Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 5
Staða íslensks dómara við
Mannréttindadómstól Evrópu
Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út hinn 31. október 2022. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit að
tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en skv. 22. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. lög nr. 62/1994, eru dómarar við Mannréttinda-
dómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir.
Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á
ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja.
Um hæfisskilyrði dómara við Mannréttindadómstólinn er fjallað í 21. gr. mannréttindasáttmálans og kemur þar fram að dómarar skuli
vera grandvarir og verði annaðhvort að fullnægja kröfum um hæfi til að gegna æðri dómarastörfum eða vera lögvísir svo orð fari af. Þeir
skuli skipa sæti sitt sem einstaklingar og meðan kjörtímabil þeirra varir skuli þeir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem sé ósamrýmanleg
sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skulu umsækjendur vera yngri en 65 ára
daginn sem þingið biður um lista með þremur mönnum, sjá nánar í 22. gr. Sú dagsetning er 25. ágúst 2022.
Sérstök athygli er vakin á því að dómstóllinn gerir þá kröfu að dómari hafi gott vald bæði skriflega og munnlega á öðru tveggja opinberra
tungumála réttarins, þ. e. ensku og frönsku, og nokkurn skilning á hinu. Dómstóllinn leggur áherslu á að á listanum séu ekki aðeins
dómaraefni af einu kyni.
Hér með gefst þeim sem áhuga hafa á að vera tilnefnd af Íslands hálfu sem dómaraefni við mannréttindadómstólinn kostur á að senda
forsætisráðuneytinu umsókn sína eigi síðar en 8. ágúst 2022. Umsóknir og fylgigögn óskast send til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, 101 Reykjavík og á netfangið for@for.is.
Er þess óskað að umsóknir berist á íslensku, ensku og jafnframt á frönsku ef unnt er á sérstökum umsóknareyðublöðum Evrópuráðsins.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við
umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um tilnefningu liggur fyrir.
Fimm manna hæfnisnefnd mun meta umsóknir sem berast. Mun hæfnisnefndin skila umsögn um umsækjendur og gera rökstudda tillögu um
hver þeirra teljist hæfust til að vera tilnefnd. Tilnefningar stjórnvalda verða byggðar á þessari tillögu.
Frekari upplýsingar veitir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri, í síma 545 8400, netfang: steinunn.valdis.oskarsdottir@for.is.
Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/auglysingar/auglysing/2022/06/22/Stada-islensks-
domara-vid-Mannrettindadomstol-Evropu/
Forsætisráðuneytinu,
22. júní 2022 Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
í nýja glæsiverslun
Casa á Austurhöfn
Umsóknir berist
á inga@casa.is
Umsóknarfrestur er
til og með 30. júní.
STARFSFÓLK ÓSKAST