Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 17

Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 ✝ Eyjólfur Þor- björn Haralds- son fæddist 29. júlí 1940 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 31. maí 2022. Eyjólfur var son- ur hjónanna Sól- veigar Eyjólfs- dóttur húsfreyju og matráðskonu, f. 25.2. 1908, d. 31.1. 2005, og Har- aldar Þórðarsonar skipstjóra, f. 30.9. 1893, d. 2.10. 1951. Alsystir Eyjólfs var Kristín Vilborg geislafræðingur, f. 11.4. 1945, d. 1.3. 2021, og hálfsystir samfeðra Þóra, f. 24.4. 1924, d. 11.7. 1982. Eyjólfur ólst upp í Hafnarfirði og lauk landsprófi frá Flensborg- arskólanum í Hafnarfirði og stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1960. Hann lærði læknisfræði við Há- skóla Íslands og lauk cand.med.- prófi 1967. Hann stundaði fram- haldsnám í lyflækningum í Skot- landi og lauk sérfræðiprófi 1974. Síðar hlaut hann sérfræðivið- urkenningu í öldrunarlækn- ingum 2002. 22.8. 1981. Hann er kvæntur Hólmfríði Morgan hjúkrunar- fræðingi og eiga þau fimm börn. 2) Haraldur Sveinn tónlistar- maður, f. 15.3. 1985, d. 15.4. 2015. Haraldur var kvæntur Heiðrúnu Gissunni Káradóttur, en þau skildu. Eyjólfur og Edda voru alla tíð búsett í Hafnarfirði. Eyjólfur hafði mikinn áhuga á klassískri tónlist, óperum og djasstónlist. Sóttu þau hjón mikið tónleika og óperur og ferðuðust víða um heim til að sinna því áhugamáli. Ferðalög voru annað stórt áhugamál, jafnt innanlands sem utan. Hafði Eyjólfur heim- sótt meira en 50 lönd í öllum heimsálfum nema Suðurskauts- landinu og farið þrisvar um- hverfis jörðina og margsinnis umhverfis Ísland. Einnig stund- aði hann hálendisferðir í nokkur ár. Stangveiði var líka stórt áhugamál, einkum laxveiði. Norðurá, Haffjarðará og Álftá á Mýrum urðu oftast fyrir valinu, auk Elliðaánna. Eyjólfur gekk í Frímúrara- regluna 1985 og hafði mikið gagn og gaman af að starfa inn- an reglunnar, þar sem hann gegndi ýmsum embættum. Síð- ustu árin naut hann þess mjög að umgangast ættingja og vini, ekki síst barnabörnin, sem voru auga- steinar hans. Útför Eyjólfs verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 13. júní 2022, klukkan 13. Eyjólfur starfaði sem heimilislæknir í Kópavogi 1974-2000 og sem öldr- unarlæknir á Landakoti frá 2000 til starfsloka 2010. Hann tók jafnframt mikinn þátt í fé- lagsstörfum lækna, sat í stjórn Lækna- félags Reykjavíkur og Læknafélags Íslands, auk þess sem hann var formaður Fé- lags íslenskra heimilislækna og forvera þess 1976-1983 og gerð- ur heiðursfélagi þess félags 1998. Hann fékk viðurkenninguna „Fellow of the Royal College of Physicians of Edinburgh“ 1991. Eyjólfur var mikill áhugamað- ur um gott íslenskt mál. Hann sat í íðorðanefnd læknafélaganna um áratuga skeið, fram undir andlátið. Eyjólfur kvæntist 1968 Sig- rúnu Aðalsteinsdóttur, f. 1944, d. 1975. Eftirlifandi eiginkonu sinni kvæntist Eyjólfur 1981, Guð- björgu Eddu Eggertsdóttur lyfjafræðingi, f. 1951. Synir þeirra: 1) Eggert bráðalæknir, f. Hún er einkennileg, tilfinning- in sem fylgir því að skrifa minn- ingargrein um föður sinn. Til- hugsunin um að þessi maður sem hefur verið svo stór partur af mínu lífi sé farinn er enn óraun- veruleg. Pabba mínum þótti alltaf gott að hafa stjórn á aðstæðum og vildi gera hlutina á sínum for- sendum. Pabbi var mikill lífs- kúnstner, hafði unun af ferðalög- um, klassískri tónlist, góðum mat og góðu víni. Að lifa í meinlætum var alls ekki hans stíll. Það kom mér því ekki á óvart þegar hann og mamma sögðu mér frá því að hann hefði afþakkað blóðskilun- armeðferð, enda fylgir henni mik- il binding og hún heftir mann að vissu leyti. Síðan þá hafa þau haldið áfram að sinna sínum helstu sameiginlegu áhugamálum – ferðalögum og klassískri tónlist. Síðast fyrir einungis um mánuði síðan í Lundúnaborg. Mínar fyrstu minningar af pabba eru tengdar fréttum. Hann var langt leiddur fréttafíkill og hlustaði og horfði á alla frétta- tíma sem í boði voru. Þessa fíkn erfði ég frá honum eins og Fríða eiginkona mín getur borið vitni um. Íslensk náttúra var pabba hug- leikin. Við áttum margar góðar stundir við ár- og vatnsbakka víða um land þar sem við rennd- um fyrir fisk, oftast lax. Við ár- bakkann kenndi hann mér að njóta kyrrðarinnar, hlusta á fuglana og lesa í vatnið. Kærastar eru þó minningarnar sem tengjast pabba og börnunum okkar Fríðu. Hann ljómaði þegar hann heyrði þau nálgast og bros- ið var einlægt þegar knús og kossar fylgdu í kjölfarið. Honum fannst gott að hafa líf í kringum sig. Við Fríða vorum mikið hjá honum og mömmu síðustu vikuna og gerðum okkar besta til að létta undir og láta pabba líða vel. Það var sárt að heyra pabba segja okkur að nú væri lífsneist- inn að slokkna. En þetta var kjarni málsins – hann vildi að við vissum að hans stund væri komin og að hann væri sáttur. Hann brosti til okkar, kyssti okkur og fékk að knúsa barnabörnin hinsta sinni. Pabbi vildi fá að fara heima, í ró og næði, sem hann og fékk. Eftir stendur tómarúm sem erfitt verður að fylla. En allar góðu minningarnar, sögurnar og ferðalögin – allt sem við náðum að upplifa saman er ómetanlegt. Við minnumst pabba með miklum söknuði, en fyrst og fremst hlýju og þakklæti fyrir allt. Hvíl í ró og friði, elsku pabbi minn. Eggert Eyjólfsson. Okkar kæri vinur, mágur og svili Eyfi er fallinn frá. Við áttum margar mjög góðar samveru- stundir síðustu áratugi. Eyfi hafði mjög gaman af því að ferðast og fórum við ásamt hon- um og Eddu í margar ævintýra- ferðir í Þórsmörk fyrstu helgina eftir áramót. Þetta voru sannar- lega svaðilfarir sem Eyfi hafði mjög gaman af. Einnig var hann mjög stoltur þegar við fórum ein- hverju sinni akandi upp á Snæ- fellsjökul og komust þau Edda alla leið upp á toppinn, en þangað komust fáir. Áður fyrr fór fjölskyldan um verslunarmannahelgar í Hval- fjörð og var gist í aðstöðu sem fjölskyldan hafði hjá Hvalstöð- inni. Þetta voru góðir tímar hjá okkur. Mörg síðustu ár fórum við í svokallaðar systkinaferðir, þ.e. systkinin Edda, Ellert og Erla María ásamt mökum fóru í tveggja til þriggja daga ferðir um Suður- og Vesturland og var Stína systir Eyfa oft með. Þetta voru ánægjustundir hjá okkur öllum. Þá var ógleymanleg ferð sem við hjónin fórum með Eddu og Eyfa í siglingu með skemmti- ferðaskipi með ströndum Alaska eitt árið. Eyfi naut þess að rökræða málin og gat verið fastur fyrir í skoðunum sínum, við vorum oft ósammála, en alltaf í góðu. Ef það voru veikindi hjá ein- hverjum í fjölskyldunni, þá var gott að eiga Eyfa að, og var það ósjaldan sem hann lagði gott til málanna. Eyfi var ekki meinlætamaður á mat og vín, hann naut þess að vera með okkur og tvennum öðr- um hjónum í rauðvínsklúbbi til þess að smakka góð vín og góðan mat bæði hérlendis sem og er- lendis. Einnig hafði Eyfi mikinn áhuga á tónlist, laxveiði og knatt- spyrnu og var Manchester Unit- ed hans uppáhaldslið. Okkar bestu samúðarkveðjur til Eddu, Eggerts, Fríðu og fjöl- skyldu, og þökkum við Eyfa sam- fylgdina. Erla María og Steindór. Þótt við öll vissum að hverju stefndi, þá kemur það einhvern veginn manni samt á óvart þegar kallið kemur. Aðeins þremur dög- um áður höfðum við verið saman í stúdentaveislu og eftir veisluna hjálpuðum við Eggert honum út í bíl, þar sem hann átti orðið erfitt með gang. Ekki grunaði mig þá að hann ætti þetta stutt eftir. Ég kynntist Eyfa fyrst þegar hann bjó við Válastíg í Reykjavík og voru þá Edda systir og Eyfi nýbyrjuð að búa saman. Með okkur tókst góður vinskapur strax, sem átti bara eftir að eflast með árunum. Eyfi var ákaflega þægilegur í umgengni, ráðagóður og gott að leita til hans ef eitt- hvað bjátaði á, en hann gat líka verið fastur á sinni skoðun þegar svo bar undir. Eyfi hafði yndi af góðri tónlist, laxveiði, ferðalögum og góðum vínum. En það sem sameinaði áhugamál okkar mest var starf okkar í frímúrarareglunni. Hann var mjög virkur í reglunni og gegndi fjölda embætta í gegnum tíðina. Sótti alltaf fundi mjög vel, allt þar til heilsu hans fór að hraka. Minningin situr eftir um fundarstarfið, ferðalögin erlendis og systrakvöldin. Hans verður sárt saknað. Eyjólfur var höfðingi heim að sækja og höfðu þau Edda búið sér falleg heimili, hvort sem það var við Vallarbarðið eða Næfur- holtið. Alltaf hlökkuðum við til systkinaboðanna sem við höfum haldið til skiptis í mörg undanfar- in ár og eins systkinaferðanna sem við fórum saman í á hverju ári. Í dag kveðjum við góðan dreng og ég bið hinn Hæsta að fylgja honum á þeirri vegferð sem hann hefur nú hafið. Biðjum hann að blessa og styrkja Eddu, Eggert og fjölskyldu sem eiga um sárt að binda við fráfall hans. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Ellert og Júlíana. Samstarfsfélagi til margra ára er fallinn frá eftir erfið veikindi. Ég hitti Eyjólf fyrst á síðasta ári mínu í læknadeild 1977 er við fór- um þrjú verðandi læknar á hans fund til að leita ráða varðandi heimilislækningar. Hann var þá starfandi á læknastöð við Digra- nesveg og hafði lokið prófi í heim- ilislækningum frá Skotlandi og var hann einn af okkar fyrstu læknum með heimilislækningar sem sérnám. Hann tók okkur vel og við fórum frá honum sannfærð um ágæti heimilislækninga. Að loknu námi mínu í heimilislækn- ingum í Svíþjóð var enga stöðu að fá á höfuðborgarsvæðinu og ekki að finna mikinn vilja ráðamanna til að bæta úr. Ég réð mig því í afleysingar í Keflavík en fékk ári síðar upphringingu frá Eyjólfi. Hann hafði fundið með félaga sín- um Bergi Vigfússyni hjá Sjúkra- samlagi Kópavogs leið til að ég gæti hafið vinnu í Kópavogi. Var það með því að gera samning við Sjúkrasamlagið um vinnu sem sjálfstætt starfandi heimilislækn- ir og fá aðstöðu inni á Heilsu- gæslustöð Kópavogs í Fannborg sem hafði þá starfað í fjögur ár en Eyjólfur var þar yfirlæknir. Þetta gekk eftir en samningurinn var síðar felldur úr gildi og aug- lýstar stöður heilsugæslulæknis sem ég sótti um og fékk. Eyjólfur var svolítið af gamla skólanum og ekki yfir sig hrifinn af sænsku áhrifunum sem sóttu mjög á. „Svona er kannski gert í Svíþjóð en svona gerum við hér.“ Gott var að vinna með Eyjólfi og hann var góð fyrirmynd fyrir okkur nýbyrjaða heimilislækna. Hann tók talsverðan þátt í félagstörfum og m.a. var hann formaður Fé- lags íslenskra heimilislækna í nokkur ár og gegndi einnig stöðu trúnaðarlæknis á nokkrum stofn- unum. Þá var hann lektor í heim- ilislækningum við læknadeild HÍ. Á upphafsárunum var þetta karlastétt að mestu og fyrstu árin í Kópavogi var bara ein kona á móti fimm körlum. Þegar opnuð var önnur heilsugæslustöð í Kópavogi í Hvammi 1999 flutti Eyjólfur sig þangað ásamt hluta samstarfsfélaga. Heimilislækn- ingar geta verið lýjandi til lengd- ar og það ásamt fleiri þáttum leiddi til þess að Eyjólfur sótti sér sérfræðiviðurkenningu í öldr- unarlækningum. Hann hóf störf á Öldrunarlækningadeild Landspít- ala en var sárt saknað á heilsu- gæslunni af sjúklingum jafnt sem samstarfsfólki. Þegar leiðir okkar lágu síðast saman fyrir rúmum mánuði var nokkuð ljóst að hverju stefndi en kallið kom þó fyrr en maður átti von á. Kæra Guðbjörg Edda, innilegar sam- úðarkveðjur frá okkur Helgu Láru. Björn Guðmundsson. Sum augnablik í tilverunni breyta miklu. Ég minnist þess þegar ég mætti Eyjólfi Haralds- syni fyrir tilviljun, fyrir tæpum aldarfjórðungi, þar sem hann gekk inn á Landspítalann í Foss- vogi til að vitja aldraðrar móður sinnar. Ég vissi mæta vel hver Eyjólfur var en þekkti hann ekki persónulega. Eyjólfur var vel menntaður lyflæknir frá Skot- landi. Þegar heim var komið lagði hann heimilislækningar fyrir sig, þegar sú grein var að springa út sem sérgrein. Hann varð einn af brautryðjendum greinarinnar á Íslandi. Við tókum tal saman. Í þessu stutta samtali skynjaði ég að hann væri opinn fyrir breyting- um. Ég benti honum á töfra öldr- unarlækninga. Skömmu síðar af- réð hann að koma til starfa á öldrunarlækningadeild Landspít- ala, þar sem hann lauk tveggja ára sérnámi í greininni og varð fyrsti læknirinn til að ljúka slíkri þjálfun á Íslandi. Eyjólfur vann síðan sem sérfræðingur á deild- inni í tíu ár eða allt fram að starfslokum. Eyjólfur var afar góður lækn- ir. Hann var öðlingur sem kom fram af hlýju og umhyggju, jafnt við fólkið sem hann þjónaði og samstarfsfélaga. Hann var glað- lyndur og stutt í brosið. Eyjólfur missti aldrei neistann og honum fylgdi ævinlega gleði. Hann var auðmjúkur gagnvart læknisstarf- inu og allt fram að starfslokum vatt hann sér af og til inn á skrif- stofuna til að ræða flókin við- fangsefni. Á sama tíma glímdi efnilegur yngri sonur hans og Guðbjargar Eddu við illkynja sjúkdóm um árabil og féll að lok- um frá í blóma lífsins. Sorg fjöl- skyldunnar var sár og djúp. Þess- ari sögu deildi Eyjólfur með læknum á læknadögum og sýndi með því mikinn styrk. Frásögnin snerti hjartastreng og situr í minningunni. Áður hafði Eyjólfur misst fyrri konu sína unga. Eftir starfslok hélt Eyjólfur sambandi við okkur öldrunar- lækna og fylgdist vel með. Á síð- ustu árum þróaði Eyjólfur með sér langvinnan sjúkdóm, sem hann talaði opið um og af æðru- leysi. Ég minnist samtals við hann. Eyjólfur var alls óhræddur og með skýrar hugmyndir um framvinduna. Hann vildi ekki hátækniinngrip og var sáttur við lífið sem hann hafði lifað og fært honum bæði gleði og sorg. Góður maður er genginn. Guðbjörgu Eddu og Eyjólfi syni þeirra og fjölskyldu sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Pálmi V. Jónsson. Eyjólfur Þ. Haraldsson Jónína 35 ára tveggja barna móð- ir, við um tvítugt, þegar við hittumst fyrst haustið 1977 í Fósturskóla Íslands. Strax á fyrsta ári kynntumst við vel í gegnum hópa- og verk- efnavinnu og allar götur síðan höfum við haldið góðu sam- bandi. Þegar þessi orð eru skrifuð rifjast upp ferð í Þrasta- skóg til að vinna verkefni. Lítið varð um skrif fyrr en rétt áður en lagt var af stað heim sökum gleði og fíflagangs. Á gulnuðum myndum frá þessari ferð sjáum við að vinátta og væntumþykja einkenndi hópinn alla tíð. Nína kallaði okkur „fíflahópinn“, þar sem við tókum okkur ekki mjög alvarlega og höfðum gaman af náminu og félagsskap hver ann- arrar. Nína var höfðingi heim að sækja og nutum við þess oft ásamt bekkjarsystrum okkar enda var hún snillingur í eld- húsinu. Þegar börnin okkar fæddust kom Nína færandi hendi með eitthvað úr prjónakistunni sinni. Hún spurði alltaf um fjölskyld- ur okkar og hafði einlægan áhuga á að vita hvernig þeim vegnaði. Var það einnig í síð- ustu heimsókn okkar til hennar þegar hún var orðin mikið veik. Þetta lýsir væntumþykju henn- ar í okkar garð. Á kveðjustund eru það hlýj- ar, skemmtilegar og góðar minningar sem við eigum um kæra vinkonu. Við vottum fjölskyldu hennar dýpstu samúð. Regína, Hildur og Aðalheiður (Addý). Fallin er frá góð vinkona okkar Jónína Ásmundsdóttir. Við kynntumst Nínu, eins og hún var alltaf kölluð, þegar við hjónin komum heim úr námi frá Danmörku haustið 1993 og fluttum inn á jarðhæðina í Geit- landi 4. Þá var Helga að verða þriggja ára og Hildur rétt ókomin í heiminn. Strax var Jónína Hulda Ásmundsdóttir ✝ Jónína Hulda Ásmundsdóttir fæddist 20. mars 1942. Hún lést 21. maí 2022. Útför Jónínu fór fram 31. maí 2022. ljóst að við höfðum ekki einungis eign- ast úrvals íbúð heldur einstaklega góða nágranna, þau Nínu og Garðar. Helgu þótti gott að skreppa yfir gang- inn að heimsækja þau og dvaldi hún þar löngum stund- um. Barnabörn þeirra komu líka oft í heimsókn í Geitlandið og varð þeim og Helgu strax vel til vina. Rúmum mánuði eftir að við fluttum í Geitlandið kom Hildur í heiminn. Nína var um leið bú- in að prjóna á hana fallega Nínu-húfu og þegar sú húfa varð of lítil prjónaði hún nýja og stærri húfu sömu gerðar sem var í miklu uppáhaldi. Nína var leikskólakennari en á þess- um tíma var hún að vinna heima. Var það mikil gæfa fyrir fjölskylduna því þegar Hildur var nokkurra mánaða gömul og fæðingarorlofi lokið bauðst Nína til að passa hana þar til leikskólapláss fengist. Nína hafði einstakt lag á börnum og það var greinilegt að hún fylgd- ist áfram með þeim sem hún hafði passað fram á fullorðins- ár. Nína stóð eins og klettur með Garðari í erfiðum veikindum hans og gaf alla sína krafta í það verkefni. Þegar hún var orðin ein ákvað hún að flytja í íbúð sem þau hjónin áttu á Öldugötu. Það var ánægjulegt að heimsækja hana þangað og síðar í Seljahverfið. Þótt við byggjum einungis í þrjú ár í Geitlandinu hélst vin- áttan alla tíð og hittumst við gjarnan á aðventunni og þegar fjölskyldan okkar kom saman til að fagna áföngum barnanna og stórafmælum. Kata og Kalli kynntust þannig Nínu vel þótt þau ættu ekki minningar úr Fossvoginum og fylgdist Nína með öllum börnunum fjórum. Við þökkum Nínu fyrir sam- fylgdina, vináttuna og umhyggj- una sem hún hefur sýnt okkur og fjölskyldunni frá fyrstu kynnum. Aðstandendum hennar vottum við okkar innilegustu samúð. Ólafur Pétur, Ragn- heiður, Helga, Hildur, Katrín (Kata) og Karl (Kalli). Ástkær sonur okkar, bróðir, faðir og afi, ÓMAR VAGN SNÆVARSSON, lést á heimili sínu sunnudaginn 29. maí. Útför hans fer fram í Grafarvogskirkju mánudaginn 13. júní klukkan 13. Foreldrar, stjúpforeldrar, systir, synir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.