Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Side 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2022 línu sem nefnist Skapandi greinar. þá rifjuðust orð Ingólfs afa upp en hann sagði alla tíð: „Klara mín, þú verður að fara í háskóla, þú átt fullt erindi í nám.“ Svo ég hugsaði með mér hvort það væri ekki bara svolítið mér fannst fallega táknrænt að sækja um nám við Bifröst og leita listrænnar handleiðslu sérfræðinga háskólans. Ég sótti um og komst inn. Ég vildi sá listrænum fræjum í upp- byggilegan og frjóan farveg framtíðarútgáfu en Skapandi greinar á Bifröst er sérsniðin að slíkri útgáfu. Námið er þverfaglegt og áhersla á sjálfbærni sem sjálfstæði en Anna Hildur Hildibrandsdóttir er fagstjóri skapandi greina og framúrskarandi sérfræðingur.“ Konfektskál skapandi greina „Það eru miklar kröfur gerðar til okkar í námi, um sjálfstæð vinnubrögð og skapandi frum- kvæði. Við lærum framleiðslu menningarefnis, verkefnastjórnun og höfundaréttalög, fram- komu í fjölmiðlum, fjármál og rekstur, kvik- myndagerð á farsíma, stafræna markaðsfræði og umhverfisvernd, upplýsingatækni og sjálf- stæð vinnubrögð. Árgangurinn minn er hæfi- leikafólk úr ólíkum listgreinum, fallegur og breiður hópur. Strax á fyrstu önninni sat Klara námskeið sem kallast Vinnusmiðja: Hlutverk mitt í líf- inu. „Þar var ég beðin um að móta mér skýra stefnu, ég mætti ráða því alveg hvað ég gerði en ég yrði að vera ákveðin í því. Ég sagði að ég vildi beina sjónum mínum að tónlistarútgáfu og það hef ég gert. Í þetta nám hef ég sótt styrk minn í þetta verkefni.“ Klara er afar þakklát þeim sem hafa leið- beint henni í náminu og nefnir auk Önnu Hild- ar þær Henný Maríu Frímannsdóttur, Sigríði Arnardóttur, Guðnýju Guðjónsdóttir, Karólínu Stefánsdóttur og Rán Tryggvadóttur. „Þetta nám er konfektskál skapandi greina.“ Tónverkin fá að óma í nýrri mynd Í náminu hefur Klara einbeitt sér að endur- útsetningu og endurútgáfu tónverka afa síns. „Við heyrum þessi gleymdu tónverk ekki jafn oft í dag og ekki í þeim útsetningum sem þau voru gefin út í þá. Stórlega vanmetinn þáttur í öllum tónsmíðum er útsetningarfræðin sjálf. Við horfum svolítið hjá töfrum útsetningar og það er ekki hvað síðri kategóría. Og það var það sem ég fékk í hendur þegar ég var farin að greina mel- ódíurnar sem voru á nótnablöðunum þá fór ég að velta fyrir mér hvort það væri ekki gaman að leyfa þessum tónverkum að óma í nýrri mynd þannig að þau verði listamanninum til sóma og nýrri kynslóð um leið. Þannig vindur þetta upp á sig meðan ég er í náminu og ég fer að fara lengra með melódíurnar.“ Klara stofnaði þá til samstarfs við úkraínska píanóleikarann Boris Sevastyanov, sem er frá Karkív, á alþjóðlegum samskiptavef tónlistar- fólks á netinu. Hún segir það dæmigert fyrir það landamæraleysi sem ríki í tónlistarheim- inum í dag. „Ég var mjög hrifin af hans flutn- ingi og hans stíl. Ég bara lagði þetta á borðið fyrir hann,“ segir hún. „Það hefur verið einstaklega gaman að vinna með Boris. Ég sagði við hann að mig langaði að sjá þessi verk í „instrumental“ píanóbúningi því píanóið var hljóðfærið hans Ingólfs. Hann tekur tónverkið til sín, metur það og flytur það með sínum hætti. „Þau eru ófá aðdáunartárin sem ég hef fellt hérna við tölvuna hjá mér. Ég ber gífurlega virð- ingu fyrir honum. Þetta er svo fallegur flutning- ur hjá honum. Hann skekkir ekki lögin heldur er melódían svolítið eins og loftlaus blaðra sem er blásin út og stækkuð með útsetningunni. Það er útsetning. Laglínan sjálf, er óbreytt, hrynjandina í tónverkinu en innsetning hljóðfæra og aukin tóndýpt kemur til.“ Þau Klara hafa nú gefið út níu tónverk saman og þannig er lagið Reykjavík- urdætur meðal nýútsettra verka í flutningi Úkraínumannsins nú útkomið á Spotify. Skynjaði aukna spennu í Úkraínu Þau Klara og Boris ráku samstarf allt þar til tveimur dögum áður Rússar réðust inn í Úkraínu. „Í svona samstarfi myndast list- ræn nánd sem tengist ekki inn á daglegt líf fólks og aðstæður heldur inn á orðalausa og fallega tíðni,“ segir Klara. Þau hafi ekki rætt aðstæðurnar í heimalandinu enda byggi samband þeirra á faglegu tónlistar- samstarfi. „En vissulega fann ég fyrir öllu því sem ósagt var. Ég fann spennuna stigmagnast, ekki í hans orðum en ég fann að það var eitt- hvað í aðsigi. Þetta var gífurlega sérstök at- burðarás að skynja upptök styrjaldar héðan frá Eyrarbakka í gegnum þessa listrænu, orðalausu tíðni,“ segir Klara og minnist þess að hafa verið farin að skynja þessa auknu spennu í kringum áramót. „Ég innti hann eftir því hvort fjölskyldan væri örugg og hann sagði þá að átökin færðust stöðugt nær. Hann sagði við mig að þau fjöl- skyldan hefðu fyrir löngu tekið þá ákvörðun að standa með sínu heimalandi og sinni þjóð og vera um kyrrt.“ Hann hafði hlotið þjálfun und- anfarin átta ár í úkraínska frelsishernum og gegnir sínu hlutverki þar. Ber virðingu fyrir styrk þjóðarinnar „Mér hefur ekki þótt við hæfi að vera alltaf að hafa samband við þau en ég bið fyrir þeim. Maður hefur séð styrkinn og einlægnina í gegnum opinber ummæli hans á netinu. Ég ber mikla virðingu fyrir styrk úkraínsku þjóð- arinnar, yfirvegun þeirra og stillingu. Úkra- ínumenn eru listræn þjóð og það er einstakur þjóðarbragur úkraínskri listtúlkun sem ég hrífst af. Ég er heilluð af þessum menning- arheim, menningu þessarar sjálfstæðu þjóð- ar,“ segir hún. „Það fyrsta sem ég bað Boris um að út- setja var litla vögguvísan Mín kindin mjó, sem var tileinkuð mér, og það lagði grunn- inn að því sem koma skildi í okkar sam- starfi. Þessi vögguvísa ferðaðist frá tónlistarsafninu hér heima, heim til mín á Eyrarbakka, til Brasilíu í grunnspilun og þaðan til Úkraínu þar sem hún er útsett sem píanóballaða. Í framhaldinu leitaði ég uppi ítalskt kvik- myndatónskáld, Enzo De Rosa, og bar upp þá spurningu hvort tónverkið væri hæft til sin- fónískrar útsetningar. þetta tónverk ætti möguleika á að vera útsett sem sinfónía. Enzo sagði já. Verkið tók þrjár vikur en mér að óvörum kallaði Enzo til færeysku söngkonuna Elin Brimheim Heinesen sem flytur sjálfa þjóðvísuna í lok lagsins.“ Gróskumikil, litrík og auðug Klara hefur mikinn áhuga á hugmyndum um hringrásarhagkerfi og sjálfbærni innan tón- listargeirans. Það hvernig Kindin mín mjó var ekkert nema nótur á blaði og ferðaðist síðan um heiminn er dæmi um þessa hring- rásaraðferð. „Við eigum að opna íslenska tón- listararfinn og kynna þessi verk fyrir flytj- endum samtímans.“ Hún segir að við getum lært mikið af tónskáldum fortíðarinnar „sem ófu melódíur án þess að hafa nokkur tæki sér við hlið“. Klara vonast til þess að þetta starf geti orð- ið öðrum rétthöfum hvatning til þess að dusta rykið af gömlum tónverkum. „Ef ég get þetta af hverju ættu ekki aðrir að geta það? Af hverju voru þessi tónverk samin ef ekki til þess að leyfa einhverjum að heyra þau? Ís- lensk lista- og menningarsaga er gríðarlega gróskumikil, litrík og auðug. En þetta verður hver að gera með sínu nefi og finna sinn takt í þessum efnum.“ Klara býr með yngri syni sínum, Guðmundi Galdri, á Eyrarbakka. Þaðan hefur hún unnið að þessu útgáfustarfi í kyrrð og ró. „Rólegt líf er stórlega vanmetið og stærstu kraftaverkin gerast í kyrrð,“ segir hún. „Þetta hefur verið ríflega tveggja ára ferli og það sem ég hef lært á þeim tíma. Ég er einstaklega lánsöm hafa fengið þetta tækifæri. En það er auðvitað allt vinna í lífinu, ég hef ekkert fengið upp í hend- urnar.“ „Ég vildi sá listrænum fræjum í uppbyggilegan og frjóan farveg framtíðarútgáfu,“ segir Klara. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Þá fór ég að velta fyrir mér hvort það væri ekki gaman að leyfa þessum tón- verkum að óma í nýrri mynd þannig að þau verði listamanninum til sóma og nýrri kynslóð um leið. Klara og Ingólfur afi hennar voru miklir vinir. Lagið Reykjavíkurdætur, sem Ellý Vil- hjálms flutti á sínum tíma og gerði frægt, er líklega þekktasta tónsmíð Ingólfs Sveinssonar. Klara, eldri dótturdóttir hans, segir þá Ólaf Gauk Þórhallsson hafa verið mikla félaga í tónlistinni. „Í kringum 1960 voru þeir svolítið mikið í því að senda inn lög undir dulefnum í Danslagakeppni Útvarpsins, en komu síð- ar undir nafni í úrslitum. Þeir senda meðal annars inn tónverkið Reykjavíkurdætur sem afi samdi og bar upphaflega heitið Austurbæjardætur. Hann samdi það upp- haflega til ömmu minnar og systra hennar, sem áttu heima á Njálsgötu og síðar á Snorrabraut. Óli samdi textann Reykjavíkurdætur og þeir breyta titlinum. Magnús Ingimarsson útsetti síðan lagið, það kemst í úrslit í danslagakeppninni og SG útgáfa gaf það, ásamt fleiri verkum, út á plötu árið 1966 í flutningi Ellýjar Vilhjálms og hefur lagið verið sívinsælt síðan.“ Annað þekkt tónverk úr smíðum Ingólfs er Það vex eitt blóm fyrir vestan en það samdi hann við ljóð eftir Stein Steinarr. Á safnadeild RÚV fann Klara 19 af eldri verkum Ingólfs í flutningi nokkurra merkra söngvara. Á hljómplötu Rósu dóttur hans er síðan að finna sex lög eftir Ingólf. Platan er frá 1972 og ber einfald- lega titilinn Rósa. Klara og Heiðveig systir hennar hafa lagt á ráðin um að endur- útgefa þessa plötu móður þeirra og afa. Tónsmíðar Ingólfs

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.