Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2022
P
áskahelgin gekk vel fyrir sig
og vor í lofti. Fór hiti jafnvel
upp í 10°C sums staðar og ís-
vélar landsins víða við þolmörk af-
hendingaröryggis bragðarefa.
Páskafrí ríkisstjórnarinnar var þó
engin kyrrðarstund, en þar gekk
talsvert á vegna Bankasýslumálsins
og sagt að stjórnarsamstarfið hafi
sjálfsagt aldrei verið brothættara.
Á þriðjudag var tilkynnt að rík-
isstjórnin hefði ákveðið að leggja
Bankasýsluna niður þar sem fram-
kvæmd síðara útboðs Bankasýsl-
unnar á hlutum í Íslandsbanka hefði
ekki staðið undir væntingum og
gagnsæi ekki nóg.
Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir,
varaformaður VR, harmaði fjölda-
uppsagnir Sólveigar Önnu Jóns-
dóttur, formanns Eflingar, á öllu
starfsliði verkalýðsfélagsins. Hún
telur að þær kunni að reynast skað-
legar fyrir verkalýðshreyfinguna í
heild.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, var hins vegar öllu þögulli og
kvaðst ekki geta tjáð sig um hóp-
uppsagnir á skrifstofu Eflingar
vegna lögvarðra hagsmuna. Margir
þolendanna eru félagar í VR, sem
vakti spurningar um hvort VR hygg-
ist skjóta því til félagsdóms.
Mikill viðbúnaður var við Eiðis-
granda vegna manns, sem stakk sér
til sunds í hafið. Hann hafði hins
vegar komið aftur í land án þess að
nokkur yrði þess var.
Skjálftavirkni á og út af Reykjanes-
skaga dalaði talsvert eftir væna
hrinu á páskadagsmorgun.
. . .
Íslandsmótið í fótbolta hófst í vor-
blíðu í Fossvogi þegar FH sótti Ís-
lands- og bikarmeistara Víkings
heim, en fimleikafélagið mátti lúta í
lægra haldi.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir utanríkisráðherra greindi frá
því að Ísland myndi styðja aðildar-
umsókn Finna að Atlantshafs-
bandalaginu afráði finnsk stjórnvöld
að fara þá leið.
Deilur innan Eflingar og í verkalýðs-
hreyfingunni héldu áfram og var yf-
irlýsing Sólveigar Önnu Jónsdóttur
um að hópuppsagnir og skipulags-
breytingar ættu að spara 120 millj-
ónir króna á ári ekki til þess fallin að
lægja öldurnar, en gagnrýnendur
hennar sökuðu formanninn um áróð-
ur og yfirgang.
Maður strauk úr gæsluvarðhaldi
þegar hann var fluttur í Héraðsdóm
Reykjavíkur, þrátt fyrir mikinn við-
búnað lögreglu. Hans var ákaft leit-
að og biðlaði fangelsisstjóri opin-
berlega til hans um að koma heim.
Ágengni lögreglu við leitina að
strokufanganum þótti þó fullmikil
þegar sérsveitarmenn tóku ungling
í misgripum í strætó, sem gert hafði
þau mistök að vera svipaður á litinn
og sakborningurinn. Sá storkaði
hins vegar réttvísinni með því að
senda kveðjur á félagsmiðlum.
Einar Þorsteinsson, oddviti Fram-
sóknar í Reykjavík, boðar stórsókn
í byggingu íbúðarhúsnæðis komist
flokkur hans í meirihluta í kosning-
unum, sem fram fara eftir tæpar
þrjár vikur. Hans segir borgina hafa
brugðist borgurunum að því leyti.
Meirihlutinn í Reykjavík krefur rík-
ið svara um þjóðarleikvang í Laug-
ardal og kveðst vera orðinn nokkuð
óþreyjufullur. Íþróttafólk er sama
sinnis enda hefur Laugardalshöll
verið úr leik í eitt og hálft ár vegna
vandræða borgarinnar við útboð um
viðgerðir þar.
Forseti Íslands blandaði sér óvænt í
umræðuna um nýjan þjóðarleikvang
og telur það afar brýnt að drífa í því.
. . .
500 félagar í Eflingu knúðu fram að
boða skyldi til félagsfundar um
fjöldauppsögn formannsins á öllu
starfsliði félagsins. Sólveig Anna
Jónsdóttir sagði að sér væri það ljúft
og skylt að boða til fundar, en ekki
er ljóst hvenær tími gefst til þess.
Enga kreppu er að merkja af sölunni
hjá Domino’s en þar stefnir í besta
flatbökuár frá upphafi. Embætti
landlæknis brást ekki við þeim tíð-
indum með sérstökum hætti.
Kristrún Frostadóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði spillingu,
gáleysi eða hvort tveggja búa að
baki Bankasýslumálinu.
Oddný Harðardóttir, stalla hennar
og fyrrverandi fjármálaráðherra,
sem í fyrndinni mælti fyrir um lögin
um Bankasýsluna, tók hraustlega
undir það, en virðist hafa annan
skilning á lögunum nú en þá.
Netárásum á fjármálainnviði hefur
fjölgað mikið á undanförnum árum,
en eftir árás Rússa á Úkraínu er tal-
in þörf á enn frekari árvekni.
Smærri sveitarfélögum gest illa að
áformuðum reglum innviðaráðherra
við mat á getu þeirra til þess að upp-
fylla lögbundin verkefni. Telja þau
að með því eigi að véla um samein-
ingu sveitarfélaga samkvæmt til-
skipunum að sunnan.
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæð-
inu heldur áfram að hækka og fór
upp um 3,1% í marsmánuði.
Stöku lundi er farinn að sjást í Vest-
mannaeyjum, en nokkrar áhyggjur
eru uppi um að fuglaflensan geti
herjað á lunda þegar öll hersingin
kemur og sest upp.
. . .
Sumardagurinn fyrsti rann upp
með mildu veðri.
Vöxtur í Árborg hefur haft þær af-
leiðingar að Selfossveitur eiga orðið
örðugt með að afhenda heitt vatn í
nægum mæli. Það gæti m.a. tafið
fyrir byggingu á lóðum, sem þegar
hefur verið úthlutað.
Ekki reyndist samstaða í miðstjórn
Alþýðusambandsins (ASÍ) um að
fordæma hópuppsagnir formanns
Eflingar, en umbrot í verkalýðs-
hreyfingunni snúast mikið um upp-
rennandi atlögu róttækari arms
hennar að Drífu Snædal forseta ASÍ
á komandi þingi sambandsins.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra kvaðst ekki víkja sér undan
pólitískri ábyrgð á Bankasýslumál-
inu með því að setja söluferli á hlut-
um í Íslandsbanka af stað. Hann
sagði umræðuna hins vegar hafa far-
ið um víðan völl og ekki allt rétt í
henni þótt framkvæmdinni hefði
augljóslega verið ábótavant í sumu.
Aðgerðir hófust við að ná upp flugvél-
arflaki af botni Þingvallavatns, en flug-
vélin fórst í upphafi febrúar og fjórir
með henni. Flakið fannst á 48 m dýpi.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynntu
málefnaskrá sína. Þar er mest
áhersla lögð á lausn húsnæð-
iskreppu, samgöngumála og fjöl-
skylduvanda, en jafnframt að borg-
arfulltrúum verði fækkað.
Maður var dæmdur í 8 ára fangelsi í
Héraðsdómi Austurlands fyrir skot-
árás, manndrápstilraun og fleira á
Egilsstöðum í fyrra.
Flugfélagið Play fór í fyrstu áætl-
unarferð sína til Bandaríkjanna, en
höfuðborgin Washington var fyrst í
röðinni. Næst hefst flug til Boston
og í sumar til New York-borgar.
. . .
Svandís Svavarsdóttir matvæla-
ráðherra segist ætla að bæta við
1.500 tonnum í strandveiðipottinn,
svo hann yrði 10.000 tonn af þorski á
þessu tímabili. Aldrei hefur verið
ráðstafað stærri hluta af leyfilegum
heildarafla í þorski til strandveiða.
Samfylkingin í Reykjavík kynnti
kosningaáherslur sínar og var þar
mest lagt upp úr lausn á húsnæð-
iskreppu, samgöngumálum og fjöl-
skylduvanda, en ekki að borg-
arfulltrúum verði fækkað.
24 flugfélög ráðgera að fljúga til
Keflavíkurflugvallar í sumar.
Í ljós kom að Íslendingur, sem var
handtekinn á Spáni í liðnum mánuði
er áhrifavaldurinn Kristján Einar
Sigurbjörnsson, sem jafnframt er
unnusti söngkonunnar Svölu Björg-
vins. Hann á sakaferil að baki.
Eftir óvenjulangan vetur hefur komið
í ljós að vegir eru víða illa farnir eftir
umhleypingarnar allar og mjög mikið
af holum, fleiri en Vegagerðin nær að
telja og hefur því biðlað til almenn-
ings um að tilkynna þær.
Helgi Valdimar Sigurðsson frá
Skollagróf í Hrunamannahreppi
vann til Morgunblaðsskeifunnar á
Hvanneyri.
Sigurður Guðmundsson, athafna-
maður og fyrrverandi bæjarfulltrúi
á Akureyri, lést í Zambíu, 53 ára að
aldri.
Vetur kvaddur og
þótt fyrr hefði verið
Tíðindi vikunnar voru vafalaust þau að ríkisstjórnin ákvað að leggja Bankasýslu ríkisins niður. Á skrifstofum hennar í
Borgartúni 3 vinna þrír starfsmenn, þrisvar sinnum fleiri en á skrifstofum nágranna þeirra í verkalýðsfélaginu Eflingu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
17.4.-22.4.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
w w w. i t r. i s
S ý num hver t ö ð r u tilli t s s emi