og hún sagði sjálf: það verður forvitnilegt þetta síðasta ferðalag. Hvíl í friði elsku mamma og tengdamamma. Arnaldur Austdal og Patrina Margaret.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.